Innlent

Viðræður „á við­kvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Stéttarfélög flugvallastarfsmanna og Samtök atvinnulífsins funduðu með ríkissáttasemjara í Karphúsinu í dag.
Stéttarfélög flugvallastarfsmanna og Samtök atvinnulífsins funduðu með ríkissáttasemjara í Karphúsinu í dag. Vísir/Vilhelm

Fundi stéttarfélaga starfsmanna á Keflavíkurflugvelli og Samtaka atvinnulífsins með ríkissáttasemjara hefur verið frestað til morguns. 

Stéttarfélögin og Samtök atvinnulífsins gengu til fundar ríkissáttasemjara í hádeginu. Þórarinn Eyfjörð formaður Sameykis sagðist bjartsýnn þegar fréttamaður náði tali af honum á leiðinni á fundinn. Þá sagði hann koma til greina að fresta fyrirhuguðum verkfallsaðgerðum ef hann myndi skynja góðan samningsvilja hjá samningamönnum.

Á sjöunda tímanum barst fréttastofu heimildir um að búist væri við að fundurinn drægist á langinn. Í samtali við Vísi á elleta tímanum sagði Þórarinn að viðræður væru á viðkvæmu stigi og að fundinum væri frestað til klukkan níu í fyrramálið. Frestunina staðfesti Aldís Magnúsdóttir sáttasemjari sömuleiðis í samtali við fréttastofu. 

Að öllu óbreyttu hefjast aðgerðir á Keflavíkurflugvelli síðdegis á fimmtudaginn og koma til með að valda talsverðu raski á flugi. Aðgerðirnar munu koma til framkvæmda kl. 16:00 á fimmtudaginn og verða með eftirfarandi hætti:

  • Frá kl. 16:00 fimmtudaginn 9. maí 2024 hefst ótímabundið yfirvinnubann. Yfirvinnubannið nær til allra félagsmanna Sameykis og FFR.
  • Frá kl. 16:00 fimmtudaginn 9. maí 2024 hefst ótímabundið þjálfunarbann. Þjálfunarbann tekur til félagsfólks Sameykis og FFR sem starfar sem leiðbeinandi og vottaður leiðbeinandi á gólfi.
  • Á tímabilinu frá kl. 04:00-08:00, föstudaginn 10. maí 2024, mun starfsfólk sem sinnir öryggisleit á Keflavíkurflugvelli leggja niður störf sín.
  • Á tímabilinu frá kl. 04:00-08:00, fimmtudaginn 16. maí 2024, mun starfsfólk sem sinnir öryggisleit á Keflavíkurflugvelli leggja niður störf sín.
  • Á tímabilinu frá kl. 04:00-08:00, föstudaginn 17. maí 2024, mun starfsfólk sem sinnir öryggisleit á Keflavíkurflugvelli leggja niður störf sín.
  • Á tímabilinu frá kl. 04:00-08:00, mánudaginn 20. maí 2024, mun starfsfólk sem sinnir öryggisleit á Keflavíkurflugvelli leggja niður störf sín.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Viðurkennir að hafa gengið of hart fram

Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, segir að öflugt umbótastarf í vinnuanda á skrifstofunni hafa gengið vel og að félagið sé á réttri leið. Óánægju hefur gætt meðal stafsmanna félagsins, meðal annars með framgöngu Þórarins.

Frestun verkfalla kemur til greina

Formaður Sameykis segir koma til greina að fresta verkfallsaðgerðum á Keflavíkurflugvelli. Hann fer bjartsýnn til fundar hjá ríkissáttasemjara og telur að mögulega verði hægt að ljúka samningum áður en aðgerðirnar skella á.

Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu

Ríkissáttasemjari hefur boðað stéttarfélög starfsmanna á Keflavíkurflugvelli og Samtök atvinnulífsins á fund í Karphúsinu á hádegi. Að óbreyttu hefjast aðgerðir á flugvellinum að síðdegis á fimmtudag.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×