Lífið

Engir palestínskir fánar í Euro­vision-höllinni

Atli Ísleifsson skrifar
Eurovision-keppnin fer fram í Malmö Arena í Malmö að þessu sinni.
Eurovision-keppnin fer fram í Malmö Arena í Malmö að þessu sinni. EPA

Skipuleggjendur Eurovision hafa ákveðið að banna palestíska fánann og skilti með pólitískan boðskap inni í Malmö Arena þar sem keppnin fer fram dagana 7. til 11. maí.

Þetta kemur fram í frétt Göteborgs-Posten í morgun. Þar segir að hver á sem reynir að koma palestínskum fána eða skilti með pólitískum boðskap inn í höllina verði stöðvaður við innganginn.

Samkvæmt reglum eru fánar þeirra landa sem keppa í Eurovision leyfðir í höllinni. Ein undantekning sé á þessu, það er regnbogafáninn, þar sem hann sé ekki notaður í pólitískum tilgangi.

Búið er að sækja um leyfi fyrir tugi mótmælafunda í Malmö á meðan á Eurovision-vikunni stendur og segir í frétt GP að ákvörðunin um að banna palestínska fánann í Eurovision-höllinni sé tilraun skipuleggjenda til að hafa keppnina eins ópólitíska og mögulegt sé.

Palestínski fáninn hefur ítrekað komið við sögu Eurovision-keppninnar í þeim tilgangi að mótmæla þátttöku Ísraela í Eurovision og aðgerða Ísraela gegn palestínsku þjóðinni. Sjaldan hefur mótmælaaldan verið meiri en í ár vegna stríðsreksturs Ísraela á Gasa.

Árið 2019 kom palestínski fáninn í tvígang fyrir í útsendingu þar sem liðsmenn Hatara tóku upp palestínska fánann í græna herberginu þegar myndavélin var á þeim. Lauk því máli með að Ríkisútvarpið var sektað um fimm þúsund evrur.

Sama ár var einn af dönsurunum í atriði bandarísku söngkonunnar Madonnu, sem stóð fyrir atriði á meðan á símaatkvæðagreiðslu stóð, með palestínskan fána á bakinu.

Hera Björk verður fulltrúi Íslands í Eurovision í ár þar sem hún mun flytja lagið Scared of Heights.


Tengdar fréttir

Halda samstöðutónleika á sama tíma og Ísland keppir í Eurovision

Hópur tónlistarmanna kemur fram á samstöðutónleikum með Gasa í Háskólabíó þann 7. maí klukkan 19.30. Á sama tíma keppir Ísland í fyrri undankeppni Eurovision í Malmö í Svíþjóð. Söngkonan Elísabet Eyþórsdóttir, Beta, er ein þeirra sem kemur að skipulagningu tónleikanna.

Hera í gylltum galla á fyrstu æfingunni

Hera Björk steig í fyrsta skiptið á Eurovision sviðið á sinni fyrstu æfingu í Malmö í gær. Þar mátti sjá Heru í glænýjum gylltum samfestingi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×