Viðskipti innlent

Gera þrjá­tíu til fjöru­tíu kaup­samninga á hverjum degi

Lovísa Arnardóttir skrifar
Grindvíkingar eru margir ósáttir við gang uppkaupanna og hafa mótmælt á Austurvelli. Myndin var tekin á síðustu mótmælum.
Grindvíkingar eru margir ósáttir við gang uppkaupanna og hafa mótmælt á Austurvelli. Myndin var tekin á síðustu mótmælum. Vísir/Vilhelm

Fasteignafélagið Þórkatla hefur nú afgreitt meirihluta þeirra 766 umsóknir sem hafa borist um kaup. Allar umsóknir sem bárust í mars og þarfnast ekki nánari skoðunar hafa verið afgreiddar, eða alls 528 umsóknir. Eigendum 415 eigna í Grindavík hefur verið boðin kaupsamningur til undirritunar.

Enn er unnið umsóknum sem bárust í mars sem hafa einhver frávik. Þau snúa meðal annars að breytingum á fermetra fjölda, frávikum frá lögheimili í eigninni, húsum í byggingu, altjónshúsum og dánarbúum. Þórkatla gerir á bilinu 30 til 40 kaupsamninga á dag og stefnir að því að klára kaupsamning við alla þá 528 aðila sem sóttu um í mars í næstu viku.

Í tilkynningu frá Þórkötlu kemur fram að félagið muni nú hefja úrvinnslu þeirra 130 umsókna sem bárust þeim í fyrri hluta aprílmánaðar. Þar kemur einnig fram að Þórkatla hefur þegar boðið eigendum um 415 húseigna í Grindavík kaupsamning til undirritunar eða rúmum 55 prósent allra umsækjenda.

„Heilt á litið er ég mjög ánægður með framgang mála hjá okkur núna. Það að hafa gert vel á fimmta hundrað kaupsamninga á síðustu vikum þýðir að sambærilegur fjöldi fjölskyldna í Grindavík hefur fengið úrlausn sinna mála. Það tók okkur nokkurn tíma að ná tökum á þessu flókna verkefni en þetta er allt á góðri leið, enda frábær hópur sem stendur á bak við þetta verkefni þvert á stjórnkerfið,“ segir Örn Viðar Skúlason framkvæmdastjóri Fasteignafélagsins Þórkötlu.

Þinglýstir kaupsamningar 30 milljarða virði

Fyrir liggja 380 þinglýstir kaupsamningar að kaupverði um 30 milljarðar króna og hefur félagið greitt kaupsamningsgreiðslu í 358 viðskiptum að upphæð 17,5 milljarðar króna og yfirtekið lán frá 16 lánastofnunum að upphæð um níu milljarðar króna.

Í tilkynningu félagsins segir að ýmis mál hafi flækt frágang nokkurra kaupsamninga svo sem þegar um er að ræða tryggingarbréf og veð frá einkaaðilum, kvaðir á húsum sem standa á lóðum í einkaeigu, útrunnin rafræn skilríki og ýmislegt annað. Þá hafi nokkrir aðilar kosið að undirrita ekki kaupsamning sem þeim barst frá Þórkötlu. Í slíkum tilvikum standi fólki til boða að fá sendan nýjan samning þegar umsóknir sem bárust í apríl hafa verið afgreiddar.

„Við höfum átt nokkuð erfitt með að sinna öllum beinum fyrirspurnum frá seljendum nógu vel að undanförnu en höfum nú fengið kröftugan liðstyrk inn í þau mál sem ég á von á að skili sér strax á næstu dögum í betra viðbragði við fyrirspurnum,“ segir Örn Viðar.

Taka við fyrstu eignunum

Þórkatla undirbýr nú viðtökur á fyrstu eignunum. Það verður gert með sérstökum skilafundi með seljanda og úttektaraðila félagsins. Nokkrir seljendur hafa óskað eftir seinkun á fyrirhuguðum afhendingardegi og hefur félagið tekið vel í slíkar beiðnir seljenda. Slíkt getur kallað á tilfærslu á afsalsdegi og í þeim tilfellum er þörf á skriflegum viðauka við kaupsamning. Í tilkynningu segir að haft verði samband við seljendur varðandi útfærslu á þessu.


Tengdar fréttir

Helmingurinn af búslóðinni í ruslið

Grindvíkingar hafa neyðst til að henda gríðarlegum verðmætum undanfarið vegna búferlaflutninga. Að minnsta kosti hálf búslóðin fór í ruslið hjá einum þeirra. Annar segir að enginn vilji hirða dótið og Góði hirðirinn sé sprunginn.

Bæjarstjórn fundaði með Þórkötlu

Bæjarstjórn Grindavíkur fundaði nú á föstudaginn með forsvarsfólki fasteignafélagsins Þórkötlu sem stofnað var 27. febrúar 2024 sérstaklega til að annast kaup, umsýslu og ráðstöfun húsnæðis í Grindavík. Farið var yfir verkferla og hvernig unnið væri með málefni þeirra sem óskað hafa eftir uppkaupum.

Fast­eigna­markaðurinn hitnar en fram­kvæmdum fækkar

Fasteignamarkaðurinn hitnaði verulega í febrúar og líklega í mars líka. Sömu áhrifa er á gæta á leigumarkaði þar sem verð hefur hækkað. Áhrifanna er að mestu að gæta á höfuðborgarsvæðinu og í sveitarfélögunum í kring. Staða íbúa í Grindavík hefur þarna mikil áhrif. Á sama tíma hefur byggingaframkvæmdum fækkað og er yfirvofandi samdráttur í byggingariðnaði.

Grindvíkingar boða til mótmæla gegn Þórkötlu

Boðað hefur verið til mótmæla á Austuvelli klukkan 17 á morgun, þar sem vinnubrögðum Fasteignafélagsins Þórkötlu verður mótmælt. Borið hefur á mikilli óánægju meðal Grindvíkinga, sem vilja fá eignir sínar keyptar upp sem fyrst.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×