Kompás

Kompás

Fréttaskýringaþáttur þar sem hin ýmsu málefni eru krufin til mergjar.

Fréttamynd

Stolin kirkja

Það er ekki oft sem Þjóðkirkjan er sökuð um að hafa stolið heilli kirkjubyggingu en það gerðist fyrir fimmtíu árum þegar kirkjan á Hesteyri var flutt til Súðavíkur í óþökk Hesteyringa. Þótt langt sé um liðið hefur ekki enn gróið um heilt og vilja Hesteyringar fá að minnsta kosti kapellu í sitt gamla heimaþorp. Hesteyri í Jökulfjörðum lifnar nú við á hverju sumri, þar er blómleg sumarbyggð og viðkomustaður ferðamanna sem hrífast af kyrrð og fegurð staðarins.

Stöð 2
Fréttamynd

Ungt fólk og kynlíf

Tólf einstaklingar hafa greinst með HIV veiruna það sem af er árinu. Þessi illvígi sjúkdómur er ekki lengur dauðadómur. En hugsar ungt fólk um sjúkdóminn í dag? Lifa unglingar öruggu kynlífi? Fimm einstaklingar smitast af klamydíu á hverjum degi og enn fleiri smitast af kynfæravörtum og Herpes. Kompás kynnist viðhorfum ungs fólks til kynlíf, kynsjúkdóma og kynfræðslu.

Stöð 2
Fréttamynd

Kona gegn kerfinu

Einstaklingurinn finnur sig oft vanmáttugan gagnvart kerfinu. Við segjum sögu af konu sem staðið hefur í stríði við Tryggingastofnun í mörg ár. Þetta er dæmisaga um upplifun einstaklings á ósveigjanleika, óbilgirni og ómanneskjulegu viðmóti að hálfu stofnunar sem telur sig hornstein velferðakerfisins. Tryggingastofnun neitaði að tjá sig um þetta tiltekna mál. Forsvarsmenn hennar höfnuðu því einnig að mæta í viðtal til að svara fyrir almenna gagnrýni á Tryggingastofnun.

Stöð 2
Fréttamynd

Öruggasti ferðamátinn

Það eru fáir sem vita hvað gerist í flugstjórnarklefanum fyrir flug og á meðan á flugi stendur. Talið er að hið framandi og hið óþekkta sé ein af orsökum þess að fimmti hver farþegi þjáist af flughræðslu eða ónotum í flugi. Sigurður Ragnarsson - Siggi stormur - fékk á dögunum fáséða innsýn í hvað gerist í flugstjórnarklefanum í flugi 502 til Amsterdam.

Stöð 2
Fréttamynd

Íslenska víkingageitin

Íslenski geitastofninn er talinn vera minnsti geitastofn í heimi. Þetta gamla víkingakyn er harðgert og sérlundað, en vannýtt í íslenskum landbúnaði. Eftirspurn eftir geitaafurðum ferð vaxandi og þá hafa borist fyrirspurnir frá Bandaríkjunum um útflutning á íslensku geitinni.

Stöð 2
Fréttamynd

Barátta við TR

Einstaklingurinn finnur sig oft vanmáttugan gagnvart flóknu kerfi. Við heyrum sögu Rögnu af baráttu hennar við TR. Fyrir 25 árum voru kalk kirtlar fjarlægðir úr Rögnu fyrir mistök og hefur hún eftir það þurft að taka lífsnauðsynleg lyf. Hún borgaði lyfin sjálf í tvo áratugi þangað til hún komst að því að hún átti alltaf rétt á því að fá þau ókeypis. Það hefur verið þrautin þyngri að fá endurgreiðslu þessa kostnaðar.

Stöð 2
Fréttamynd

Óværa á heimilinu

Ný óværa hefur tekið sér bólfestu í rúmum landsmanna. Þetta er lúsartegund sem hreiðrar um sig í rúmum og lifir á því að sjúga blóð úr sofandi fólki. Við fjöllum um þennan ófögnuð, þennan nýja landnema á Íslandi.

