Kompás

Kompás

Fréttaskýringaþáttur þar sem hin ýmsu málefni eru krufin til mergjar.

Fréttamynd

Olía, hernaður og pólitík

Sambúð Rússlands og NATO ríkjanna hefur farið hríðversnandi undanfarið. Ríkin deila um eldflaugar í Austur-Evrópu, uppsögn vígbúnaðarsamninga og margvísleg diplómatísk álitamál. En er það ástæðan fyrir flugi Bjarnarins yfir Norður-Atlantshafi? Við spurðum sérfræðinga í Rússlandi, Noregi og á Íslandi.

Stöð 2
Fréttamynd

Þyrlur til sölu

Á sama tíma og Rússar senda sprengjuflugvélar að ströndum Íslands, þá vilja þeir gjarnan selja Íslendingum þyrlur. Framundan er útboð í samstarfi við Norðmenn vegna kaupa á björgunarþyrlum fyrir Landhelgisgæsluna. Rússar óttast að það eigi að ganga framhjá rússneskum framleiðendum.

Stöð 2
Fréttamynd

Kompás í Rússlandi

Rússneskar herflugvélar hafa sveimað yfir Íslandi á síðustu mánuðum. Er nýtt kalt stríð í uppsiglingu í íslenskri lofthelgi? Kompás lagði land undir fót og hélt til Rússlands til fundar við rússneska flugherinn. Kompás er á dagskrá á þriðjudögum kl. 21:50 á Stöð 2.

Stöð 2
Fréttamynd

Skuggahliðar samfélagsins

Við horfum tilbaka á viðburðarríkt ár í sögu þáttarins. Kompás vann í annað sinn til Edduverðlauna og við fengum verðlaun Blaðamannafélags Íslands fyrir rannsóknarblaðamennsku. Fjölmörg mál voru skoðuð ofan í kjölinn, mál sem urðu tilefni umræðu í samfélaginu. Við vorum á faraldsfæti og heimsóttum fjarlæg lönd og stríðshrjáð. Við skoðuðum fjölmörg mál ofan í kjölinn, mál sem urðu tilefni umræðu í samfélaginu.

Stöð 2
Fréttamynd

Krufin til mergjar

Fréttir Kompáss um átakalínur í stjórnmálum, kvótamálum, trúmálum, vatnsbætt kjöt og efnahagsstjórn landsins vöktu allar mikla athygli á árinu.

Stöð 2
Fréttamynd

Á faraldsfæti

Írak, Ekvador, Kenýa, Japan og Mongólía voru meðal þeirra landa sem Kompás flutti fréttir frá á árinu. Þarna voru sögur af fólki sem tengjast Íslandi á einn eða annan hátt.

Stöð 2
Fréttamynd

Utan alfaraleiðar

Það voru ekki bara dekkri hliðar mannlífsins sem Kompás kannaði. Veggjalús, munkar og meintir milljarðamæringar komu líka við sögu.

Stöð 2
Fréttamynd

Brot af því besta

Við horfum tilbaka á viðburðarríkt ár í sögu þáttarins. Kompás vann í annað sinn til Edduverðlauna og við fengum verðlaun Blaðamannafélags Íslands fyrir rannsóknarblaðamennsku. Fjölmörg mál voru skoðuð ofan í kjölinn, mál sem urðu tilefni umræðu í samfélaginu.

Stöð 2
Fréttamynd

Leynihvelfing á Kili

Leynileg skilaboð, dulkóðaðir lyklar í listaverkaperlum DaVinci, Botticelli og annara meistara hafa orðið mörgum mönnum yrkisefni í skáldverkum og er þeirra þekktast líklegast bók Dan Brown, Da Vinci lykillinn. En aðrir hafa á sama tíma nálgast þetta efni á forsendum fræðimennsku og talið sig geta með þeim hætti opnað dyr að nýrri þekkingu. Við segjum frá hópi manna, með Ítala í broddi fylkingar sem árum saman hefur unnið að rannsóknum sem eiga að leiða í ljós að meistarar miðalda duldu í verkum sínum frásögu um leyniför og falda helgidóma í leynihvelfingu á íslensku miðhálendi.

