Fótbolti

„Real Madrid lofaði mér að ég yrði arf­taki Modric“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Arda Güler í leik með Real Madrid en hann sló í gegn í síðasta leik.
Arda Güler í leik með Real Madrid en hann sló í gegn í síðasta leik. Getty/Ion Alcoba Beitia

Arda Güler skoraði mikilvægt mark um síðustu helgi þegar hann tryggði Real Madrid 1-0 sigur á Real Sociedad.

Markið sá til þess að Real Madrid náði þrettán stiga forskoti á toppi spænsku deildarinnar.

Áhugi á þessum nítján ára gamla Tyrkja er mikill á Spáni eftir sigurmarkið hans. Hann hefur skorað tvö mörk í sex leikjum í spænsku deildinni en á enn eftir að koma við sögu í Meistaradeildinni.

Güler gat valið á milli stórliðanna Real Madrid og Barcelona síðasta sumar og valdi Real yfir Barca. Nú vitum við meira af hverju.

„Ég var í fríi þegar pabbi minn hringdi í mig og sagði mér að Real vildi fá mig. Ég var mjög spenntur enda draumur að rætast,“ sagði Güler í viðtali við Kafa Sports en Fabrizio Romano segir frá.

„Real Madrid lofaði mér að ég yrði arftaki Modric og það réði úrslitum,“ sagði Güler um samningaviðræðurnar síðasta sumar.

Króatinn Luka Modric hefur spilað með Real Madrid frá árinu 2012. Hann hefur unnið Meistaradeildina fimm sinnum og spænsku deildina þrisvar sinnum en gæti bætt við þá tölu á þessu tímabili. Liðið er nánast búið að vinna deildina og svo komið í undanúrslit Meistaradeildarinnar.

„Þeir sýndu mér langtímasýn og ég var sannfærður. Við báðum Real um að borga Fenerbahce aðeins meira fyrir mig en það sem stóð í samningnum mínum. Þeir samþykktu það,“ sagði Güler.

„Ég hefði getað verið áfram hjá Fenerbahce en ég vildi sýna heiminum hvað ungur maður frá Fener í Tyrklandi getur gert í Evrópu,“ sagði Güler.

Real spilar risastóran leik í kvöld þegar liðið mætir Bayern München í Þýskalandi í fyrri undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeildinni. Hvort strákurinn fá þar að spila sinn fyrsta leik með liðinu í Meistaradeildinni verður að koma í ljós.

Leikurinn hefst klukkan 19.00 á íslenskum tíma. Leikurinn verður sýndur beint á Vodafone Sport og upphitun hefst á sömu rás klukkan 18.35.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×