Erlent

Ferðamannastaðir Fær­eyja lokaðir vegna við­halds

Kristján Már Unnarsson skrifar
Lokað vegna viðhalds. Þetta skilti blasti við ferðamönnum á fjörukambinum í þorpinu Tjørnuvík á Straumey.
Lokað vegna viðhalds. Þetta skilti blasti við ferðamönnum á fjörukambinum í þorpinu Tjørnuvík á Straumey. Egill Aðalsteinsson

Helstu ferðamannastaðir Færeyja voru lokaðir í þrjá daga í síðustu viku vegna viðhalds. Eitthundrað sjálfboðaliðar frá tugum landa unnu á meðan við að lagfæra göngustíga, girðingar og þess háttar, verkefni sem sexþúsund manns úr öllum heimshornum sóttu um að fá að taka þátt í.

Í fréttum Stöðvar 2 var farið til Færeyja. Þorpið Tjørnuvík á Straumey þykir spennandi staður fyrir ferðmenn að heimsækja. Í fjörukambinum, við hliðina á hjólbörum, skóflum og hrífum, mætti þeim hins vegar skilti með áletruninni „Closed for Maintenance”, eða „Lokað vegna viðhalds”. Hér var í gangi verkefni Ferðamálastofu Færeyinga sem vakið hefur alþjóðaathygli.

Guðrið Højgaard er framkvæmdastjóri Visit Faroe Islands.Egill Aðalsteinsson

„Átak sem við hófum árið 2019 þegar heimurinn tókst á við offjölgun ferðamanna. Þá vildum við færa umræðuna á það stig að ekki yrði litið á ferðamenn sem vandamál heldur sem hluta af lausninni,” segir Guðrið Højgaard, framkvæmdastjóri Visit Faroe Islands.

Í hópi eitthundrað sjálfboðaliða sem komust að eru tveir Íslendingar. Annar þeirra, Hrafnhildur Ævarsdóttir, er þjóðgarðsvörður í Vatnajökulsþjóðgarði.

„Já, ég tók mér frí úr vinnunni í náttúruvernd og kom yfir til Færeyja til að fara í náttúruvernd,“ segir Hrafnhildur.

Hrafnhildur Ævarsdóttir, þjóðgarðsvörður í Vatnajökulsþjóðgarði, var í hópi sjálfboðaliða í Færeyjum.Egill Aðalsteinsson

Viðhaldsverkefnin í ár voru á átta stöðum á sex eyjum og stóðu yfir í þrjá daga.

„Sumir eru í göngustígum. Það er verið að hlaða veggi, laga girðingar. Ég er að setja upp svona tröppur og stiga. Þannig að þetta er svona sitt lítið af hverju,“ segir Hrafnhildur.

„Þau koma öll til að vinna sem sjálfboðaliðar og greiða sjálf ferðakostnað sinn til Færeyja. Svo greiðum við fyrir fæði og húsnæði og það er frábært að fólk sé tilbúið að gera þetta,” segir Guðrið.

Frá Saksun á Straumey.Egill Aðalsteinsson

„Það er náttúrlega einstakt að fá að heimsækja Færeyjar og mjög margir sem vilja koma. Það voru einhverjar þúsundir sem sóttu um í ár. Ætli það séu ekki hundrað sem komast að,“ segir Hrafnhildur.

„Núna voru það sex þúsund manns sem sóttu um þannig að þetta eru þúsundir manna. Fólk vill gjarnan láta gott af sér leiða. Það vill skilja eitthvað jákvætt eftir sig,” segir Guðrið.

En verða ferðamenn ekki svekktir að koma að lokuðum stöðum?

„Nei, nei. Mjög margir þakka okkur fyrir þetta,“ svarar Hrafnhildur.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Ísland ekki rústir einar eftir ferðamenn

Ísland er ekki rústir einar líkt og skilja má á viðbrögðum fólks við frétt þess efnis að Færeyingar ætli að loka eyjunum sínum vegna viðhalds eina helgi í apríl næstkomandi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×