Stöð 2
Fréttamynd

Börn í boxi

Í gömlu sundhöllinni í Reykjanesbæ æfa yngstu boxarar landsins ólympíska hnefaleika af miklu kappi. Boxið nýtur mikilla vinsælda, meðal annars hjá krökkum sem greinst hafa með ofvirkni eða athyglisbrest. Við heimsóttum Hnefaleikafélag Reykjaness og fylgdumst með boxurum framtíðarinnar á æfingu.

Stöð 2
Fréttamynd

Sýknun í tálbeitumáli

Í síðustu viku voru þrír menn sýknaðir af ákæru um kynferðisbrot fyrir að hafa ætlað að fara á fund unglingsstúlku með það í huga að eiga við hana kynferðislegt samneyti. Við lögreglurannsókn og saksókn var byggt á Kompásþætti frá í janúar þar sem þessir menn komu innfyrir þröskuld íbúðar og töldu sig vera á leið á stefnumót við unglingsstúlku. Þeir höfðu fallið fyrir tálbeitu Kompáss á netinu.

Stöð 2
Fréttamynd

Blóðsuga á íslenskum heimilum

Veggjalús er blóðsuga sem leggst á mannfólk. Þessi óværa kemur sér fyrir í svefnherbergjum fólks og fjölgar sér hratt. Þær lifa á blóði þess sem í rúminu sefur. Þessum tilfellum hefur verið að fjölga mjög hratt síðustu ár og dæmi eru um að heilu búslóðunum hafi verið fargað. Tryggingafélögin greiða ekki bætur vegna tjóna sem þessa. Kompás fylgdist með meindýraeyði að störfum og baráttunni gegn blóðsugunum á heimili í Reykjavík.

Stöð 2
Fréttamynd

Þroskaheftur á Sogni

Fyrir sextán árum myrti Baldvin Kristjánsson unga konu í Reykjavík. Baldvin er þroskaheftur. Í fimmtán ár hefur hann verið lokaður inni á réttargeðdeildinni að Sogni. Þar hefur hann verið vistaður meðal ósakhæfra manna sem glíma við geðsjúkdóma, manna sem hafa framið misalvarleg afbrot.

Stöð 2
Fréttamynd

Mannréttindi þroskaheftra

Lögmaður sem hefur annast réttargæslu fyrir ósakhæfa einstaklinga segir að mannréttindi séu brotin á Baldvini Kristjánssyni. Það sé ekki einsdæmi. Þroskaheft fólk er haft í stöðugri gæslu og ferðafrelsi þeirra skert, þrátt fyir að það sé sjálfráða. Starfsfólk sem ananst þroskahefta kvartar yfir að reglur skorti og vill ekki una ásökunum um að það brjóti mannréttindi á skjólstæðingum sínum.

Stöð 2
Fréttamynd

Maðurinn sem kerfið gleymdi

Baldvin Kristjánsson er þroskaheftur 45 ára gamall maður. Saga hans er þyrnum stráð þar sem hann dvaldi víða um land á ýmsum heimilum um langt skeið. Kerfið hafði engin úrræði fyrir hann. Fyrir sextán árum myrti hann vinkonu sína á sambýli í Reykjavík. Kerfið hafði þá engin úrræði fyrir hann, ekki fyrr en réttargeðdeildin að Sogni opnaði fyrir fimmtán árum. Og þar hefur hann verið frá upphafi.

Stöð 2
Fréttamynd

Borg dauðans

Þó að nærri fjögur og hálft ár séu liðin frá því her Bandaríkjanna og samstarfsþjóða réðst inní Írak og steypti Saddam Hússein af stóli loga eldar ófriðar enn í landinu. Mannfall í síðasta mánuði var þó minna en í mörg misseri og vekur vonir um að friðvænlegri tíð sé framundan. Komás var í Írak og kynnti sér afleiðingar innrásarinnar af eigin raun. Þessi innrás var studd af íslenskum stjórnvöldum sem vafalítið telst ein óvinsælasta stjórnvaldsákvörðun á lýðveldistímanum. Heimkvaðning eina Íslendingsins sem sinnt hefur starfi á vegum NATO í landinu markar kaflaskil og uppgjör við þá umdeildu ákvörðun.

Stöð 2
Fréttamynd

Herdísi heim

Friðargæsluliðinn, Majór Herdís Sigurgrímsdóttir hefur verið kölluð frá Írak en hún var eini íslenski liðsmaðurinn í verkefnum NATÓ í landinu. Núverandi stjórnvöld vilja ekki lengur að friðargæsluliðar sinni hernaðarlegum verkefnum. Heimkvaðning Herdísar markar einnig uppgjör við hina umdeildu veru Íslands á lista hinna viljugu þjóða.

