Skoðun

Katrínu sem for­seta

Stefán Friðrik Stefánsson skrifar

Embætti forseta Íslands er alltaf í mótun. Mikilvægt embætti þegar á reynir. Það sást vel á örlagatímum í forsetatíð Kristjáns Eldjárn og Ólafs Ragnars Grímssonar. Þjóðhöfðinginn þarf að skynja hjartslátt þjóðar, hafa sannfæringu, kraft og þor jafnt á ljúfum stundum og þegar móti blæs. Það er ómetanlegt fyrir lýðræðið að geta valið úr fjölda frambjóðenda með ólíkan bakgrunn og lífsreynslu í forsetakosningum. Katrín Jakobsdóttir er hiklaust þar fremst meðal jafningja að mínu mati.

Katrín hefur í senn þá reynslu og reisn sem hæfir embættinu. Hef alltaf borið virðingu fyrir Katrínu eftir að leiðir okkar lágu saman í ungliðapólitíkinni fyrir ólíka flokka í byrjun aldarinnar. Hún var einfaldlega þannig gerðar að bera af í hópi stjórnmálamanna í ungliðastarfinu með látlausri reisn. Þrátt fyrir ólíkar skoðanir hef ég alltaf borið mikið traust til hennar og borið virðingu fyrir hennar verkum í stjórnmálastarfi. Það á nefnilega að vera hægt að bera virðingu fyrir andstæðingum sínum og hlusta á ólík sjónarmið. Það er eiginleiki sem allir þurfa að tileinka sér til að ná árangri.

Katrín varð forsætisráðherra í þriggja flokka stjórn sem fáir spáðu langlífi en reyndist heilladrjúg og öflug þegar á reyndi. Forysta hennar og samstarfshæfileikar höfðu mikið um það að segja. Hún leiddi þá stjórn af myndugleik við krefjandi aðstæður í íslensku samfélaginu í gegnum heimsfaraldur og önnur úrlausnarefni. Fáum hefði auðnast að halda betur við stýrið á þjóðarskútunni í þeim ólgusjó. Hún er einfaldlega kona sátta á milli ólíkra sjónarmiða sem leiddi saman ólíkar fylkingar og náði farsælum árangri í samstarfi við ólíka flokka, innan og utan stjórnar.

Katrín er líka hugrökk og hvetjandi. Það sást vel þegar á reyndi í samfélagsumræðunni á krefjandi tímum. Slíkur eiginleiki er mikils virði í forsetaembættinu. Hún hefur ríka réttlætiskennd og alltaf talað af virðingu og reisn til þeirra sem hafa verið henni ósammála - með því hafið sig yfir átök af ýmsu tagi svo eftir hefur verið tekið.

Ég treysti engum betur en Katrínu til að sinna forsetavaktinni með sóma. Hún hefur staðið í storminum með miklum sóma gegnum árin. Kona reynslu, yfirvegunar og þekkingar á aðstæðum í samfélaginu sem mun standa sig með sóma í forsetahlutverkinu. Kona sem við getum treyst til að vera fulltrúi okkar á alþjóðavettvangi hér eftir sem hingað til.

Höfundur er varaformaður Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×