Sport

Dag­skráin í dag: Stúkan, Körfu­bolta­kvöld, Lög­mál leiksins og stór­leikir

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Njarðvík getur komist í úrslit Subway-deildar kvenna.
Njarðvík getur komist í úrslit Subway-deildar kvenna. vísir/bára dröfn

Það er að venju nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag. Alls eru 9 beinar útsendingar á dagskrá.

Stöð 2 Sport

Klukkan 19.00 hefst útsending frá Kópavogsvelli þar sem Breiðablik mætir Val í stórleik helgarinnar í Bestu deild karla. Klukkan 21.20 er Stúkan á dagskrá. Þar verður farið yfir 5. umferð Bestu deildar karla.

Stöð 2 Sport 2

Klukkan 20.00 er Lögmál leiksins á dagskrá. Þar verður farið yfir það helsta sem hefur gerst í NBA-deildinni í körfubolta undanfarna viku en úrslitakeppni deildarinnar er nú í gangi.

Stöð 2 Sport 3

Klukkan 15.50 er leikur Salernitana og Atalanta í Serie A, ítölsku úrvalsdeild karla í fótbolta, á dagskrá. Klukkan 18.35 er komið að leik Udinese og Napolí í sömu deild.

Stöð 2 Sport 4

Klukkan 18.50 er leikur Lille og Lyon í frönsku úrvalsdeild karla í fótbolta á dagskrá. Hákon Arnar Haraldsson er leikmaður Lille.

Stöð 2 Sport 5

Klukkan 18.45 mætast Grindavík og Njarðvík í undanúrslitum Subway-deildar kvenna í körfubolta. Njarðvík er einum sigri frá því að tryggja sér sæti í úrslitum.

Klukkan 21.00 er Körfuboltakvöld kvenna á dagskrá.

Vodafone Sport

Klukkan 17.25 er leikur Nürnberg og RB Leipzig í þýsku úrvalsdeild kvenna í fótbolta á dagskrá. Selma Sól Magnúsdóttir er leikmaður Nürnberg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×