Sport

Bach býðst til að synda sjálfur í Signu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Thomas Bach, forseti Alþjóða Ólympíunefndarinnar, með Brittu Heidemann, sem er meðlimur í nefndinni.
Thomas Bach, forseti Alþjóða Ólympíunefndarinnar, með Brittu Heidemann, sem er meðlimur í nefndinni. Getty/Deepbluemedia

Ólympíuleikarnir fara fram í París í sumar og nokkrar af íþróttagreinunum á leikunum eiga að fara fram í ánni Signu sem rennur í gegnum borgina.

Ein af þeim er þríþrautarkeppnin þar sem okkar Guðlaug Edda Hannesdóttir verður vonandi meðal keppenda.

Það hafa aftur á móti verið uppi áhyggjur af því hversu hreint vatnið í Signu sé í raun og veru. Frakkar hafa lagt mikla vinnu og pening í að hreinsa ánna síðustu ár en einhverjar mælingar sína að það hafi ekki tekist alveg nógu vel.

Thomas Bach, forseti Alþjóða Ólympíunefndarinnar, og stjórnmálamenn í Frakklandi keppast hins vegar við það að fullvissa alla um að áin sé hrein og hættulaus.

Hinn sjötugi Bach gekk svo langt að bjóðast til að sýna þetta með því að synda sjálfur í ánni Signu.

„Ég hef ekki fengið boð um það enn en ég myndi elska það að koma og synda í ánni. Ég vona að hún sé ekki of köld,“ sagði Thomas Bach á blaðamannafundi.

Anne Hidalgo, borgarstjóri Parísar, ætlar að synda í ánni ásamt Emmanuel Macron, forseta Frakklands og fleiri háttsettum í Ólympíuhreyfingunni til að sýna það og sanna að öllu íþróttafólkinu sé óhætt að synda í Signu.

Gæði vatnsins í ánni hefur tekið stórtækum framförum á síðustu misserum eftir mikið hreinsunarstarf í tilefni af Ólympíuleikunum.

Signa verður vissulega miðpunktur leikanna en setningarhátíðin fer meðal annars fram á ánni og verður því afar sérstök og óvenjuleg. Ólympíuleikarnir hefjast 26. júlí næstkomandi.

Áin á líka að haldast hrein áfram því frá og með árinu 2025 þá má almenningur synda í Signu á ákveðnum stöðum. Það hefur verið bannað frá árinu 1923.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×