Viðskipti innlent

Frum­kvöðlar koma saman í Kola­portinu

Árni Sæberg skrifar
Frá hátíðinni í fyrra.
Frá hátíðinni í fyrra. Iceland innovation week

Aðaldagskrá Iceland Innovation Week var birt í morgun. Þátttakendur frá meðal annars Google, Microsoft, Snapchat, NATO Innovation Fund og UN World Food Programme eru væntanlegir til landsins á hátíðina, sem fer fram dagana 13-17. maí.

Í fréttatilkynningu segir að nýsköpunar- og frumkvöðlahátíðin fari fram í fimmta sinn eftir að hafa verið sett á laggirnar af þeim Eddu Konráðsdóttur og Melkorku Sigríði Magnúsdóttur árið 2020. Hátíðin sé markaðsgluggi íslenskrar nýsköpunar en frumkvöðlum, stofnunum og fyrirtækjum gefist kostur á að standa fyrir nýsköpunartengdum viðburðum og kynna starfsemi sína.

Í ár fari aðaldagskrá hátíðarinnar fram 15-16. maí í Kolaportinu en búist sé við yfir þúsund gestum á viðburðinn. Hliðarviðburðir verði gegnumgangandi í vikunni opnir öllum.

Sprotafyrirtæki hafi fengið aukna fjárfestingu í kjölfar hátíðarinnar

„Dagskránni í ár er ætlað að draga fram íslenskar áherslur í nýsköpun. Erindi og pallborðsumræður leggja áherslu á heilsutækni, grænar lausnir, fjárfestingar og leikjaiðnaðinn. Við erum ótrúlega spennt að bjóða fyrirlesara frá stærstu tæknifyrirtækjunum í Silicon Valley velkomna ásamt þekktum frumkvöðlum frá heitustu sprotafyrirtækjunum heims. Fulltrúar frá fjölmörgum erlendum fjárfestasjóðum eru einnig væntanlegir til landsins en við sjáum skýra aukningu í sprotafyrirtækjum sem hafa verið að fá erlenda fjárfestingu í kjölfar hátíðarinnar,“ er haft eftir Melkorku Sigríði Magnúsdóttur, listrænum stjórnanda Iceland Innovation Week.

Sjálfbærnivottanir, kynlíf og svefn og glæpagengi í Mexíkó

Dagskráin í heild sinni hafi verið kynnt í morgun en tæplega sjötíu þátttakendur úr sprota og frumkvöðlaheiminum stígi á stokk. Meðal þátttakenda verði Nille Skaltz stofnandi B-Corp sem standi á bakvið bestu sjálfbærnivottanir heims. Anna Lee stofnandi sprotafyrirtækisins Lioness og Erla Björns svefnfræðingur muni ræða áhrif kynlífs og svefns á kvenheilsu. Rafael Barroso, englafjárfestir, muni segja ótrúlega sögu frá því þegar hann flúði glæpagengi í Mexíkó og vann sig upp í stjórnunarstöðu hjá Apple. 

Þá muni Víðir Reynisson frá Almannavörnum taka þátt í pallborðsumræðum ásamt fulltrúum frá HS Orku og Friðriki Guðjónsyni, frumkvöðli. Þar verði rætt hvernig hægt sé að nýta sama hugarfarið í starfi sem viðbragðsaðili annars vegar og stofnandi sprotafyrirtækis hins vegar.

Dagskráin er aðgengileg í heild sinni á heimasíðu hátíðarinnar. Þar er jafnframt hægt að kaupa passa á dagskránna í Kolaportinu. Auk þess fer líkt og áður segir fjöldi hliðarviðburða fram alla vikuna. Þeir eru haldnir í samstarfi við samstarfsaðila hátíðarinnar og frítt er inn á þá.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×