Innlent

Stóra stundin að renna upp: Bjart­sýn en með báða fætur á jörðinni

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Séra Guðrún er sóknarprestur í Grafarvogskirkju og séra Guðmundur Karl er sóknarprestur í Lindakirkju. Fréttastofa tók púlsinn á þeim báðum í kvöld. 
Séra Guðrún er sóknarprestur í Grafarvogskirkju og séra Guðmundur Karl er sóknarprestur í Lindakirkju. Fréttastofa tók púlsinn á þeim báðum í kvöld. 

Eftir hádegi á morgun kemur í ljós hver fimmtándi biskup Íslands verður. Valið stendur milli Guðrúnar Karls Helgudóttur og Guðmundar Karls Brynjarssonar. Í samtali við fréttastofu segja þau tilfinninguna góða en þora ekki að spá fyrir um hver fari með sigur úr býtum.

Efna þurfti til annarrar umferðar biskupskjörs eftir að atkvæði úr fyrstu umferð féllu þannig að enginn frambjóðendanna þriggja, Guðmundar, Guðrúnar og Elínborgar Sturludóttur sóknarprests í dómkirkjunni, hlaut meiri hluta atkvæða. Guðrún hlaut 45,97 prósent atkvæða, Guðmundur Karl 28,11 prósent og Elínborg Sturludóttir 25,48 prósent.

Á fimmtudaginn hófst önnur umferð kjörsins þar sem kosið er milli Guðrúnar og Guðmundar. Kosningunni lýkur á hádegi á morgun og segir Guðrún í samtali við Vísi að þau fái líklegast að vita um hálfeittleytið hver vinnur hið margumtalaða biskupskjör. 

Fréttamaður náði tali af þeim báðum og spurði hvernig þau væru stemmd fyrir stóra deginum. 

„Tilfinningin er mjög góð og ég finn mikinn meðbyr. En þó er aldrei að vita hvernig fer fyrr en búið er að telja,“ segir Guðrún. Hún segir vel hafa gengið í kosningabaráttunni en hún sé alls ekki sigurviss.

„En það gengur vel og ég er mjög sátt við þann gríðarlega stuðning sem ég hef fengið,“ segir Guðrún. Hún sé ánægð með hversu vel kjörið hafi farið fram.

Guðmundur Karl fór hringinn

Guðmundur Karl tekur í sama streng. „Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt og ekki síst síðustu dagana,“ segir hann og að hann hafi varið síðustu dögum í hringferð um landið þar sem hann hefur heimsótt kirkjunnar fólk um land allt. Mikil stemning hafi fylgt kosningabaráttu hans. 

„Ég er rólegur, bíð rólegur eftir niðurstöðum og er með báða fætur á jörðinni,“ segir Guðmundur.

Hann segir ómetanlega skemmtilega lífsreynslu að finna hjartsláttinn í kirkjunni úti á landi. Hann sé öðruvísi á landsbyggðinni en í höfuðborginni á ýmsan hátt, en meðal annars að því leyti að víða á minni stöðum sé ekki boðið upp á sálfræðiþjónustu og kirkjan því eina sálgæsluúrræðið.

Kosningunni lýkur klukkan tólf á morgun og eins og áður segir kemur að öllum líkindum í ljós skömmu síðar hver næsti biskup þjóðarinnar veður. 


Tengdar fréttir

Kjósa þarf aftur til biskups

Kjósa þarf aftur á milli þeirra Guðrúnar Karls Helgudóttur og Guðmundar Karls Brynjarssonar vegna þess að ekki fékkst meirihluti í atkvæðagreiðslu sem lauk í dag í biskupskjöri. Kosið verður aftur þann 2. maí. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×