Innlent

„Við þurfum ekki að verjast neinu“

Árni Sæberg og Heimir Már Pétursson skrifa
Drífa Hjartardóttir, forseti kirkjuþings, séra Guðrún Karls Helgudóttir og frú Agnes M. Sigurðardóttir.
Drífa Hjartardóttir, forseti kirkjuþings, séra Guðrún Karls Helgudóttir og frú Agnes M. Sigurðardóttir. Vísir/Vilhelm

Séra Guðrún Karls Helgudóttir, sem var kjörin biskup Íslands í dag, segist vilja leiða öfluga Þjóðkirkju. Hún muni beita sér fyrir því að meðlimum kirkjunnar fækki ekki.

Séra Guðrún Karls Helgudóttir var í dag kjörin biskup Íslands. Kosið var milli hennar og Guðmundar Karls Brynjarssonar. Guðrún tekur við af Agnesi M. Sigurðardóttur sem hefur gegnt embættinu síðan árið 2012.

Fréttamaður ræddi við hana í Biskupsstofu eftir að niðurstöður biskupskjörs voru kunngjörðar eftir hádegi í dag. „Ég á eiginlega ekki orð yfir þakklæti. Ég er hrærð. Þakklát öllu kirkjufólki sem kaus mig,“ segir hún.

Sátt með breytingar undanfarinna ára

Frú Agnes M. Sigurðardóttir, sem séra Guðrún leysir af hólmi þann 1. september, sagði í hádegisfréttum að hún væri ánægð með þær breytingar sem urðu á Þjóðkirkjunni á þeim tíma sem hún var biskup.

Séra Guðrún segist sátt við þær breytingar að allmestu leyti, enda hafi hún setið á kirkjuþingi og tekið þátt í breytingunum

„Mér líst vel á þá kirkju sem ég mun taka við að leiða. Ég er líka ákaflega þakklát Agnesi fyrir að hafa rutt brautina. Nú er búið að kjósa konu númer tvö til að leiða íslensku þjóðkirkjuna, og það er ekki síst Agnesi Sigurðardóttur að þakka, sem hefur verið biskup Íslands, og Sólveigu Láru [Guðmundsdóttur], sem var fyrsti vígslubiskupinn.

Séra Guðrún Karls Helgudóttir nýkjörinn biskup Íslands, og Agnes M. Sigurðardóttir fráfarandi biskupVísir/Vilhelm

Kirkjan eigi fullt erindi

Séra Guðrún segir að erindi Þjóðkirkjunnar eigi alltaf við. Erindið sé alltaf kærleikur Guðs.

„Við erum elskuð af Guði og trúin á Guð, trúin á almættið og hinn æðsta kærleika á alltaf við í samfélaginu. Auk þess sem Jesús Kristur og hans erindi, það klikkar aldrei.“

Þá segir hún að hún vilji leiða kirkju sem er í sókn, að kirkjan sé eingöngu í sókn, ekki í vörn.

„Við þurfum ekki að verjast neinu. Raunverulegar úrsagnir úr Þjóðkirkjunni undanfarin ár hafa ekki verið svo margir en okkur munar um hverja og eina og einustu manneskju. Ég býð þau öll velkomin í Þjóðkirkjuna og ég mun gera það sem í mínu valdi stendur til þess að okkur fækki ekki enn meira, þó að við vitum ekki hvað framtíðin ber í skauti sér, og reyna að fá þau til baka sem hafa meðvitað sagt sig úr þjóðkirkjunni en vilja þó kannski einhvers staðar innst inni tilheyra henni.“

Séra Guðrún Karls HelgudóttirVísir/Vilhelm

Búið að skilja að eins mikið og hægt er

Séra Guðrún segir að hún líti svo á að þjóðkirkja eigi enn erindi í íslensku samfélagi. 

„Vegna þess að í stjórnarskránni þá segir að það eigi að vera þjóðkirkja á Íslandi. Það er ekkert langt síðan það var samþykkt. Á sama tíma er ég hlynnt því að það séu sem allra, allra minnst tengsl milli ríkis og kirkju. Vegna þess að ég tel að það sé engri kirkju heilbrigt að vera of nálægt ríkinu. En við erum búin að skilja að ríki og kirkju eins mikið og mögulegt er einmitt núna.“


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×