Stöð 2
Fréttamynd

Kompás í Írak

Innrásin í Írak fyrir fjórum árum varð upphaf - en ekki endir á hörmungum Íraka. Höfuðborgin, Bagdad hefur verið borg dauðans. Kompás var í borginni og kynnti sér ástandið. Hverjar eru horfur þessarar hrjáðu þjóðar sem er sannarlega í hers höndum? Færri og færri ríki styðja hernaðaraðgerðir í landinu og um síðustu mánaðamót drógu Íslendingar sig út úr verkefni NATO í Írak og kölluðu heim Majór Herdísi, friðargæsluliða.

Stöð 2
Fréttamynd

Í skugga skæruhernaðar

Í þessum þætti förum við til Suður Ameríku, en tuttugu og sjö kólumbískir flóttamenn komu til landsins í gær, einungis konur og börn. Konurnar eru í lífshættu. Þær hafa misst eiginmenn sína í skæruhernaði og eiga það allar sameiginlegt að vera á flótta undan skæruliðasveitum. Í Kólumbíu ríkir ekki hefðbundið stríð. Þar ræður stjórnlaus skæruhernaður ríkjum. Kompás slóst í för með íslensku flóttamannanefndinni í sumar. Við heyrum við sögur kvennanna.

Stöð 2
Fréttamynd

Skelfingin flúin

Eftir að flóttamenn koma til Ekvadors tekur oft ekkert betra við. Þar búa þeir við mikla neyð og þurfa enn að líða ofsóknir. Kompás hitti unga drengi sem voru fangar skæruliðasveita í rúmt ár.

Stöð 2
Fréttamynd

Nýir Íslendingar

Af þeim fjölda kvenna sem Kompás talaði við komu tvær þeirra til Íslands með fjölskyldum sínum. Þær eru kornungar og hafa upplifað skelfilega hluti. Báðar hafa þær verið í lífshættu og á flótta undan skæruliðasveitum.

Stöð 2
Fréttamynd

Kompás í Ekvador

Hópur flóttamanna frá Kómumbíu er væntanlegur til Íslands 9. október næstkomandi. Kompás var í Ekvador í sumar, þangað sem hópurinn flúði undan skæruliðum í heimalandi sínu. Við kynnumst hrikalegum veruleika flóttamannanna sem búa sig nú undir að hefja nýtt líf á Íslandi. Kompás er á dagskrá kl. 21:45 alla þriðjudaga á Stöð 2

Stöð 2
Fréttamynd

Tilraun til brots

Gott kvöld og velkomin í Kompás. Í kvöld skoðum við refsilöggjöf Norðmanna og Svía í kynferðisbrotamálum gegn börnum og berum saman við íslensku lögin. Við spyrjum; er íslenska refsilöggjöfin nægjanlega skýr þegar kemur að kynferðisbrotamálum gegn börnum? Væri hægt að vinna málin betur ef lögin væru skýrari? Við skoðum það.

Stöð 2
Fréttamynd

Íslenskur stuðningur

Kompásþáttur sem sýndur var í apríl á þessu ári breytti miklu fyrir starf ABC barnahjálpar í Kenýa og ekki síður fyrir Þórunni Helgadóttur sem hefur helgað lífi sínu að hjálpa börnum í landinu. Þrjú hundruð og fjörtíu börn eiga nú fyrir höndum bjartari framtíð í landinu með aðstoð samtakanna.

Stöð 2
Fréttamynd

Mæðgur í Mongólíu

Fyrir íslenska peninga gátu mongólskar mæðgur keypt sér þak yfir höfuðið. Kompás fjallaði um mæðgurnar fyrr á árinu, en þá bjuggu þær inn á fólki - í tjaldi - í einu af fátækrahverfum höfuðborgar Mongólíu. Íslenska peningagjöfin hefur breytt lífi þeirra.

