Viðskipti innlent

Arnar Már nýr að­stoðar­for­stjóri

Árni Sæberg skrifar
Arnar Már kom að stofnun Play.
Arnar Már kom að stofnun Play. Vísir/Vilhelm

Arnar Már Magnússon hefur verið gerður að aðstoðarforstjóra flugfélagsins Play. Arnar Már hefur verið framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Play og mun áfram sinna þeirri stöðu meðfram nýju hlutverki.

„Sem einn af stofnendum Play er Arnar Már lykilmaður innan félagsins og hans þekking og áralanga reynsla úr flugbransanum mun nýtast okkur afar vel í næstu skrefum. Ég er virkilega þakklátur að hafa hann mér við hlið og sannfærður um að þetta sé mikið heillaskref fyrir félagið,“ er haft eftir Einari Erni Ólafssyni, forstjóra Play, í tilkynningu Play til Kauphallar.

Í kjörstöðu til að gera betur

„Það hefur verið einstakt að fylgjast með Play slíta barnsskónum og nú stöndum við á tímamótum þar sem við erum í kjörstöðu til að gera enn betur. Ég hef stoltur fylgst með samstarfsmönnum vaxa og dafna í gegnum þetta krefjandi ferli að stofna nýtt flugfélag og nú státum við að glæsilegu fyrirtæki sem hefur alla burði til að verða enn betra. Ég er þakklátur því trausti sem mér er sýnt með þessari breytingu og fullur eftirvæntingar að auka hróður Play enn frekar með samstarfsfólki mínu,“ er haft eftir Arnari Má.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×