Flugfreyjur og Icelandair skrifuðu undir kjarasamning
Forstjóri Icelandair svarar því ekki hvort til greina komi að flugfreyjum verði sagt upp aftur, samþykki þær ekki nýjan kjarasamning. Hann hafi ekki trú á öðru en að samningurinn verði samþykktur. Formaður Flugfreyjufélagsins mun mæla með samningnum við félagsmenn sína.