Handbolti

Sig­valdi Björn marka­hæstur þegar Kol­stad komst í úr­slit

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Sigvaldi Björn Guðjónsson átti frábæran leik fyrir Kolstad.
Sigvaldi Björn Guðjónsson átti frábæran leik fyrir Kolstad. VÍSIR/VILHELM

Hornamaðurinn Sigvaldi Björn Guðjónsson leiddi sína menn í Kolstad til sigurs gegn Drammen í öðru leik liðanna í fjögurra liða úrslitum norsku úrvalsdeildar karla í handbolta. Sigvaldi Björn, sem er fyrirliði liðsins, var markahæstur allra í leiknum.

Íslenski landsliðsmaðurinn skoraði alls sjö mörk í fimm marka sigri Kolstad, lokatölur 28-23. Sigurinn þýðir að Kolstad vann báða leiki einvígisins og er komið í úrslit. Þar mætir það annað hvort Elverum eða Arendal.

Róbert Sigurðarson komst ekki á blað hjá Drammen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×