Stöð 2
Fréttamynd

Helgidómar á hálendinu

Á sumri komanda er vonast til að hægt verði að bora leið fyrir myndavél í hvelfingu musterisriddarana á Kili. Sveitarstjórn Gnúpverjahrepps hefur veitt sitt leyfi fyrir framkvæmdum á staðnum. Kirkjan eru spennt fyrir öllu því nýja sem vísindamenn hafa grafið upp á síðstu árum. Þetta varpi dýpra ljósi á inntak kristninnar.

Stöð 2
Fréttamynd

Hestur guðanna

Hesturinn Hrímnir frá Hrafnagili var felldur í haust á 32 öðru aldursári. Þessi drifhvíti höfðingi ber nú bein sín við húsvegginn að Varmalæk í Skagafirði en goðsögnin um Hrímnir lifir áfram. Meðal hestafólks ríkir ákveðinn söknuður enda flestir eru sammála um að enginn viðlíka hestur hafi sést hvorki fyrr né síðar.

Stöð 2
Fréttamynd

Hinn heilagi gral á Íslandi?

Ítalinn Giancarlo Gianazza hefur legið yfir leyndardómum miðaldamálaranna Botticelli og Leonardo DaVinci í tíu ár. Þar fann hann leyndar vísbendingar sem bentu til Íslands og einnar helstu perlu bókmenntanna hinn Guðdómlega gleðileik eftir Dante. Þrotlaust starf fullvissaði hann um að í þessum verkum fólust skilaboð um að leyndardómum, ef til vill frá frumkristni, hefði verið komið fyrir á Íslandi á tólftu öld.

Stöð 2
Fréttamynd

Arfur Sonju

Þegar heimskonan Sonja Benjamínsson de Zorilla lést fyrir fimm árum var boðað að allar hennar eigur rynnu í minningarsjóð til styrktar málefnum barna. Jafnvel var talið að eigur hennar hefðu numið hátt í tíu milljörðum króna. En hvað varð um milljarðana - eða voru þeir yfirhöfuð til?

Stöð 2
Fréttamynd

Ekkert einkamál

Ekkert af sautján styrktarfélögum langveikra barna kannast við stuðning úr Zorrilla sjóðnum. Sjóðsstjórar gefa til kynna að höfuðstóll sjóðsins sé í besta falli tvö til þrjúhunduð milljónir króna - en það er óravegur frá þeim milljörðum sem Sonja var talin eiga. Það fæst ekki skýrt hvað varð um verðmætt listaverkasafn hennar til dæmis Picasso verk, sem var henni kært, en hangir nú uppi á einkaheimili í Reykjavík

Stöð 2
Fréttamynd

Lífstíðardómur

Í mars fjallaði Kompás ítarlega um morðið á Íslendingnum Gísla Þorkelssyni í Suður-Afríku. Honum var ráðinn bani vorið 2005 og lík hans steypt í ruslatunnu. Vinur Gísla, Willi Theron, var sakfelldur fyrir morðið í síðasta mánuði og í síðstu viku hlaut hann lífstíðardóm fyrir ódæðið.

Stöð 2
Fréttamynd

Sjóður Sonju Zorrillu

Lítið hefur farið fyrir minningasjóði hinnar litríku Sonju Benjamínsson Zorillu. Þegar hún lést fyrir rúmum fimm árum var talið að eigur Sonju, uppá milljarða króna, - jafnvel hátt í tíu milljarða, myndu renna í sjóðinn. Hann átti að styrkja íslensk og bandarísk börn til menntunar og heilbrigðis. Forsvarsmenn sjóðsins segja að málefni hans séu einkamál og almenningur eigi engan kröfurétt á upplýsingum. Vinir og ættingjar Sonju eru eru undrandi á því hversu lítið fari fyrir þessum sjóði og telja það ekki í anda þessarar heimskonu að hljótt fari um sjóðinn. Þeir telja nauðsynlegt að sjóðurinn starfi fyrir opnum dyrum.

