Sport

Dag­skráin í dag: Undan­úr­slit í Meistara­deild Evrópu og Subway-deild karla

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Þessir tveir verða í beinni í dag.
Þessir tveir verða í beinni í dag. Angel Martinez/Getty Images

Það má með sanni segja að dagurinn í dag sé sannkallaður stórleikja þriðjudagur. Undanúrslit Meistaradeildar Evrópu karla í knattspyrnu hefjast. Þá mætast Grindavík og Keflavík í undanúrslitum Subway-deildar karla í körfubolta.

Stöð 2 Sport

Klukkan 18.45 hefst útsending frá Smáranum þar sem Grindavík tekur á móti Keflavík í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Subway-deildar karla í körfubolta.

Klukkan 21.10 er Körfuboltakvöld á dagskrá. Þar verður leikur kvöldsins ásamt viðureign Vals og Njarðvíkur í gær gerður upp.

Vodafone Sport

Klukkan 18.35 hefst upphitun fyrir leik kvöldsins í Meistaradeild Evrópu. Klukkan 18.50 færum við okkur svo til Þýskalands þar sem Bayern München tekur á móti Real Madríd í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.

Klukkan 21.00 eru Meistaradeildarmörkin á dagskrá.

Klukkan 22.30 er leikur Cardinals og Tigers í MLB-deildinni í hafnabolta á dagskrá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×