Innlent

Ó­happ í fyrsta sinn í 25 ára sögu

Jón Þór Stefánsson skrifar
Myndin sýnir fiskeldisstöð Samherja í Sandgerði, en umrætt óhapp átti sér stað í fiskeldisstöð Samherja í Silfurstjörnunni, Öxarfirði.
Myndin sýnir fiskeldisstöð Samherja í Sandgerði, en umrætt óhapp átti sér stað í fiskeldisstöð Samherja í Silfurstjörnunni, Öxarfirði. Vísir/Vilhelm

Samherji fiskeldi segir að óverulegt magn seiða hafi sloppið úr landeldisstöð þess í Núpsmýri í Öxarfirði. Félagið hafi stundað landeldi í 25 ár án þess að óhöpp sem þetta eigi sér stað.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samherja en þar segir að svo virðist sem kerifsbilun hafi valdið þessu. Matvælastofnun greindi frá strokinu í dag.

Fram hefur komið að þetta hafi uppgötvat á mándudag, þann sjötta maí. Þá kom í ljós að seiði höfðu borist úr einni af eldiseiningum seiðastöðvar yfir í settjörn stöðvarinnar.

Í tilkynningu Samherja segir að seiðin hafi ekki verið sjógönguhæf. Samherji hafi tilkynnt um mögulega slysasleppingu til viðeigandi aðila samdægurs. Þá hafi fyrirtækið eflt varnir í frárennsli úr settjörn í viðtaka.

„Við fyrstu athugun virðist kerfisbilun í nýju eldiskerfi seiðastöðvar hafa valdið því að seiði soguðust í frárennsliskassa á eldiskeri og út um frárennslisrör, yfir í millibrunn og þaðan í settjörn. Sleppivarnir eru á þremur stöðum í frárennsliskerfi seiðastöðvar; á hverri eldiseiningu, í millibrunni og settjörn. Sleppivarnir á frárennsliskassa og millibrunni virðast ekki hafa virkað sem skyldi en þær hafa þegar verið yfirfarnar og efldar.“

Líkt og áður segir vill Samherji meina að um óverulegt magn seiða sé að ræða og að unnið sé að endurheimt þeirra úr settjörn í samráði við Matvælastofnun. Samhliða hafi verið unnið að orsakagreiningu og þá sé úrbótaáætlun þegar komin í framkvæmd.

„Samherji fiskeldi hefur stundað landeldi í 25 ár án slíkra óhappa. Félagið vinnur eftir ströngum verklagsreglum og gæðastöðlum og leggur ríka áherslu á að stunda landeldi á sjálfbæran og öruggan hátt. Samherji fiskeldi harmar atvikið en strax var hafist handa við að rannsaka orsakir og hefja mögulegar úrbætur til að fyrirbyggja að slíkt endurtaki sig,“ segir í tilkynningunni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×