Kompás

Kompás

Fréttaskýringaþáttur þar sem hin ýmsu málefni eru krufin til mergjar.

Fréttamynd

Með lífið að veði

Rekstur hágæsluherbergis á barnaspítala Hringsins kostar 60 milljónir króna á ári. Rekstur Landspítala háskólasjúkrahúss kostar 30 þúsund milljónir króna á ári.

Stöð 2
Fréttamynd

Kiddi er reiður

Kristinn R.Magnússon valdi ekki að verða öryrki. Hann myndi skila kortinu með öryrkjastimplinum strax á morgun ef hann gæti það. Kiddi varð fyrir hrottalegri árás í Austurstræti fyrir rúmum sjö árum og síðan hefur hann barist fyrir réttlæti.

Stöð 2
Fréttamynd

Fuglaflensan færist nær

Frá því að við fjölluðum síðast um fuglaflensuna hefur veiran breiðst hratt út og fundist í fuglum í 15 Evrópulöndum. Líkur eru taldar á því að veiran fari að finnast í fuglum hér á landi innan tíðar, enda hafa farfuglarnir sem hingað koma, flestir vetursetu í Evrópu.

Stöð 2
Fréttamynd

Peningar og frægð

Heildarvelta IDOLstjörnuleitar á stöð 2 er um 400 milljónir króna. Þessi vinsæli sjónvarpsþáttur er dýrasta verkefni Stöðvar 2 frá upphafi en kostnaðurinn við hvern þátt nemur tæpum fimm milljónum króna.

Stöð 2
Fréttamynd

Vaxandi mein

Stjórnvöld vilja auka réttarvernd fórnarlamba kynferðisbrotamanna og lengja fyrningartímann þannig að lengur verði unnt að koma lögum yfir þá en nú er. Einnig stendur til að herða refsingar fyrir kynferðisbrot gegn börnum yngri en fjórtán ára. En hver skyldi vilja brjóta svo freklega gegn ólögráða, ófermdu barni? Fleiri en okkur óraði fyrir, þegar við hófum vinnslu þessa þáttar.

Stöð 2
Fréttamynd

Gengið í gildru

Meinið vex eins og krabbameinsæxli á þjóðarlíkamanum, það sýna tölur lögreglunnar. Kompás gerði út tálbeitu á Netinu, þóttist vera þrettán ára stúlka í leit að eldri strákum, og þeir skiptu tugum, sem bitu á agnið: Allt frá sextán ára unglingum til karlmanna á sjötugsaldri. Við höfðum samskipti við þá á Netinu, með smáskilaboðum, töluðum við þá í síma og samþykktum stefnumót. Það fór ekki á milli máli hvað þeir ætluðu sér.

Stöð 2
Fréttamynd

Þögnin verst

Börn njóta mannréttinda. Í því felst meðal annars rétturinn til að eiga leyndarmál í friði. Enginn má lesa bréf þeirra, dagbækur og tölvufærslur nema þau leyfi. En uppalandi getur aflað sér leyfis hjá barninu - og þannig, ef til vill, komið í veg fyrir að það verði kynferðisbrotamanni að bráð.

Stöð 2
Fréttamynd

Barnaníðingar á netinu

Býr barnaníðingur í næsta húsi við þig? Það gæti verið. Samkvæmt könnun Kompáss er verulegur áhugi fullorðinna karlmanna á kynlífi með börnum yngri en fjórtán ára. Kompás fjallar um þetta samfélagsmein, þar sem fullorðnir karlmenn reyna eftir ýmsum leiðum að tæla til sín unglinga í gegnum Netið. Kompás egndi gildru fyrir nokkra þeirra og fylgdist með þeim ganga rakleitt í hana.

