Innlent

Fram­boð Viktors Traustasonar er gilt

Jón Þór Stefánsson skrifar
Viktor Traustason verður á kjörseðlinum í sumar.
Viktor Traustason verður á kjörseðlinum í sumar. Vísir/Vilhelm

Viktor Traustason verður í framboði til embættis forseta Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landskjörstjórn. Þar kemur fram að kjörstjórn hafi komið saman klukkan fjögur í dag á fjarfundi og úrskurðaði um gildi framboðs hans.

„Eftir að úrskurðarnefnd kosningamála úrskurðaði að Viktori Traustasyni bæri að fá frest til að bæta úr ágöllum á meðmælalistum sínum veitti landskjörstjórn honum 23 tíma frest til þess að bæta úr þeim og rann sá frestur út klukkan 15 í dag,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir að Landskjörstjórn hafi á ný kannað þau meðmæli sem fylgdu framboði Viktors ásamt þeim lagfæringum sem gerðar voru á þeim auk þeirra meðmæla sem síðar bættust við eftir að meðmælasöfnun var opnuð að nýju á vefnum Ísland.is.

„Eftir þá yfirferð hefur landskjörstjórn úrskurðað framboð Viktors Traustasonar til kjörs forseta Íslands gilt.“

Á mánudag var greint frá því að Viktor hefði kært ákörðun Landskjörstjórnar að gera framboð hans ógilt. Hann vildi meina að meðmælalistar hans uppfylltu öll skilyrði. 

Þá sagði hann Landskjörstjórn hafa brotið gróflega gegn jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar þegar nokkrir frambjóðendur fengu helgina til að lagfæra sína undirskriftarlista og safna fleiri undirskriftum, en Viktor fékk ekki slíkan möguleika.

Í gær var greint frá því að úrskurður Landskjörstjórnar hefði verið felldur úr gildi og fékk Viktor tækifæri til klukkan þrjú í dag til að lagfæra meðmælalista sinn.

Í kjöri til forsetaembættisins eru:

Arnar Þór Jónsson, Hegranesi 31, Garðabæ,

Ásdís Rán Gunnarsdóttir, Trönuhjalla 17, Kópavogi,

Ástþór Magnússon Wium, Bretlandi, dvalarstaður Vogaseli 1, Reykjavík,

Baldur Þórhallsson, Starhaga 5, Reykjavík,

Eiríkur Ingi Jóhannsson, Hraunbæ 82, Reykjavík,

Halla Hrund Logadóttir, Snælandi 4, Reykjavík,

Halla Tómasdóttir, Klapparstíg 17, Reykjavík,

Helga Þórisdóttir, Grundarlandi 22, Reykjavík,

Jón Gnarr, Marargötu 4, Reykjavík,

Katrín Jakobsdóttir, Dunhaga 17, Reykjavík,

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Suðurgötu 4, Reykjavík,

Viktor Traustason, Markarflöt 2, Garðabæ.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×