Lífið

Náttúru­legar bótox-meðferðir án sprautunála

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Miðillinn Think dirty hvetur fólk að fagna aldurstengdum breytingum og nýta náttúrulegar aðferðir.
Miðillinn Think dirty hvetur fólk að fagna aldurstengdum breytingum og nýta náttúrulegar aðferðir. Getty

Vinsældir fegrunarmeðferða hafa aukist til muna undanfarin ár. Fólk leitast eftir að viðhalda unglegu útliti þar sem hrukkum og fínum línum er eytt með fylliefnum eða bótoxi. Í færslu bandaríska heilsumiðilsins Think dirty á Instagram má finna einfaldar leiðir til að viðhalda unglegu og frísklegu útliti með náttúrulegum aðferðum, eða hreinu bótoxi án sprautunála.

„Margir reyna að koma í veg fyrir eitthvað sem er eðlilegt og óumflýjanlegt. Í stað þess að streytast á móti ættum við að fagna hækkandi aldri og nýta okkur náttúrulegar leiðir til að eldast á þokkafullan hátt,“ segir í umræddri færslu.

Hér að neðan má nálgast náttúrulega „bótox“ aðferðir:

Rauðljósameðferð

Meðferðin örvar kollagenmyndun, dregur úr fínum línum og endurheimtir mýkt í húðinni.⁠

Getty

Andlitsnudd

Stuðlar að sogæðarennsli, bætir blóðrásina og gefur frísklegt yfirbragðið.⁠

Getty

Omega-3 fitusýrur

Fitusýrurnar styrkja fituvörn húðarinnar, dregur úr bólgum og viðheldur hámarks rakastigi fyrir heilbrigt og geislandi yfirbragð húðarinnar.⁠

Getty

Beinasoð

Beinasoðið styður við kollagenframleiðslu líkamanns og gefur húðinni raka sem stuðlar að unglegu útliti.

Getty

Nálastungur

Örva kollagen- og elastínframleiðslu húðarinnar, bæta vöðvaspennu og lágmarka öldrunareinkenni.⁠

Getty

Bakuchiol

Efnið er talið stuðla að endurnýjun frumna, sléttir fínar línur og hrukkur ásamt því að gefa andlitinu ljóma.⁠

Getty





Fleiri fréttir

Sjá meira


×