Karólína íhugar sína kosti
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er klár í slaginn við Pólland á föstudag, í undankeppni EM í fótbolta. Hún hefur spilað vel með Leverkusen í Þýskalandi í vetur, sem lánsmaður frá Bayern München, en segir ekki ljóst hvað taki við í sumar.