Innlent

Margt bendi til þess að gosinu sé lokið

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Staðan kl 19:30 við gosstöðvarnar. Gosórói hefur fallið stöðugt frá því snemma í morgun.
Staðan kl 19:30 við gosstöðvarnar. Gosórói hefur fallið stöðugt frá því snemma í morgun. Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands

Margt bendir nú til þess að eldgosinu við Sundhnúka sé lokið. Þetta kemur fram í pistli frá Eldfjalla- og náttúruvárhópi Suðurlands á Facebook. Gosórói hafi fallið stöðugt frá því snemma í morgun.

Í tilkynningunni segir að gaslosun úr gígnum hafi minnkað verulega eftir því sem liðið hafi á daginn. Smávægis bjarmi hafi verið sjáanlegur í gígnum síðustu nótt ásamt því að stakar og litlar hraunslettur hafi sést af og til í rökkrinu fyrri part nætur. Bjarmi geti enn verið úr glufum þar sem glóandi heitt gas streymi upp.

Flug yfir stöðvarnar ætti að geta skorið úr um það hvort gosinu sé lokið eða ekki.

Óróamælingar Veðurstofunnar við Litla Skógfell sýna hvernig dregið hefur úr gosóróa frá því snemma í morgun.Veðurstofa Íslands


Tengdar fréttir

Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu

Niðurstöður mælinga á hraunflæði í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni benda til þess hraunflæði fyrsta klukkutíma gossins hafi verið 1100 til 1200 rúmmetrar á sekúndu en síðan hafi dregið hratt úr, og það verið komið niður í um 100 rúmmetra eftir sex til átta klukkustundir. Áfram hafi dregið úr hraunrennsli og meðaltalið 17. til 20. mars um fimmtán rúmmetrar. Fyrri hluta apríl hafi það verið þrír til fjórir rúmmetrar og mælingarnar benda til þess að það hafi verið um eða innan við einn rúmmetri síðustu tvær vikurnar.

Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð

Gosið virðist vera að lognast út af en búast má við öðru þar sem kvikuhólfið undir Svartsengi er komið að þolmörkum. Prófessor í jarðeðlisfræði bendir á að það nýja gæti orðið um þúsund sinnum aflmeira en það sem nú kraumar. Enginn ætti að vera nærri sprungunni



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×