Stöð 2
Fréttamynd

Áfallið

Á hverjum degi fá rúmlega tveir Íslendingar slag sem er yfirheiti yfir heilablóðföll og heilablæðingar. Við kynnumst tveimur ungum stúlkum sem fengu heilablæðingu og urðu mjög alvarlega veikar. Í dag hafa þær báðar náð ótrúlegum bata. Það að fá heilablæðingu eða heilablóðfall er grafalvarlegt mál og það skiptir miklu máli að fólk þekki einkennin að undanfara slíkra blæðinga. Með réttum forvörnum er hægt að minnka líkurnar á því að fá slag um helming. Reikna má með að einn af hverjum sjö Íslendingum fái slag á lífsleiðinni.

Stöð 2
Fréttamynd

Bætt meðferð

Skurðaðgerð á heila vegna heilablæðingar getur tekið allt að átta klukkustundir. Með aukinni tækni er hægt að staðsetja blæðingar í heila og hugsanlega koma í veg fyrir alvarleg áföll. Endurhæfing slagsjúklinga getur tekið mörg ár og þeir eru lengi að jafna sig. Sumir ná fullum bata - aðrir ekki.

Stöð 2
Fréttamynd

Þekktu einkennin

Talið er að tíðni slaga muni aukast á heimsvísu á næstu árum vegna stöðugt hækkandi aldurs. Með réttum forvörnum einstaklinganna geta þeir minnkað hættuna á að fá slag um helming. Amfetamín- og kókaínneysla eykur hættuna á heilablóðfalli hjá ungu fólki.

Stöð 2
Fréttamynd

Heilablóðfall og heilablæðingar

Einn af hverjum sjö Íslendingum fær heilablóðfall einhverntíman á lífsleiðinni. Það er einstaklingsbundið hversu mikill skaðinn er en sumir jafna sig aldrei að fullu. Er hægt að minnka hættuna á að fá heilablóðfall? Kompás skoðar afleiðingar heilablóðfalla og heilablæðinga. Kompás er á dagskrá á þriðjudögum kl: 21:30 á Stöð 2.

Stöð 2
Fréttamynd

Félagi Jeltsín

Hljómsveit kennd við rússneska leiðtogann Boris Jeltsín, er að stíga sín fyrstu skref með lagið Kíló af Prósakki. Félagarnir fimm sem skipa hljómsveitina stefna á heimsfrægð og það fyrr en síðar. Áhrifavaldarnir eru úr öllum áttum - tónlist tíunda áratugarins, tölvuleikir, og einræðisherrar.

Stöð 2
Fréttamynd

Skammbyssa á svörtu

Það er auðvelt að kaupa skambyssu og önnur ólögleg vopn á Íslandi. Þetta sýnir Kompás fram á í kvöld en tálbeitu þáttarins voru boðnar tvær skambyssur til sölu - og það tók ekki langan tíma að finna sölumennina. Á hverju ári gerir lögreglan upptæk tugi ólöglegra vopna og þar með taldar skambyssur og afsagaðar haglabyssur. Vopn eru ólögleg ef þau eru ekki skráð og þannig vopn geta legið víða.

Stöð 2
Fréttamynd

Harmleikur

Kompás kafar ofan í markað með ólögleg vopn á Íslandi og skoðar það hvernig byssumanninum sem tók eigið líf og annars manns á Sæbraut í sumar, tókst að kaupa byssu í skotveiðiverslun með byssuleyfi vinar síns upp á vasann. Kompás sendi tálbeitu í síkar verslanir til að athuga hvort hægt væri að kaupa byssur með sama hætti. En er hægt að kaupa skambyssu á svörtum markaði á Íslandi?