Lífið
Fréttamynd

Til helvítis

Í kirkju Satans í New York eru íslenskir safnaðarmeðlimir - djöfladýrkendur sem tilbiðja hinn illa. Þeir eru líka til hér á landi, en láta lítið fyrir sér fara. Sögur hafa lengi gengið um ískyggilegar trúarathafnir Satanista. Jóhannes Kr. Kristjánsson ræðir meðal annars við tvo unga menn á höfuðborgarsvæðinu sem hafa selt fjandanum sál sína.

Stöð 2
Fréttamynd

Smælar framan í heiminn

Hvað gerir maður fyrir fjörutíu þúsund krónur á mánuði? Lárus Jónsson þarf að velta hverri krónu tvisvar áður en hann eyðir henni, því að meira hefur hann ekki til ráðstöfunar. En það eru ekki einu áhyggjur hans. Hann hefur glímt við MS sjúkdóminn, illvíga vöðvahrörnun, frá árinu 1978 og í dag er hann bundinn við hjólastól. Hann þarfnast aðstoðar við öll verk; allt frá því að komast fram úr rúminu á morgnana til þess að smyrja brauðsneiðina sína.

Stöð 2
Fréttamynd

Á framabraut

Braut listamannsins er þyrnum stráð. Því hefur að minnsta kosti verið haldið fram. Það hefur líka verið sagt að líf listamannsins sé ein löng reykingarpása. En hvernig gengur ungu listafólki í dag að hasla sér völl? Fá inni í sýningarsölum með myndir sínar og selja verkin? Hvað tekur efnilega listaspíru á framabraut langan tíma að skapa sér nafn?

Stöð 2
Fréttamynd

Er einn sæstrengur nóg?

Farice sæstrengurinn er lífæð Íslendinga sem tengir þá við umheiminn. Á síðasta ári rofnaði sambandið um strenginn hvað eftir annað. Forsvarsmenn hátæknifyrirtækja hafa fengið nóg af bilunum og hafa hótað að fara með fyrirtæki sín úr landi verði ekkert að gert. Viðmælendur Kompáss vilja nýjan streng og það strax.

Stöð 2
Fréttamynd

Ekkert grín

Oft getur lítil þúfa velt þungu hlassi. Jótlandspósturinn í Danmörku birti teiknimyndir af Múhameð spámanni síðasta haust og nú logar allt í átökum. Ekki þarf annað en líta á spjallsíður á Netinu þessa dagana til að átta sig á því að deilan um skopmyndirnar er að snúast upp í umræður - og á stundum ofsafengnar umræður - um grundvallarspurningar í sambúð hins frjálslynda, kristna meirihluta í Evrópu og trúaðra múslima, bæði í Evrópu og um allan heim. Er minnihlutinn að kúga meirihlutann í nafni pólitískrar rétthugsunar og jafnvel ofbeldis eða er meirihlutinn að særa, meiða og misbjóða minnihlutahópi að tilefnislausu?

Stöð 2
Fréttamynd

Síðasti bærinn

Óskarsverðlaunahátíðina í ár munu tveir Íslendingar sækja; þeir Rúnar Rúnarsson leikstjóri og Þórir Snær Sigurjónsson framleiðandi hjá kvikmyndafyrirtækinu Zik Zak. Það teljast stórtíðindi því tilnefningin ein er mikil viðurkenning. Við ræðum við leikstjórann og framleiðandann og skoðum hvaða áhrif tilnefning til óskarsverðlauna hafi á íslenska kvikmyndagerð.

Stöð 2
Fréttamynd

Sköpun goðs

Íslenskar teiknimyndapersónur með heimsþekktar raddir. Já, fyrirtækið Kaoz lætur einskis ófreistað að gera tölvugerðar teiknimyndir sem bestar úr garði. Það er mikið þolinmæðisverk. Afköstin á viku eru mæld í sekúndum, ekki mínútum. Teiknimyndin Anna og skapsveiflurnar kemur á markað í vor og á teikniborðinu er enginn annar en þrumuguðinn Þór.

