Kompás

Kompás

Fréttaskýringaþáttur þar sem hin ýmsu málefni eru krufin til mergjar.

Fréttamynd

Þrautarganga foreldra

Í næsta Kompásþætti segja foreldrar frá þrautagöngu sinni eftir að grunur kviknaði um að börn þeirra hefðu verið beytt kynferðislegu ofbeldi. Þeir gagnrýna harkalega það úrræðaleysi sem mætir þeim þegar leitað er eftir aðstoð. Öll voru börn þeirra ung þegar meint kynferðiselgt ofbeldi átti sér stað og þótt börnin segi frá ofbeldinu sé ekki ákært vegna skorts á sönnunum.

Stöð 2
Fréttamynd

Harmsaga úr Keflavík

Áföllin sem fjölskylda Kristins Veigars Sigurðssonar hefur orðið fyrir eru fjölmörg; Allt frá því að hann lést og þartil pólskur maður sem grunaður er um að hafa keyrt á Kristinn Veigar, fór af landi brott í febrúar.

Stöð 2
Fréttamynd

Ákall um hjálp

Lögreglu hefur ekki tekist að sanna að hinn grunaða hafi ekið bifreiðinni sem keyrði á Kristinn Veigar og vitni segja að hann hafi verið annarsstaðar á þeim tíma sem slysið varð.

Stöð 2
Fréttamynd

Ákall til almennings

Föstudaginn 30. nóvember var keyrt á Kristinn Veigar Sigurðsson, 4 ára dreng í Keflavík. Ökumaður bílsins sem keyrði á hann flúði af vettvangi. Kristinn Veigar var fluttur með sjúkrabíl á gjörgæsludeild í Reykjavík. Hann lést vegna höfuðáverka á gjörgæsludeild laugardaginn 1. desember. Pólverji, ökumaður bílsins, var handtekinn sama dag og drengurinn lést. Hann hefur ávallt neitað sök og er nú farinn úr landi. Foreldrar Kristins Veigars óska eftir upplýsingum og aðstoð frá almenningi um slysið. Þau óska sér einskis heitar en að maðurinn sem keyrði á litla drenginn þeirra svari til saka. Kompás verður sýndur í opinni dagskrá og með pólskri þýðingu þriðjudaginn kl: 21:50 á Stöð 2.

Stöð 2
Fréttamynd

Í okkar nafni

Þrátt fyrir að stríð sé sagt andstætt þjóðarvitund Íslendinga hefur einn og einn mörlandi orðið beinn þáttakandi í hildarleik átaka. Við kynnumst Jóni Þór Baldvinssyni liðþjálfa en hann er í bandaríska hernum í Írak og berst, að eigin sögn, ekki aðens fyrir Bandaríkjamenn heldur alla Íslendinga. Jón Þór er eini íslenski hermaðurinn í Írak. Jón Þór er bæði bandarískur og íslenskur ríkisborgari. Hann hefur í starfi sínu séð ljótleika átakanna og þurft að hlynna að limlestum félögum sínum og íröskum borgurum. Hann hefur þátt fyrir allt fulla trú á því að hann og hans félagar séu í réttlátum aðgerðum.

Stöð 2
Fréttamynd

Æskudraumur

Amma og afi Jóns Þórs hafa enga tiltrú á þessum stríðsrekstri Bandaríkjamanna í Írak og óttast um drenginn sinn. Strákurinn sem ólst upp í Fellahverfinu sýndi þó snemma mikinn áhuga á hermennsku svo að núverandi starf kemur þeim ekki ýkja mikið á óvart.

Stöð 2
Fréttamynd

Íslenskur hermaður í Írak

Í næsta Kompásþætti kynnumst við Jóni Þór Baldvinssyni liðþjálfa sem er bráðaliði í bandaríska hernum og eini íslenski hermaðurinn í Írak. Jón Þór er með íslenskan og bandarískan ríkisborgararétt og berst, að eigin sögn, ekki aðens fyrir Bandaríkjamenn heldur alla Íslendinga. Amma og afi Jóns Þórs hafa enga tiltrú á þessum stríðsrekstri Bandaríkjamanna í Írak og óttast um drenginn sinn. Strákurinn sem ólst upp í Fellahverfinu sýndi þó snemma mikinn áhuga á hermennsku svo að núverandi starf kemur þeim ekki ýkja mikið á óvart. Kompás er á dagskrá kl.21:50 á þriðjudögum á Stöð 2.

