Innlent

Grænt ljós á Láka og Flata en ekki Libyu

Atli Ísleifsson skrifar
Hvað á barnið að heita?
Hvað á barnið að heita? Getty

Mannanafnanefnd hefur samþykkt eiginnöfnin Kaya, Flati, Láki, Jones og Arianna. Eiginnafnið Libya hlaut þó ekki náð fyrir augum nefndarinnar.

Þetta kemur fram í nýbirtum úrskurðum nefndarinnar sem afgreiddir voru á föstudag. Nafnið Kaya var samþykkt sem ritháttarafbrigði nafnsins Kaja og Arianna sem ritháttarafbrigði nafnsins Aríanna.

Nefndin ákvað að hafna erindi um samþykkt nafnsins Libya. Í málinu reyndi á skilyrði laga um almennar ritreglur þar sem Libya er ekki ritað í samræmi við þær þar sem y er ekki ritað fyrir framan a í ósamsettum orðum. Þannig sé aðeins hægt að samþykkja það ef hefð er fyrir rithætti nafnsins. Svo er ekki þar sem enginn einstaklingur í skrám Þjóðskrá hefur borið nafnið. Erindinu var því hafnað.

Það reyndi á skilyrði hjá nefndinni þegar nafnið Jones var tekið fyrir. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá ber einn einstaklingur, sem uppfyllir skilyrði vinnulagsreglnanna, eiginnafnið Jones. Sá er fæddur árið 2013.

Nafnið komi hins vegar ekki fyrir í manntölum frá 1703 til 1920 og telst því ekki hefð fyrir rithætti nafnsins á grundvelli vinnulagsreglnanna. Aftur á móti sé um enskt tökunafn að ræða og þessi ritháttur nafnsins gjaldgengur víða um heim. Taldi mannanafnanefnd því að hefð væri fyrir þessum rithætti nafnsins á grundvelli 4. gr. vinnulagsreglna nefndarinnar.


Tengdar fréttir

Cyrus og Herkúles fá já en Bergman bannaður

Mannanafnanefnd hefur samþykkt ný eiginnöfn á borð við Herkúles, Bjartdís, Kriss og Cyrus. Þá var nöfnunum Bergman og Boom báðum hafnað bæði sem eiginnafni og millinafni.

Jakob Reynir Aftur reynir aftur

Maður sem fær ekki að bera millinafnið Aftur ætlar að mótmæla úrskurði mannanafnanefndar sem hafnaði nafninu. Hann segir nafnið ansi táknrænt fyrir sig en hann sneri blaðinu við fyrir tæpum fjórum árum síðan eftir að hafa verið á slæmum stað í lífinu.

Nú má heita Hendrix og Tótla

Mannanafnanefnd hefur samþykkt nokkurn fjölda nýrra mannanafna. Meðal þeirra eru Hendrix, Sammi, Tótla, Smíta, Alífa og Þruma. Aftur á móti fellst nefndin ekki á að fólk menn megi heita Aftur.

Féllust á Annamaríu í seinni tilraun og nú má heita Emír

Mannanafnanefnd hefur samþykkt eiginnafnið Annamaría, eftir að hafa áður hafnað beiðni um að það yrði fært í mannanafnaskrá. Nefndin hefur líka samþykkt nöfn á borð við Jóní og Siddý en hafnað nafninu Helgarut.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×