Innlent

„Hel­víti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza

Bjarki Sigurðsson skrifar
Gylfi Arnar Ísleifsson og Þormar Ómarsson eru eigendur Papa's Pizza.
Gylfi Arnar Ísleifsson og Þormar Ómarsson eru eigendur Papa's Pizza. Vísir/Einar

Veitingastaður og bakarí opnuðu á ný í Grindavík í dag. Einn eigenda veitingastaðarins vill opna bæinn fyrir öllum sem vilja koma og losna við lokunarpósta sem gagnist engum.

Frá því að Grindavík var rýmd í nóvember á síðasta ári hefur veitingastaðurinn Papa's Pizza verið lokaður, fyrir utan nokkra daga í janúar áður en nýtt eldgos hófst þann mánuðinn. Í dag var því mikill gleðidagur fyrir eigendur staðarins sem opnuðu dyrnar á ný.

„Sumarið á næsta leyti og það er kominn tími til að spýta í lófana,“ segir Þormar Ómarsson, annar eigenda Papa's Pizza.

Klippa: Pizzaofnarnir í Grindavík komnir aftur í gang

Nákvæmlega, kominn tími til að fara að opna á ný?

„Já, vonandi getum við farið að líta björtum augum til framtíðar í Grindavík.“

Þeir sem eiga erindi í Grindavík geta nú snætt á Papa's Pizza.Vísir/Einar

„Þetta er búið að vera ömurlegt, algjörlega. Við þurfum bara að fara að opna þessa lokunarpósta og fara að opna bæinn. Hætta þessu rugli,“ segir Gylfi Arnar Ísleifsson, einnig eigandi Papa's Pizza.

Fá alla heim aftur?

„Bara þá sem ætla heim. Fá bara fólk í bæinn, þarf ekkert endilega að vera fólk sem bjó hérna. Bara opna bæinn fyrir túristum og öðru þegar það er tilbúið. Losa okkur við þessa lokunarpósta, þeir hafa engan tilgang. Höfum ekkert að gera við þá.“

Vinnustaðahúmorinn hafði ekki gleymst á meðan staðurinn var lokaður og útbjuggu starfsmenn mótmælaskilti fyrir komu fréttastofu. Viðskiptavinirnir voru einnig ánægðir með að geta fengið sér að borða í bænum á ný.

„Þetta er fínt, helvíti fínt,“ segir Hermann Thorstensen Hermannsson, viðskiptavinur Papa's Pizza sem sat og maulaði Pizzu þegar fréttastofu bar að garði.

Pizzuofninn hafði engu gleymt.Vísir/Einar

Ertu að vinna hérna í bænum?

„Já, svona. Ég er út um allt sko.“

En þú ert kominn hingað í dag til að borða á Papa's Pizza?

„Já, heldur betur.“ 

Og vonast þú til þess að fleiri staðir geti opnað?

„Já, það væri auðvitað bara frábært fyrir Grindavík.“

Hérastubbur bakari opnaði dyr sínar einnig á ný í dag og allt í allt starfa um þrjú hundruð manns í bænum dags daglega. Þá er gist í um það bil tuttugu húsum í bænum hverja nóttu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×