Fótbolti

Girona í fyrsta sinn í Meistara­deild Evrópu og tryggði Real í leiðinni titilinn

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Leikmenn Girona fagna einu af fjórum mörkum sínum í dag.
Leikmenn Girona fagna einu af fjórum mörkum sínum í dag. Pedro Salado/Getty Images

Girona mun leika í Meistaradeild Evrópu í fyrsta skipti á næstu leiktíð en það varð ljóst eftir 4-2 sigur liðsins á Barcelona í La Liga, spænsku úrvalsdeild karla í fótbolta, nú í kvöld. Þar með er ljóst að Börsungar geta ekki náð Real Madríd á toppi deildarinnar og Real því orðið meistari.

Real Madríd vann fyrr í dag öruggan 3-0 sigur á Cádiz og því þurfti Barcelona á sigri að halda til að fresta fagnaðarhöldum Real-liðsins sem átti titilinn þó vísan. Það virðist sem Börsungar hafi verið á þeim buxunum að láta hvítklædda Real-menn bíða örlítið lengur en Andreas Christensen kom gestunum yfir strax á 3. mínútu leiksins.

Það tók Girona þó aðeins tæpa mínútu að jafna metin, það gerði Artem Dovbyk og staðan jöfn 1-1 þegar aðeins fimm mínútur voru liðnar af leiknum.

Gestirnir höfðu nælt sér í þrjú gul spjöld áður en heimamenn gerðust brotlegir innan eigin vítateigs undir lok fyrri hálfleiks. Niðurstaðan var vítaspyrna sem Robert Lewandowski skoraði úr, staðan 1-2 í hálfleik.

Það var svo um miðbik síðari hálfleiks sem heimamenn sneru leiknum algjörlega við. Portu kom inn af bekknum og gerbreytti leiknum. Hann jafnaði metin á sömu mínútu og hann kom inn á eftir undirbúning Dovbyk á 65. mínútu. Aðeins tveimur mínútum síðar lagði Portu boltann á Miguel Gutiérrez og staðan orðin 3-2 Girona í vil.

Á 74. mínútu var Portu svo aftur á ferðinni með sitt annað mark í leiknum og staðan orðin 4-2. Reyndust það lokatölur og gríðarleg fagnaðarlæti brutust út hjá heimaliðinu sem og víðsvegar um Madríd.

Þegar 34 umferðir eru búnar í La Liga er Real Madríd orðið Spánarmeistari með 87 stig. Þar á eftir kemur Girona með 74 stig, Barcelona með 73 og Atlético Madríd með 67 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×