Lífið

Draumur Katrínar Eddu og Markúsar verður að veru­leika

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Katrín Edda hefur talað opinskátt um glímuna við ófrjósemi og þann langþráða draum um að eignast barn.
Katrín Edda hefur talað opinskátt um glímuna við ófrjósemi og þann langþráða draum um að eignast barn. Instagram

Katrín Edda Þor­steins­dótt­ir, verk­fræðing­ur og áhrifa­vald­ur, og eiginmaður hennar Markus Wass­er­baech eiga von á sínu öðru barni. Fyrir eiga þau dótturina Elísu Eyþóru sem er eins árs.

Katrín Edda deildi gleðitíðindunum á Instagram í gær með fallegu myndskeiði af fjölskyldunni: „Þegar draum­ar verða að veru­leika. Elísa Eyþóra verður stóra syst­ir og við verðum fjög­urra manna fjöl­skylda.” 

Katrín Edda hefur talað opinskátt á samfélagsmiðlum um glímuna við ófrjósemi og þann langþráða draum um að eignast barn. Sá draumur rættist þegar Elísa Eyþóra kom í heiminn þann 17. desember 2022. Katrín Edda leyfði fylgjendum sínum að fylgjast með allri meðgöngunni.

Katrín og Markus gengu í hnapphelduna við fallega athöfn í Garðakirkju síðastliðið sumar en það var í annað sinn sem hjónin létu pússa sig saman. Fyrri athöfnin fór fram í Stuttgart í Þýskalandi í miðjum heimsfaraldri.


Tengdar fréttir

Fagnar stóru og sterku lærunum

Katrín Edda Þorsteinsdóttir áhrifavaldur og verkfræðingur segist í sjokki yfir því að skoða myndir af sér frá því fyrir seinustu fitnesskeppnina hennar. Þar hafi lífið snúist um að verða „eins og blað.“ Markmiðið hafi verið að minnka lærin en í dag er Katrín hamingjusöm í Crossfit þar sem enginn spáir í stærð læranna, heldur styrk þeirra.

Brúðkaup ársins 2023

Á hverju ári greinum við á Vísi frá brúðkaupum og hér fyrir neðan má sjá yfirferð yfir þekkta Íslendinga sem gengu í hnappelduna á árinu 2023.

Dagurinn dá­sam­legur þrátt fyrir að nær ekkert hafi farið eftir plani

„Við erum í smá spennufalli eftir þetta,“ segir verkfræðingurinn og áhrifavaldurinn Katrín Edda. Hún og Markus Wasserbaech giftu sig við hátíðlega athöfn um helgina. Þetta var í annað sinn sem hjúin gengu í það heilaga en fyrst giftu þau sig við litla athöfn í Covid faraldrinum. Því var tilhlökkunin mikil við að fagna ástinni með vinum og vandamönnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×