Stöð 2
Fréttamynd

Afneitun og úrræðaleysi

Við höldum áfram umfjöllun okkar um meðferð langt leiddra fíkla á geðdeild Landspítala háskólasjúkrahúss. Talsmaður hagsmunasamtaka geðsjúkra gagnrýnir spítalann harðlega og það gera foreldrar sjúklinganna einnig. Stöðugt bætist í harða gagnrýni á geðdeild Landspítalans þegar kemur að meðferð langt leiddra fíkla. Spítalinn er sakaður um lögbrot og læknastéttin um afneitun sem jaðri við sjúkleika. Heilbrigðiskerfið gefi þau skilaboð að dauðinn einn geti leyst vandann. Viðmótið líkist hinni "endanlegu lausn" sem Hitler beitti gegn óæskilegum þegnum Þriðja ríkisins.

Stöð 2
Fréttamynd

Enn á Sogni

Baldvin Kristjánsson hefur verið innilokaður á réttargeðdeildinni að Sogni síðustu fimmtán ár. Kompás sagði frá Baldvini í október á síðasta ári og þar komu fram upplýsingar sem styðja að Baldvin eigi ekki heima á réttargeðdeildinni. Hann á heima með þroskaheftum. Engin úrræði hafa enn fundist fyrir Baldvin.

Stöð 2
Fréttamynd

Meðferð langt leiddra fíkla

Í næsta Kompásþætti verður haldið áfram umfjöllun um meðferð langt leiddra fíkla á geðdeild Landspítala-háskólasjúkrahúss. Talsmaður hagsmunasamtaka geðsjúkra gagnrýnir spítalann harðlega og það gera foreldrar sjúklinganna einnig.

Stöð 2
Fréttamynd

Dauðadópið

Frá því í nóvember 2005 hefur Kompás fjallað mikið um læknadóp. Kompás hefur tvisvar sýnt fram á auðvelt aðgengi að læknadópi með hjálp falinna myndavéla og annað skiptið keypti 16 ára tálbeita Kompáss stórhættulegt morfín á götunni. Fréttablaðið greindi frá því nýverið að átján ára unglingur hefði látist eftir neyslu morfíns. Morfín er stórhættulegt efni sé það misnotað, en á hverju ári deyja um sex einstaklingar af völdum ofneyslu morfíns.

Innlent
Fréttamynd

Fíklar í meðferð

Fimmtíu til sextíu manns eru í svokallaðri viðhaldsmeðferð hjá SÁÁ. Meðferð sem gagnast morfínfíklum, fíklum sem ganga í gegnum helvíti í fráhvarfseinkennum. Landlæknisembættið og SÁÁ segja að framboðið af morfínefnum hafi minnkað á götunni. Fíklarnir eru ekki sammála.

Stöð 2
Fréttamynd

Í mynd

Íslendingar, Ísland og börn um víða veröld er meðal þess sem hefur fangað hug Sigurgeirs Sigurjónssonar ljósmyndara síðustu áratugi. Myndir hans hafa heillað marga enda þykir hann hafa næmt auga fyrir ólíkum blæbrigðum íslenskrar náttúru og einstökum karakterum. Kompás heimsótti Sigurgeir á vinnustofu hans og forvitnaðist um óútkomnar bækur og flakk á fjarlægun slóðum.

Stöð 2
Fréttamynd

Viðhaldsmeðferð við læknadópi

Á hverju ári deyja um sex einstaklingar af völdum ofneyslu morfíns, sem er stórhættulegt efni séð það misnotað. Kompás hefur frá því í nóvember 2005 fjallað mikið um þetta læknadóp og sýnt fram á hversu auðvelt er að nálgast það á götunni. Um 50-60 manns eru í svokallaðri viðhaldsmeðferð hjá SÁÁ, en stór hluti þeirra eru morfínfíklar. Landlæknisembættið og SÁÁ segja að framboðið af morfínefnum hafi minnkað á götunni. Fíklarnir eru ekki sammála.

Stöð 2
Fréttamynd

Týnd!

Tuttugu og fimm ára kona hefur síðustu mánuði háð harða baráttu við að finna gögn í kynferðisbrotamáli sem hún tilkynnti árið 1995. Einungis lítill hluti gagnanna hefur fundist og játar félagsþjónusta Hafnarfjarðar að það sé áfellisdómur yfir stofnuninni. Við heyrum sögu konunnar og leitum skýringa á alvarlegu hvarfi þessara viðkvæmu gagna.