Stöð 2
Fréttamynd

Kompás 2. október

Kompás heimsótti Þórunni Helgadóttur, sendifulltrúá ABC barnahjálpar í Kenýa, fyrr á árinu. Þátturinn hafði mikil áhrif og stuðningur við verkefnið jókst gríðarlega. Logi Bergmann Eiðsson hitti Þórunni nýverið og fékk að forvitnast um þær breytingar sem hafa orðið á starfsemi ABC barnahjálpar í kjölfar þáttarins.

Stöð 2
Fréttamynd

Giddings unglingafangelsið

Gott kvöld og velkomin í Kompás. Það verða þrjú mjög ólík mál á dagskránni í kvöld. Í sjö ár sat Aron Pálmi Ágústsson í unglingafangelsi í Texas þar sem líkamlegt, andlegt og kynferðislegt ofbeldi var daglegt brauð. Í kvöld segir Kompás frá hneykslismálum sem hafa sett stór skörð í kerfi sem afplánun Arons Pálma byggðist á. Við heimsækjum fangelsið. Eftir 450 ára hlé á klausturlifnaði munka á Íslandi heimsækir Kompás, Cappuchin munkana að kollaleiru í Reyðarfirði. Átök um háspennulínur, virkjanir og álver hreyfa ekki við munkunum sem lifa í sátt og samlyndi við Guð og menn á þessum afskekkta stað. Og í lokin kynnum við fyrir fólki tækifæri til að segja sögur sínar af uppvextinum í Reykjavík. En við byrjum í Texas.

Stöð 2
Fréttamynd

Munkalíf

Söguleg tímamót urðu á dögunum þegar klausturlifnaður munka var endurreistur á Íslandi eftir 450 ár. Munkalaustur að Kollaleiru í Reyðarfirði var vígt en þar verða fyrst um sinn þrír brúnklæddir hettumunkar frá Slóvakíu. Bænir bræðranna eiga að bera jákvæða strauma til íbúanna í andstæðu við átökin sem hafa verið þar um háspennulínurnar sem flutt hafa straum til nýja álversins í Reyðarfirði.

Stöð 2
Fréttamynd

Reykjavíkursögur

Miðstöð munnlegra sögu í Þjóðarbókhlöðunni safnar nú saman heimildum frá fólki á öllum aldri sem á það sameiginlegt að hafa alist upp í Reykjavík. Verkefnið kallast Reykjavíkursögur en markmið þess er að safna saman sögum af lífi borgarbúa, varðveita þær og miðla til almennings. Hver frásögn er einstök og allar gefa þær ólíka mynd af daglegu lífi í Reykjavík á hinum ýmsu tímum.

Stöð 2
Fréttamynd

Áhersla á neytendamál

Í vetur ætlar Kompás að leggja áherslu á umfjöllun um neytendamál. Það hafa allir skoðanir á þeim málum og allir hafa sögur að segja. Eins og ávallt, þá viljum við hvetja áhorfendur til að senda okkur upplýsingar um mál sem þeir vilja að Kompás skoði og leiti svara við. Netfang þáttarins er kompas@stod2.is. Einnig er hægt að senda inn nafnlausar ábendingar með hér til vinstri.

Stöð 2
Fréttamynd

Kompás á leið til Írak

Kristinn Hrafnsson, fréttamaður Kompáss, og Ingi R. Ingason, framleiðandi þáttarins, lögðu af stað til Bagdad í Írak í dag. Þeir munu dvelja í Írak í rúma viku. Þar ætla þeir að fylgjast með síðustu dögum Herdísar Sigurgrímsdóttur í starfi sem upplýsingafulltrúi NATO á vegum Íslensku friðargæslunnar í Írak. Herdís mun fræða þá um starf sitt og ástandið í Írak en hún hefur dvalið á græna svæðinu í Bagdad í um hálft ár. Þá munu Kristinn og Ingi einnig fara um Bagdad og nærliggjandi borgir í fylgd hersveita. Afraksturinn verður sýndur í Kompási í október.

Stöð 2
Fréttamynd

Kompás í Texas

Í næsta þætti Kompás heimsækjum við unglingafangelsið í Giddings í Texas þar sem Aron Pálmi var frá fjórtán ára aldri. Aron Pálmi rifjar upp líf sitt innan rammgerðasta unglingafangelsis Texas þar sem ofbeldi gagnvart föngum var daglegt brauð.

Stöð 2