Körfubolti

Áflogaseggir fá ekki að mæta aftur á völlinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mörgum var heitt í hamsi eftir leikinn í Keflavík.
Mörgum var heitt í hamsi eftir leikinn í Keflavík. vísir/hulda margrét

Það sauð upp úr í Keflavík um helgina er heimamenn tryggðu sér ævintýralegan sigur á Grindavík í undanúrslitum Subway-deildar karla.

Keflavík skoraði þriggja stiga körfu um leið og flautan gall og tryggði sér þannig sigur. Spennustigið í húsinu var hátt og áflog brutust út í kjölfar sigurkörfunnar. Átökin voru þó aðallega innbyrðis hjá stuðningsmannasveitunum. Gæslumenn náðu þó fljótt stjórn á aðstæðum.

Þessi hegðun hefur þó dregið dilk á eftir sér og bæði félög munu líklega setja ákveðna stuðningsmenn í bann frá því að mæta á fleiri leiki.

Keflvíkingar staðfestu við íþróttadeild að einhverjir stuðningsmenn liðsins myndu fara í bann og eru því ekki velkomnir á fleiri leiki í vetur. Körfuknattleiksdeildin mun funda seinni partinn um málið.

Grindvíkingar hafa sömuleiðis verið að vinna í málinu og segja að það verði einhverjar afleiðingar vegna hegðunar ákveðinna stuðningsmanna.

Klippa: Hiti í Keflavík

Hannes Jónsson, framkvæmdastjóri KKÍ, segir að það verði ekki frekari eftirmálar af hálfu Körfuknattleikssambandsins.

„Þetta er ekki á borði KKÍ. Það er hrós á félögin hvað þetta var tæklað vel á staðnum. Bæði öryggisverðir og aðrir frá félögunum stóðu sig rosalega vel að gera það sem hægt var að gera til að róa mannskapinn niður. Eftirlitsmaður og aðrir voru ánægðir með hvernig var staðið að því að klára þetta,“ segir Hannes.

„Þetta sýnir hvað hitinn er mikill og að fólk þarf að passa sig. Þetta er íþróttaleikur og að sjálfsögðu á að berjast á vellinum en svona á auðvitað alls ekki að líðast. Það var farið mjög hratt í þetta til að lágmarka þann skaða sem var orðinn. Félögin tækluðu þetta mjög vel og þetta var afgreitt á staðnum. Við hvetjum til þess að það verði áfram góð öryggisgæsla og að áhorfendur hagi sér.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×