Stöð 2
Fréttamynd

Að leita réttar síns

Stór hluti af gögnum Barnaverndanefndar Hafnarfjarðar í máli Lovísu hefur horfið úr vörslu félagsmálayfirvalda. Það þurfti harða eftirfylgni umboðsmanna Alþingis til að fá skýringar. Málið er litið afar alvarlegum augum hjá Barnaverndarstofu en Lovísa sjálf hefur ekki ákveðið hvort hún kæri Félagsþjónustu Hafnarfjarðar.

Stöð 2
Fréttamynd

Á réttri braut

Fjölgreinanám og Fjölsmiðjan eru meðal þeirra úrræða sem bjóðast ungu fólki með námsörðugleika eða sem hafa flosnað upp úr námi. Hópurinn er stór og þrátt fyrir að úrræðin séu nokkur, þá er þörfin enn meiri. Þeir sem þangað leita eru oft með brotna sjálfsmynd en koma þaðan bættari og betur undirbúinir fyrir frekar nám og vinnu.

Stöð 2
Fréttamynd

Gögnin týnd

Í næsta þætti segjum við sögu ungrar konu sem þrettán ára að aldri tilkynnti um kynferðislega misnotkun. Hún segist hafa verið neydd til að draga málið til baka á sínum tíma. Konan kærði meintan geranda fyrir einu ári en henni hefur reynst erfitt að leita réttar síns. Meðal annars vegna þess að gögn Barnaverndarnefndar í málinu eru týnd.

Stöð 2
Fréttamynd

Sætur dauði!

Vöruframboð í verslunum á Íslandi er allt annað í dag en fyrir tíu árum. Sætindi fá meira pláss í hillum verslananna. Af þessu leiða ýmis vandamál, svo sem mikil aukning áunnninnar sykursýki og sjúkdóma tengdum offitu. Þetta er meðal þess sem við skoðum í kvöld í fróðlegri úttekt Björns Þorlákssonar.

Stöð 2
Fréttamynd

Ekkert svigrúm

Febrúar er talinn erfiðasti mánuður fólks sem hefur lægstar tekjur í íslensku samfélagi. Margir leita ráða hjá Ráðgjafastofu um fjármál heimilanna, en þar er stuðst við neyslutölur sem eru þrettán ára gamlar. Síðan í nóvember hefur Kompás fylgst með baráttu Guðrúnar Stellu Gunnarsdóttur öryrkja í baráttu við kerfið. Hún er afar ósátt við neyslutölur ráðgjafastofunnar.

Stöð 2
Fréttamynd

Offita að aukast á Íslandi

Offita er að verða alvarlegasta heilbrigðisvandamál Íslands. Áunnin sykursýki og ýmsir fleiri lífsstíls- og velmegunarsjúkdómar tengdir offitu, eru að brjóta þjóðina á bak aftur og horfir illa hjá komandi kynslóðum að óbreyttu. Því er spáð að í Bandaríkjunum verði lífslíkur barna bráðlega minni en hjá foreldrum þeirra vegna vandamála sem tengjast offitu. Kompás ræddi við hóp lækna um þyngdaraukningu Íslendinga og mein sem því fylgja. Öllum ber læknunum saman um að offita sé orðin að þjóðarmeini. Kompás er á dagskrá á kl: 21:50 á þriðjudögum á Stöð 2.

Stöð 2
Fréttamynd

Afhjúpun og eftirskjálftar

Guðmundur Jónsson, fyrrverandi forstöðumaður Byrgisins, hefur verið ákærður fyrir kynferðislega misnotkun á fjórum konum. Þær voru allar illa farnar eftir áralanga fíkniefnaneyslu og voru í meðferð í Byrginu þegar meint brot voru framin. Við rifjum upp Byrgismálið og umræðurnar sem sköpuðust í samfélaginu þegar umdeildur Kompásþáttur greindi fyrst frá misnotkuninni og fjármálaóreiðunni. Kaffistofurnar loguðu og salir Alþingis ekki síður. Við ræðum við mæður þriggja stúlkna sem lögðu fram kærur á hendur Guðmundi. Og við skoðum hvernig kerfið aðstoðaði þessar stúlkur og fólkið sem kom úr Byrginu. Loforðin voru skýr, en hverjar voru efndirnar?

