Fótbolti

Stolni gullhnöttur Maradona boðinn upp

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Diego Maradona með verðlaun sín sem besti leikmaður HM í Mexíkó 1986. Þessi gullhnöttur verður nú boðinn upp.
Diego Maradona með verðlaun sín sem besti leikmaður HM í Mexíkó 1986. Þessi gullhnöttur verður nú boðinn upp. Getty/Jean-Jacques BERNIER

Það er í tísku að bjóða upp muni sem eru tengdir knattspyrnugoðinu Diego Armando Maradona og nú berast fréttir af öðru slíku uppboði.

Maradona átti magnað heimsmeistaramót í Mexíkó sumarið 1986 og það er erfitt að halda öðru fram en þetta sé besta heimsmeistarakeppni eins leikmanns í fótboltasögunni.

Maradona skoraði fimm mörk og gaf fimm stoðsendingar í sjö leikjum Argentínu á mótinu, skoraði bæði mörkin í átta liða úrslitunum og undanúrslitunum auk þess að leggja upp sigurmarkið í úrslitaleiknum.

Það þarf því ekki að koma neinum á óvart að Maradona fékk gullhnöttinn fyrir að vera valinn besti leikmaður keppninnar. Þetta var í annað skiptið sem slík verðlaun voru afhent en Paolo Rossi fékk þau fyrst fjórum árum fyrr.

Það vissu hins vegar færri af því að þessum gullhnetti var stolið úr verðlaunasafni Maradona á sínum tíma. Gullhnötturinn hefur nú dúkkað upp og verður boðinn upp á uppboði á vegum Aguttes uppboðshússins.

Uppboðið fer fram í Frakklandi 7. júní næstkomandi.

Maradona lést árið 2020. Þetta er langt frá því að vera fyrsta uppboðið á munum Maradona frá þessari eftirminnilegu heimsmeistarakeppni.

Keppnistreyjan og keppnisboltinn frá leik Argentínu í átta liða úrslitunum á móti Englandi voru bæði boðin upp á dögunum. Maradona skoraði tvívegis í leiknum á móti Englendingunum, fyrst með hendi guðs og svo með því að leika á hálft enska landsliðið frá miðju vallarins.

Franska blaðið L'Equipe sagði frá því að gullhnetti Maradona hafi verið stolið en hann svo komið aftur í leitirnar. Það hefur nú verið staðfest að þetta sé hinn rétti gullhnöttur frá HM 1986.

Það á eftir að koma í ljós hvað safnarar eru tilbúnir að greiða fyrir þennan sögulega verðlaunagrip en það er ljóst að Aguttes uppboðshúsið býst við að hann seljist á hundruð milljóna íslenskra króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×