Körfubolti

Riley sagði Butler að halda kjafti og lofaði honum ekki nýjum samningi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jimmy Butler ásamt Pat Riley þegar hann kynntur sem leikmaður Miami Heat 2019.
Jimmy Butler ásamt Pat Riley þegar hann kynntur sem leikmaður Miami Heat 2019. getty/Michael Reaves

Pat Riley, forseti Miami Heat, gaf Jimmy Butler engan afslátt á blaðamannafundi í gær, sagði að hann ætti að loka þverrifunni á sér og yrði spila meira ef hann vildi fá nýjan samning hjá félaginu.

Talið er Butler muni óska eftir nýjum tveggja ára samningi við Miami í sumar. Á blaðamannafundinum sagðist Riley ekki vita hvað félagið myndi gera þegar kæmi að málum Butlers.

„Við höfum ekki rætt það innanhúss núna. Við verðum að skoða hvort við ætlum að skuldbinda okkar og hvenær. Við þurfum ekki að gera það fyrr en 2025. En þetta kemur í ljós. Við höfum ekki tekið ákvörðun og þetta hefur hreinlega ekki verið rætt,“ sagði Riley.

Butler verður 35 ára í september og hefur misst af hundrað leikjum í deildarkeppninni síðan hann kom til Miami fyrir fimm árum. Hann gat ekki spilað með Miami í einvíginu gegn Boston Celtics í 1. umferð úrslitakeppninnar í ár vegna meiðsla. Riley hrósaði Butler í hástert á blaðamannafundinum og sagði hann frábæran leikmann en vill sjá hann oftar inni á vellinum.

„Þetta er stór ákvörðun fyrir okkur að skuldbinda okkur svona nema þú hafir einhvern sem er klár hvert einasta kvöld,“ sagði Riley.

Um síðustu helgi sagði Butler að ef hann væri að spila myndi Miami vinna Boston og New York Knicks. Riley var ekki sáttur með þau ummæli.

„Ég hugsaði hvort Jimmy væri sprella eða hvort honum væri alvara? Ef þú ert ekki inni á vellinum og að spila gegn Boston og Knicks ættirðu að halda kjafti og sleppa því að gagnrýna þessi lið,“ sagði Riley.

Hann hefur verið forseti Miami síðan 1995. Riley var einnig þjálfari liðsins um tíma og gerði það að meisturum 2006.

Í vetur var Butler með 20,8 stig, 5,3 fráköst og 5,0 stig að meðaltali í leik. Hann kom til Miami 2019 og síðan þá hefur liðið tvívegis komist í úrslit NBA.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×