Innlent

Segir við­mælendur sitja undir hótunum netaktív­ista

Jakob Bjarnar skrifar
Frosti Logason telur ljóst að baráttan gegn ofbeldi hafi breyst í hreint og klárt ofbeldi. 
Frosti Logason telur ljóst að baráttan gegn ofbeldi hafi breyst í hreint og klárt ofbeldi.  vísir/vilhelm

Frosti Logason hlaðvarpsstjóri segir baráttuna gegn ofbeldi hafa snúist upp í ranghverfu sína. Hópar sem hafa látið sig þessi mál varða, netakvívistar á borð við þá sem ráða á för í hópum á borð við „Baráttuhópur gegn ofbeldismenningu“ stundi það að veitast að viðmælendum hans.

Þar hafa einhverjir meðlima hópsins talað um að kjósa ekki frambjóðendur sem fara í viðtöl hjá Frosta og reyndar Sölva Tryggvasyni einnig. Sumir meðlimir halda bókhald yfir þá sem þangað hafa farið í viðtal.

„Ók. Dæmi alla forsetaframbjóðendur sem mæta í hlaðvarpið hans [Frosta]. Hvað eruð þið að gera?? Jón Gnarr og Helga Þórisdóttir hafa mætt til hans", gæti verið dæmi um slíkt.

Frosta er brugðið. 

„Nýlega hef ég orðið var við að hópur ofstækisfólks sé farinn að ráðast að viðmælendum mínum á hlaðvarpsveitunni Brotkast.is en núna eru tvö ár liðin síðan reynt var að slaufa mér sjálfum með skipulögðu átaki. Til þess voru notuð áratugs gömul samskipti mín, eftir sambandsslit, við fyrrverandi kærustu.“

Vilja stimpla Frosta sem ofbeldismann

Þetta fer fram með skipulegum hætti en Frosti hefur rætt við nokkra úr þeim hópi sem sækjast eftir embætti forseta Íslands.

„Í barnslegri einlægni minn taldi ég í upphafi að um væri að ræða tímabært uppgjör á erfiðum tilfinningum. Mín fyrstu viðbrögð voru því að bjóða fram sáttarhönd og gæta þess að benda ekki fingri á neinn annan en sjálfan mig.“

En fljótlega kom í ljós að um ekkert slíkt væri að ræða. 

„Áhersla var lögð á að gera mig ómarktækan og atvinnulausan. Til þess var dregin upp sú mynd af mér að ég væri ofbeldismaður. Í fyrstu taldi ég nóg að ég sjálfur vissi betur og fólkið sem mig þekkir. Ég hafði heldur engan áhuga á að fara opinbera einhver prívatmál úr löngu liðinni fortíð.“

Sambandsslitin enn til athugunar

Frosti segir mál að linni en þessi hópar ráðast að viðmælendum hans fyrir það eitt að mæta til hans í viðtöl. Hann hefur orðið var við að hik sé komið á suma viðmælendur. Frosti hefur því ákveðið að tímabært sé að hlustendur hans heyri alla sólarsöguna, það er hvernig þessi sambandsslit gengu fyrir sig af hans hálfu.

„Ég held að lang flest okkar hafi einhvern tíman á lífsleiðinni troðið einhverjum öðrum um tær. Þannig hafa eflaust margir framið einhvers konar ofbeldi ómeðvitað eða óvart. En það er orðið sérlega óheppilegt þegar við erum farin að beita ofbeldi í þágu sjálfrar baráttunnar gegn ofbeldi.“

Frosti verður í ítarlegu viðtal við Einkalíf Vísis á fimmtudaginn og mun líklega koma inn á þetta þar meðal annars..



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×