Stöð 2
Fréttamynd

Ábyrgð og efndir

Þegar Byrginu var lokað brást fyrir marga síðasta haldreipið í harðvítugri baráttu þeirra við sinn andlega sjúkdóm. Á meðan var þrefað um pólitíska ábyrgð á Alþingi. Ráðherrar stigu loks fram og lofuðu úrræðum fyrir Byrgisfólkið en Kompás heyrir nú vitnisburð um að hið opinbera hafi brugðist hrapalega, ekki síst frá mæðrum þeirra stúlkna sem kærðu forstöðumanninn fyrir kynferðislega misbeitingu.

Stöð 2
Fréttamynd

Enn í rannsókn

Guðmundur Jónsson er grunaður um stórfelld skattalagabrot og fjárdrátt upp á tugmilljónir króna. Þeirri rannsókn lýkur í lok febrúar. Lögreglumenn þurftu að grafa upp bókhaldsgögn Byrgisins úr bakgarði Guðmundar. Svartri skýrslu um bókhald Byrgisins var fleygt á milli pólitíkusa. Það vildi enginn axla ábyrgðina.

Stöð 2
Fréttamynd

Guðmundur í Byrginu ákærður

Guðmundur í Byrginu hefur verið ákærður fyrir brot gagnvart fjórum konum, þar af einni undir lögaldri. Hún segir sögu sína í næsta þætti. Þrjár mæður fórnarlamba stíga fram og tjá sig um málið og eftirleikinn. Kompás rifjar upp eitt athyglisverðasta sakamál seinni tíma. Þrettán mánuðir eru liðnir síðan Kompás greindi frá því að Guðmundur tók ítrekað þátt í kynlífsathöfnum með ungum konum sem voru skjólstæðingar Byrgisins þegar hann var forstöðumaður þess. Tugmilljóna skattsvikamál eru til rannsóknar. Bókhald Byrgisins fannst grafið í bakgarði Guðmundar.

Stöð 2
Fréttamynd

Hótanir í Vogum

Grimmd undirheimanna er ekki bundin við þá eina sem þar lifa og hrærast, fjölskyldurnar þjást og verða jafnvel fórnarlömb ofbeldisverka. Þó unga fólkið losni úr neyslunni sitja skuldirnar eftir, raunskuldir og upplognar. Foreldrunum er hótað af handrukkurum sem svífast einskis. Við segjum frá fimm manna fjölskyldu í Vogum á Vatnsleysuströnd sem sætti sig ekki við ofbeldishótanir og þvinganir. Kompás fylgdist með aðgerðum lögreglu og andrúmsloftinu á heimilinu.

Stöð 2
Fréttamynd

Ofsögur úr undirheimum

Hugrekki Ragnars hefur orðið samfélaginu í Vogum hvatning til að snúa vörn í sókn. Lögreglan hvetur fólk til láta ekki ofsögur af ofbeldi handrukkara hindra sig í því að leita liðsinnis lögreglu.

Stöð 2
Fréttamynd

Sigur Rögnu

Í byrjun nóvember á liðnu ári sögðum við frá baráttu Rögnu Bjarkar Þorvaldsdóttur gegn Tryggingarstofnun en hún þurfti sjálf að bera kostnað af lífsnauðsynlegum lyfjum í áratugi - lyfjum sem ríkið átti alla tíð að borga. Hún þurfti að sækja sinn rétt fyrir dómstólum og Hæstiréttur felldi dóm í málinu í síðustu viku.

Stöð 2
Fréttamynd

Handrukkarar og fórnarlömb þeirra

Grimmd undirheima fíkniefnanna er ekki bundinn við þá eina sem þar lifa og hrærast, fjölskyldurnar þjást og verða jafnvel fórnarlömb ofbeldisverka. Þó börnin losni úr neyslunni sitja skuldirnar eftir, raunskuldir og upplognar. Foreldrunum er hótað af handrukkurum sem svífast einskis, bæði með hótunum og líkamsmeiðingum.

Stöð 2
Fréttamynd

Í bóli bjarnar

Rússland er á ný rísandi veldi. Pútín forseti notar olíupeningana til að styrkja herinn, meðal annars til að senda herskip og flugvélar á gamlar slóðir. Á sama tíma vilja Rússar fá að taka fullan þátt í alþljóðlegu viðskiptakerfi. Þeir vilja meðal annars selja Íslendingum þyrlur, en þykjast mæta undarlegum mótþróa. Þórir Guðmundsson og Ingi R. Ingason fóru til Rússlands, fóru í ból Bjarnarins.

Stöð 2