Sport

Luku hundrað ára bið Noregs og það bitnaði á þjálfurunum

Sindri Sverrisson skrifar
Gleðin var ósvikin hjá norsku hlaupakonunum þegar ólympíufarseðillinn var í höfn, og ekki síður þegar þær fengu að gera upp veðmálið við þjálfarana sína.
Gleðin var ósvikin hjá norsku hlaupakonunum þegar ólympíufarseðillinn var í höfn, og ekki síður þegar þær fengu að gera upp veðmálið við þjálfarana sína. Instagram/@lakeriertzgaard

Þrátt fyrir að hafa ekki unnið þá fögnuðu fjórar norskar hlaupakonur allra mest á HM í boðhlaupi á Bahamaeyjum um helgina, þegar þær unnu sér sæti á Ólympíuleikunum í París í sumar.

Heil öld er liðin síðan að Noregur átti síðast sveit í boðhlaupi á Ólympíuleikum og það var því góð ástæða fyrir þær Josefine Tomine Eriksen, Amalie Iuel, Lakeri Ertzgaard og Henriette Jæger að fagna áfanga sínum um helgina.

Þær náðu 2. sæti í sínum riðli, á 3:26,89 mínútum, með því að hafa betur í jafnri baráttu við Belgíu, og þar með voru þær komnar inn á ÓL. Bandaríkin unnu riðilinn af öryggi.

Norska sveitin bætti landsmet og hún bætti það svo á ný í úrslitahlaupinu þegar hún varð í 5. sæti, á 3:26,88, en aðalánægjan fólst í því að hafa unnið sér inn farseðilinn til Parísar.

Stelpurnar höfðu þó einnig mikla ánægju af því að vinna veðmál sem þær höfðu gert við þjálfarann Unn Merete Lie Jæger, og íþróttastjórann Erlend Slokvik.

„Eigum við að segja frá því sem við notuðum aukalega til að gíra okkur upp?“ spurði Ertzgaard létt og útskýrði svo:

„Við vorum með veðmál við Unn Merete og Erlend um að ef við tryggðum okkur inn á Ólympíuleikana á fyrsta degi þá mættum við lita hárið þeirra bleikt.“

Og það gerðu þær, rétt áður en þær hlupu svo úrslitahlaupið á enn betri tíma en áður.

„Ég er ótrúlega stolt af liðinu og því sem við gerðum hérna. Við komum til Bahama til að ná í hóp 12 bestu og komast á Ólympíuleikana, en förum héðan sem þær fimmtu bestu í heimi,“ sagði Iuel við VG.

Bandaríska sveitin vann úrslitahlaupið á 3:21,70 mínútum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×