Sport

Síðasta æfingin hjá Anníe Mist með bumbubúann

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Anníe Mist Þórisdóttir hefur gert ótrúlegustu æfingar þrátt fyrir að vera komin næstum því níu mánuði á leið.
Anníe Mist Þórisdóttir hefur gert ótrúlegustu æfingar þrátt fyrir að vera komin næstum því níu mánuði á leið. @anniethorisdottir

Íslenska CrossFit konan Anníe Mist Þórisdóttir hefur æft af miklum krafti alla meðgönguna en núna eru liðnir næstum því níu mánuðir og því að koma að stóru stundinni.

Anníe á von á strák sem á að koma í heiminn í byrjun maí. Hún sagði frá því á samfélagsmiðlum sínum að nú sé komið að því að koma krílinu í heiminn.

„Síðasta æfingin mín með bumbubúann. Á næstu æfingu verður hann við hlið mér,“ skrifaði Anníe Mist.

Íslenska CrossFit goðsögnin hefur sýnt myndbönd af sér æfa af krafti alla meðgönguna. Þeir sem voru hissa að sjá hana gera hina ýmsu æfingar eins og handahlaup, handstöðu og göngu á höndum þegar hún var komin fimm, sex eða sjö mánuði á leið hafa séð hana halda því áfram á áttunda og níunda mánuði meðgöngunnar.

Anníe varð líka að kóróna þetta á lokaæfingunni sinni.

„Þetta var þægileg æfing á rafhjólinu en svo varð ég bara að sjá hvort ég þyrfti ekki að koma nokkrum handahlaupum út úr kerfinu,“ skrifaði Anníe og sýndi mynd af sér taka nokkur handahlaup komin næstum því níu mánuði á leið. Það má einnig sjá hana í handstöðu.

„Tilfinningaþrunginn dagur en góður dagur,“ skrifaði Anníe. Hún Frederik Ægidius og Freyja Mist bíða nú eftir að drengurinn komi í heiminn.

„Síðasti dagurinn þar sem eru bara þrír í fjölskyldunni og við getum ekki beðið eftir því að sjá þann litla,“ skrifaði Anníe.

Það má sjá myndbandið hér fyrir neðan. Ef Instagram færslan birtist ekki er gott ráð að endurhlaða fréttina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×