Lífið

Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Margt var um manninn á opnuninni. 
Margt var um manninn á opnuninni.  Sigurjón Ragnar

Katrín Jakobsdóttir forsetaframbjóðandi opnaði dyrnar að kosningamiðstöð sinni við Tryggvagötu 21 í dag. Fjöldi fólks lét sjá sig. 

Boðið var upp á grillmat, kaffi og bakkelsi og skemmtiatriði. Sigga Eyrún og Kalli Olgeirs fluttu tónlist, Einar Aron töframaður skemmti börnunum og Katrín ávarpaði gesti.

„Mér þótti afar vænt um þessa stund í dag og gaman var að sjá hve mörg mættu. Ég er sérstaklega þakklát öllum þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem undirbjuggu þessa frábæru stund í dag með bakstri, skreytingum og svo að standa vaktina á meðan á gleðinni stóð!“ er haft eftir Katrínu í fréttatilkynningu. 

Embættismenn úr nokkrum stjórnmálaflokkum auk fólks víða úr menningarlífinu sýndu Katrínu stuðning með því að mæta á opnunina. Myndir má sjá hér að neðan. 

Ásmundur Einar Daðason barna- og skólamálaráðherra mætti ásamt Sunnu Birnu Helgadóttur, eiginkonu sinni. Sigurjón Ragnar
Katrín flutti ávarp.Sigurjón Ragnar
Brynhildur Guðjónsdóttir Borgarleikhússtjóri og hundurinn Lotta létu sjá sig.Sigurjón Ragnar
Brynja Dan athafnakona og bæjarfulltrúi Framsóknar í Garðabæ mætti. Sigurjón Ragnar
Það var fýrað upp í grillinu. Sigurjón Ragnar
Katrín og Gunnar Sigvaldason eiginmaður hennar. Sigurjón Ragnar
Útvarpsmaðurinn Ágúst Beinteinn kíkti við. Sigurjón Ragnar
Mörg hundruð manns mættu.Sigurjón Ragnar
Ármann Jakobsson bróðir Katrínar var þarna líka.Sigurjón Ragnar
Sigga Eyrún og Kalli Olgeirs fluttu tónlistaratriði. Sigurjón Ragnar
Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra sýndi fyrrverandi flokkssystur sinni stuðning. Sigurjón Ragnar
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir þingkona Viðreisnar og Ragnar Kjartansson myndlistamaður létu líka sjá sig.Sigurjón Ragnar
Og það var stemning. Sigurjón Ragnar





Fleiri fréttir

Sjá meira


×