Stöð 2
Fréttamynd

Ljós í myrkrinu

Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Þetta orðatiltæki hefur sérstaka þýðingu í huga alþingismannsins Helga Hjörvars. Hann saknar þess að sjá fegurðina allt í kringum sig. Alvarleg hrörnun í nethimnu augna hans er nánast búin að gera út af við sjónina.

Stöð 2
Fréttamynd

Við viljum lifa

Guðjón Sigurðsson berst fyrir lífi sínu. Hann þjáist af ólæknandi sjúkdómi sem heitir MND, hreyfitaugahrörnun; sjúkdómi sem leggur fólk að velli á einu til fimm árum frá greiningu. En Guðjón berst ekki bara fyrir lífi sínu. Hann berst fyrir því að MND sjúklingar geti ákveðið hvort þeir fari í öndunarvél á lokastigi sjúkdómsins eða ekki. Hann fékk danskan vin sinn, sem er tengdur við öndunarvél, til að heimsækja Ísland og ræða við ráðamenn um meðferð sína.

Stöð 2
Fréttamynd

Fær fuglaflensan vængi ?

Sóttvarnalæknir hefur svo þungar áhyggjur af hugsanlegum heimsfaraldri vegna fuglaflensuveirnnar að hann hvetur Íslendinga til að safna matarbirgðum. Veiran hefur undanfarið einungis borist úr dýrum í menn en sumir segja það aðeins tímaspursmál hvenær hún fer að smitast manna á milli. Þá þarf ekki að spyrja að leikslokum. Heilu samfélögin og Ísland er þar ekki undanskilið, hreinlega lamast.

Stöð 2
Fréttamynd

Ísland fyrir Íslendinga ?

Toshiki Toma er prestur, japanskur prestur og heldur uppi friðsamlegri baráttu fyrir réttindum nýbúa á Íslandi. En það eru ekki allir sem þakka honum fyrir. Honum hefur verið hótað öllu illu og nú síðast fékk hann, eigum við að segja "hvatningu" í pósti, um að láta af baráttunni. Útlendingar væru ekki velkomnir á Íslandi. Toshiki Toma er að vonum slegin og hann hefur kært þessa bréfasendingu til lögreglunnar. Nýbúar sem Kompás talar við segja að fordómar fari vaxandi í íslensku samfélagi.

Stöð 2
Fréttamynd

Allt að gerast hjá Ampop

Heimsfrægðin blasir við Ampop, íslenskri hljómsveit sem líkt er við allt frá Sigur Rós og Múm til Radio Head. Ampop hefur leikið í Bretlandi upp á síðkastið við góðan orðstír og nýlega kom út þriðja plata sveitarinnar. Kompás var á tónleikum með Ampop í Þjóðleikhúskjallaranum.

Stöð 2
Fréttamynd

Viltu vita eitthvað um Fuglaflensuna?

Fuglaflensan verður til umfjöllunar í Kompási í næstu viku. Fréttir af útbreiðslu hennar vekja kannski fleiri spurningar en svör. Kompás gefur fólki kost á að senda inn spurningar um fuglaflensuna sem þátturinn leitast svo við að svara.

Lífið
Fréttamynd

Dagar í landinu helga

Ekkert landsvæði á jörðinni er jafn umdeilt og lítill skiki fyrir botni Miðjarðarhafs. Saga Palestínu er blóði drifin og það sem gerist þar getur haft áhrif um allan heim. Í landinu helga mætast þjóðir og þjóðarbrot, trúarbrögð og trúarhefðir; það má segja að þar sé á vissan hátt nafli alheimsins. Í þessum þætti förum við til Betlehem á jólum rétttrúnaðarkirkjunnar, heilsum upp á landnema gyðinga sem hafa byggt sér litla paradís á landi sem Ísraelar hertóku af Palestínumönnum og tökum hús á þorpshöfðingja í arabaþorpi nálægt Jeríkó, þar sem hvorki er rafmagn né rennandi vatn.

