Innlent

Spurningar til Baldurs minni á árið 1980

Jón Þór Stefánsson skrifar
„Halda mætti að árið 1980 væri aftur gengið í garð en í þetta sinn sætir eini samkynhneigði forsetaframbjóðandinn svipuðum fordómum,“ skrifar Sólborg um Baldur.
„Halda mætti að árið 1980 væri aftur gengið í garð en í þetta sinn sætir eini samkynhneigði forsetaframbjóðandinn svipuðum fordómum,“ skrifar Sólborg um Baldur. Vísir/Vilhelm/Hulda Margrét

Sólborg Guðbrandsdóttir rithöfundur og meðlimur í kosningateymi Baldurs Þórhallssonar segir hann þurfa að svara spurningum sem aðrir forsetaframbjóðendur þurfi ekki að svara vegna kynhneigðar sinnar.

Þetta kemur fram í aðsendri grein Sólborgar sem birtist á Vísi í dag, en hún ber heitið Má spyrja homma að öllu?

„Þegar líða fer að kosningum fara Gróur þessa lands á stjá og velta hinum ýmsu málefnum fyrir sér,“ segir Sólborg.

Í grein hennar segir hún að svo virðist sem árið 1980 sé aftur gengið í garð hvað varðar fordóma í garð Baldurs sem samkynhneigðs manns.

„Að vilja verða forseti Íslands en vera hommi er svona svipað því að vilja verða forseti en vera kona árið 1980. Vigdís mátti þola ýmislegt í sínu forsetaframboði og þurfti að svara hinum ótrúlegustu spurningum um sitt persónulega líf, enda aldeilis ekki við hæfi að kona sæti í embætti forseta. Halda mætti að árið 1980 væri aftur gengið í garð en í þetta sinn sætir eini samkynhneigði forsetaframbjóðandinn svipuðum fordómum,“ skrifar Sólborg.

Hún vill meina að siðareglur blaðamanna virðist litlu skeyta þegar að komi að Baldri. „Enda virðist fólki þykja í lagi að spyrja homma að öllu því sem því sýnist.“

Í kjölfarið skrifar hún lista yfir spurningar sem hún telur vera í umræddum anda, „í drullupytti fordóma og haturs“.

  • Fórstu á hommabar?
  • Kyssir þú manninn þinn?
  • Af hverju eruð þið alltaf tveir saman? Getur maðurinn þinn aldrei haldið sig til hlés?
  • Elskar þú BDSM?
  • Ætlarðu að kyssa manninn þinn á Bessastöðum?
  • Hvað með börnin á Bessastöðum? Þurfa þau að þola það?
  • Við komum að því á eftir hvað þér finnst um stjórnarskrána, málskotsréttinn, valdsvið forsetans og fleira, en ætlarðu þér að fara einhvern tímann aftur á hommabar?
  • Ég bara spyr. Þjóðin þarf nefnilega að vita það.

Í grein sinni veltir Sólborg fyrir sér hvort rétt sé að velta sér upp úr áðurnefndum „drullupytti fordóma og haturs“.

„Hommi getur nefnilega bæði elskað annan homma og sinnt störfum forseta af nærgætni og virðingu, á sama tíma, á sama stað,“ segir hún.

Hafi engin áhrif á hann og Felix

Í Pallborðinu á Vísi á dögunum sagði Baldur að allir þeir sem sækist eftir embætti forseta Íslands megi búast við því að skrökvað verði um sig.

„Þetta bara fylgir þessu, og þetta hefur engin áhrif á okkur Felix,“ sagði Baldur og bætti við að þeir sem væru samkynhneigðir hefðu upplifað áreiti sem þetta í gegnum tíðina.

Fjallað hefur verið um mynd af Baldri sem fannst á vefsíðu skemmtistaðar fyrir samkynhneigða karlmenn í París. Í þættinum Spursmálum á Mbl.is var Baldur spurður út í myndina. Hann benti á að hún væri tíu ára gömul og væri á meðal sak­leys­is­legustu mynda sem birst hefði af honum.

„Ég hef ekki hug­mynd um þenn­an klúbb og man ekki einu sinni eft­ir því að hafa farið á hann. Þetta er eld­göm­ul mynd og hún er mjög siðsam­leg, það er bara ekk­ert að þess­ari mynd,“ sagði Baldur í Spursmálum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×