Stöð 2
Fréttamynd

Ólögleg vopn

Það er ekki vitað hvað til eru margar óskráðar byssur á Íslandi. En hvar eru þessar byssur? Kompás skoðar ólöglegar byssur á Íslandi og hvort hægt sé að kaupa byssu á svörtum markaði. Morðið á Sæbraut í sumar vakti upp óhug í samfélaginu. Kompás skoðar það hvernig einstaklingi hafi tekist að kaupa byssu út á nafn vinar síns. Er þetta algengt? Hvað segja þeir sem selja byssurnar? Kompás keypti 9mm skambyssu á svarta markaðnum. Byssu sem er alls ekki ætluð til veiða.

Stöð 2
Fréttamynd

Krónan dæmd

Ofurvextir Seðlabankans eiga að vera viðbragð við verðbólgu sem þykir enn alltof há á Íslandi. En það er ekki sama hvernig er mælt. Ef Íslendingar mældu verðbólgu með sama hætti og Evrópusambandið væri hér sáralítil verðbólga. Bandaríkjamenn beita heldur ekki sömu aðferðum og við. En það er ekki bara mælingin sem er gagnrýnd. Stjórnvöld sæta ámæli fyrir að bera ábyrgð á þenslunni og ofurvextir Seðlabankans eru taldir blása fremur í glæðurnar en slökkva eldana.

Stöð 2
Fréttamynd

Dauði krónunnar

Það eru ekki allir sem gefa stjórnun með íslensku krónunni góða einkunn. En vera kann að gjaldmiðilinn sé sjálfkrafa að heyra sögunni til án þess að þeirri þróun sé stýrt. Hagfræðignar spyrja hvort það sé ekki þegar búið að gefa þessum sjálfstæða gjaldmiðli falleinkunn enda fleiri og fleiri að færa sig yfir í Evru og aðrar myntir.

Stöð 2
Fréttamynd

Svar úr svörtuloftum

Kompás reyndi í hálfan mánuð að fá viðtal við Davíð Oddsson, formanns bankastjórnar Seðlabankans um þessi mikilisverðu mál. Hann tók líkindalega í það framanaf en snérist hugur þegar þátturinn var í lokavinnslu og beindi erindinu til annars bankastjóra sem kom loks í viðtal þegar þátturinn var nánast frágenginn.

Stöð 2
Fréttamynd

Vaxtastefna Seðlabankans

Seðlabankinn fær lítinn stuðning við ákvörðun sína um svimandi háa vexti. Hávaxtastefnan er sögð skapa verðbólgu í stað þess að slá á hana. Verðbólgan er ekki rétt mæld segja aðrir. Svo virðist sem ríkisvaldið vinni gegn Seðlabankanum. Á meðan deilt er um hvernig eigi að hlúa að krónunni er atvinnulíf og einstaklingar að gefast upp og yfirgefa þennan gjaldmiðil. Á krónan sér viðreisnar von í ólgusjó útrásar og alþjóðavæðingar?

Stöð 2
Fréttamynd

Kynlíf unglinga

Fimm einstaklingar á Íslandi smitast af kynsjúkdómnum klamidýu á hverjum degi og enn fleiri smitast af kynfæravörtum og herpes. Klamydía getur breiðst hratt út. Í háskóla í Bandaríkjunum var gerð rannsókn þar sem kom í ljós að frá einni smitaðri stúlku gætu 287 einstaklingar smitast. Á síðasta ári greindust rúmlega sautján hundruð manns með klamidýu á Íslandi.

Stöð 2
Fréttamynd

Fræðsla mikilvæg

Fræðsla um kynlíf og áróður um notkun smokksins eru þau tæki sem helst duga til árangurs gegn kynsjúkdómum unglinga. Mjög mismunandi er hvernig kynfræðslu er háttað í grunn- og framhaldsskólum landsins. Smokknum ætti að dreifa frítt segja þeir sem fræða unglingana.

Stöð 2