Stöð 2
Fréttamynd

Hverjir eiga Ísland?

Það eru engin lög á Íslandi sem banna bændum að safna handónýtum bílum, jafnvel þótt bíldruslurnar skipti hundruðum og draslið farið fyrir brjóstið á nágrönnunum. Það var fyrst farið að vinna að því að hreinsa til í sveitum landsins fyrir um tuttugu árum, undir kjörorðum einsog Hreinir hreppar, fegurri sveitir og svo framvegis, en fagnaðarerindið hefur aldrei borist vestur að Garðstöðum við Ísafjarðardjúp. Í því tilviki er full ástæða að spyrja einsog Jón Baldvin Hannibalsson, sem einu sinni var kúasmali í Ögri og síðar leiðtogi jafnaðarmanna: Hverjir eiga Ísland?

Stöð 2
Fréttamynd

Í grjótinu

Á Litla Hrauni eru 75 fangar. Þeir sitja inni fyrir mismunandi brot; allt frá skjalafalsi til manndráps. Þeir segja aðstöðuna í fangelsinu góða og hrósa starfsfólkinu - með fáum undantekningum. En þeir gagnrýna margt; segja geðlæknisþjónustu litla, atvinnuúrræði fá og almenna uppbyggingu fyrir lífið slæma.

Stöð 2
Fréttamynd

Kynlíf, dóp og vandamál

Framboðið af fíkniefnum er mikið á Litla Hrauni. Og eftirspurnin einnig. Það virðist vera auðvelt að smygla efnunum inn í fangelsið. Ofbeldi er fremur fátítt á Hrauninu, en einelti er vel þekkt, sérstaklega gegn barnaníðingum.

Stöð 2
Fréttamynd

Leiðin heim

Jólaandinn svífur yfir vötnum á Litla Hrauni. Lítil jólatré í flestum klefum bera þess ótvíræð merki. En það er samt þungt hljóðið í föngunum - þá langar heim.

Stöð 2
Fréttamynd

Fjallaþorp í Kasmír

Aðstæður þeirra sem nú dvelja í tjöldum eða jafnvel úti undir berum himni langt uppi í Himalayafjöllum eru nöturlegar. Þarna eru karlar, konur og börn sem hafa misst allt sitt en eru staðráðin í að þrauka í vetur. Snjórinn byrjar að falla fyrir alvöru á næstu dögum og þá er óvíst um framtíð hjálparstarfsins. Læknar eru þegar farnir að sjá tilfelli lungnabólgu og iðrapesta og það er sennilega bara byrjunin. Við skulum fara upp í fjöllin og líta á aðstæður þeirra sem þar ætla að búa í vetur.

Stöð 2
Fréttamynd

Hamfarirnar í Pakistan 8. október

Náttúruhamfarirnar í Pakistan ýttu, af einhverjum orsökum, minna við umheiminum en til dæmis flóðbylgjan í Indlandshafi. En á síðustu fimmtíu árum hafa einungis tveir jarðskjálftar ollið meira manntjóni. Tölurnar tala sínu máli; þrjár milljónir misstu heimili sín, 800 þúsund manns hafa ekki komist í húsaskjól og milli sjötíu og níutíu þúsund manns létu lífið. Og hugsanlega er það bara byrjunin því nú er vetur að ganga í garð fyrir alvöru og menn óttast enn frekara mannfall ef ekki tekst að koma fólki í skjól á næstu dögum.

Erlent
Fréttamynd

Spítalinn hennar Hildar

Fimm Íslendingar hafa starfað á skjálftasvæðum í Pakistan á vegum Rauða krossins og sá sjötti er á leiðinni út, þyrluflugmaður. Íslendingarnir gegna margvíslegum störfum, eins og þegar hefur komið fram, og í bænum Abbottabad má finna íslenskan hjúkrunarfræðing sem stjórnar tjaldsjúkrahúsi fyrir fórnarlömb jarðskjálftans.

Stöð 2