Innlent

Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkis­stjórn“

Árni Sæberg skrifar
Atli Þór Fanndal er nýjasti starfsmaður Pírata.
Atli Þór Fanndal er nýjasti starfsmaður Pírata.

Atli Þór Fanndal, sem hefur undanfarin ár verið framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Transparency International, hefur verið ráðinn samskiptastjóri Pírata. „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn,“ segir hann.

Atli Þór hefur verið formaður Íslandsdeildar Transparency International, alþjóðlegra samtaka með yfirlýst markmið um að berjast gegn spillingu, í slétt tvö ár í dag. Hann lét af störfum þar á dögunum. 

Á meðan hefur hann eðli máls samkvæmt ekki verið flokksbundinn en hann var áður í Pírötum, auk þess að vinna fyrir flokkinn.

Snúinn aftur

Hann sagði sig reyndar úr flokknum árið 2018 í kjölfar átaka innan Pírata. Þá sagðist hann ekki vilja starfa fyrir flokkinn að óbreyttu.

Hann segir í samtali við Vísi að þótt hann hafi ekki verið í Pírötum um nokkurt skeið sé það augljóslega hans flokkur. Því sé hann spenntur fyrir því að hefja störf hjá Pírötum og „hjálpa til í því verkefni að koma ríkisstjórninni frá.“

Fengur að fá Atla í aðdraganda kosninga

Atli Þór var í þann mund að senda frá sér tilkynningu um eigin vistaskipti þegar Vísir náði tali af honum. Í henni segir að hann hafi víðtæka reynslu af fréttamennsku, verkefnastjórnun og ráðgjöf sem varðar stefnumótun og stjórnmál. Atli hafi undanfarin ár starfað hjá Transparency International á Íslandi með fram störfum fyrir Space Iceland sem ráðgjafi fyrir fyrirtæki tengdum geimvísindum, rannsóknum og þróun. 

Hann hafi áður starfað sem blaðamaður meðal annars á DV, Reykjavík vikublaði og Kvennablaðinu auk BBC, The Telegraph, CBC og Der Freitag, svo dæmi séu nefnd. Atli hafi um tíma starfað á skrifstofu Annette Brooke, þingkonu Frjálslyndra Demókrata í Mið-Dorset og Norður Poole í Bretlandi.

„Við erum ótrúlega spennt að fá Atla aftur til liðs við okkur og njóta krafta hans. Við í þingflokknum höfum áður átt gott samstarf í aðdraganda þingkosninga 2017 og við stjórnarmyndunarviðræður sem eftir fylgdu og þekkjum því vel til þess hversu drífandi og atorkusamur hann er. Nú þegar kosningar nálgast á ný er mikill fengur að fá Atla til starfa sem samskiptastjóra þingflokksins,“ er haft eftir Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, þingflokksformanni Pírata.

Fréttin hefur verið uppfærð.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×