Þrot - sýnishorn
Fyrsta sýnishorn úr kvikmyndinni Þrot í leikstjórn Heimis Bjarnasonar. Þrot segir frá dularfullu morðmáli sem skekur smábæjarsamfélag og þeim áhrifum sem það hefur á líf og fortíð þriggja ólíkra einstaklinga. Gömul sár verða að nýjum og fljótt verður ljóst að sögum ber ekki saman og reynir á fjölskylduböndin sem aldrei fyrr eftir því sem sannleikurinn skýrist.