Handbolti

Hrafn­hildur Anna til Stjörnunnar

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Nýjasta viðbót Stjörnunnar.
Nýjasta viðbót Stjörnunnar. Stjarnan

Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir hefur samið við Stjörnuna og mun ganga í raðir félagins þegar yfirstandandi tímabili í Olís-deild kvenna í handbolta lýkur. Hrafnhildur Anna skrifar undir tveggja ára samning í Garðabæ en hún kemur frá Íslandsmeisturum Vals.

Hin 24 ára gamla Hrafnhildur Anna er uppalin hjá FH í Hafnafirði hefur undanfarið tvö ár leikið með Val og hefur orðið Íslands-, bikar- og deildarmeistari með liðinu.

Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, er spenntur fyrir nýjustu viðbót liðsins: „Hrafnhildur Anna er góður leikmaður sem ég bind miklar vonir við. Hún er með góða reynslu í markinu frá tíma hennar í FH og svo Val. Ég hlakka til að fá hana í Garðabæinn.“

Stjarnan komst í úrslitakeppni Olís-deildarinnar í ár en féll úr leik eftir að tapa báðum leikjum sínum gegn Haukum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×