Innlent

Um­boðs­maður krefst skýringa á nýju lög­reglu­merki

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Umboðsmaður óskar skýringa á nýju lögreglumerki sem er hvergi að finna í reglugerðum.
Umboðsmaður óskar skýringa á nýju lögreglumerki sem er hvergi að finna í reglugerðum.

Umboðsmaður Alþingis hefur sent ríkislögreglustjóra erindi þar sem hann óskar skýringa á nýju lögreglumerki sem hann segir hvergi að finna í reglugerðum.

Um er að ræða stjörnu sem umboðsmaður segir nú prýða vefsíðu lögreglunnar, samfélagsmiðla, lögreglubifreiðar og skýrslur.

Hann gerir einnig athugasemdir við útbúnað sérsveitar ríkislögreglustjóra en hann segir einkennisfatnað sveitarinnar bera merki sem eiga sér ekki stoð í reglum.

Í reglugerð nr. 1151/2011 er fjallað um einkenni og merki lögreglunnar og meðal annars lýst íslenska lögreglumerkinu, sem sé gyllt stjarna með sex jöfnum örmum. Í miðri stjörnunni er skjöldur með tveimur krosslögðum sverðum og umhverfis skjöldin áletrunin „MEÐ LÖGUM SKAL LAND BYGGJA“.

Áletrunin er afmörkuð með tveimur upphleyptum hringjum en frá ytri hringnum liggja 54 teinar með jöfnu millibili út að jaðri stjörnunnar. Neðst á milli hringjanna sé fimm arma stjarna.

Ef merkið sé prentað í lit eigi það að vera svart á gulum grunni.

Umboðsmaður segir nýju stjörnuna ekki að finna í reglugerðum; hún sé hvorki með áletruninni né í sama lit. Þá sé stjarnan ekki með 54 teina.

Hann bendir einnig á að sérsveitarmenn beri merki sem séu grá en ekki gul og þá virðist þeir hafa tekið upp nýtt merki sem hvergi sé getið um; ávalt merki með útlínur Íslands í miðjunni en útfrá hvorri hlið liggi nokkurs konar vængir.

Óskar umboðsmaður eftir skýringum á því hvenær breytingar voru gerðar á umræddum merkjum og hvernig þau séu notuð. Þá óskar hann eftir afstöðu ríkislögreglustjóra til þess hvort notkun merkjanna samræmist reglugerðum og að hann fái afrit af reglum sem kunna að hafa verið settar til viðbótar við reglugerðirnar.

Erindi umboðsmanns.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×