Tónlist

Tónlist

Fréttir af innlendum og erlendum tónlistarmönnum, uppákomum og myndböndum.

Fréttamynd

Gus Gus fagnar

Gus Gus fagnaði útgáfu nýjustu plötu sinnar með teiti á Sirkus síðastliðið fimmtudagskvöld. Platan, sem ber nafnið Forever, er fimmta stúdíóplata sveitarinnar. Eiginlegir útgáfutónleikar verða haldnir á Nasa í lok mars, en það var enginn skortur á fólki sem vildi gleðjast með Gus Gus-flokknum á fimmtudagskvöldið.

Tónlist
Fréttamynd

Sameinaðir kraftar

Tónlistarskólinn á Akureyri heldur dag tónlistarskólanna hátíðlegan og efnir til mikillar músíkveislu ásamt Sinfóníuhljómsveit Norðurlands um helgina.

Tónlist
Fréttamynd

Muse valin best á NME

Rokksveitin Muse var valin besta breska sveitin á NME-tónlistarverðlaununum sem voru afhent á dögunum. The Arctic Monkeys hlaut tvenn verðlaun, þar á meðal fyrir bestu plötuna, Whatever People Say I Am, That"s What I"m Not.

Tónlist
Fréttamynd

Frjótt ímyndunarafl Simone

Émilie Simon heldur tónleika í Háskólabíó annað kvöld í tengslum við frönsku menningarhátíðina Franskt vor á Íslandi. Émilie nýtur mikilla vinsælda í Frakklandi.

Tónlist
Fréttamynd

Ekki bara Öxar við ána

Skólahljómsveit Kópavogs er ein elsta og virtasta skólalúðrasveit landsins og fagnar 40 ára afmæli sínu um þessar mundir. Á morgun verða haldnir tónleikar í Háskólabíói þar sem félagar hennar fagna þessum tímamótum með óvenjulegri efnisskrá.

Tónlist
Fréttamynd

Íslenskur blús í Kína

„Kínverjar hafa ekki kynnst blúsnum að ráði en eru þó hrifnir af honum, sérstaklega hér í Sjanghæ sem er hliðið að umheiminum í þessum efnum," segir tónlistarmaðurinn KK.

Tónlist
Fréttamynd

Elton John planar tónleikaferð

Íslandsvinurinn Elton John fagnar bráðum sextugs afmæli sínu. Hann hefur verið með sýningu í Las Vegas en nú ætlar hann að fara með þá sýningu til fimm borga í Evrópu. Er þetta í tilefni þess að hann er búinn að skemmta í 40 ár og er að fylla 60 árin.

Tónlist
Fréttamynd

Í aðra tónleikaferð

Strákasveitin Take That ætlar í lok ársins í sína aðra tónleikaferð um Bretland síðan hún kom saman á nýjan leik á síðasta ári. Ferðin mun heita The Beautiful World Tour og munu þeir félagar meðal annars spila í London, Glasgow og í Manchester.

Tónlist
Fréttamynd

Náttúra og strengir

Elísabet Waage hörpuleikari og Hannes Guðrúnarson gítarleikari halda tónleika í Salnum í Kópavogi á morgun.

Tónlist
Fréttamynd

Reykvél og ljósprik

Stórt „90s“ partí verður haldið á Nasa annað kvöld. Uppselt var í síðasta partí, sem var haldið á gamlárskvöld, og ætlaði þakið hreinlega að rifna af húsinu.

Tónlist
Fréttamynd

Til heiðurs Tony Joe White

Mugison, Baddi úr Jeff Who?, Jenni úr Brain Police og Þorsteinn Einarsson, fyrrverandi söngvari Hjálma, eru á meðal þeirra sem munu syngja á nýrri plötu til heiðurs bandaríska blúsrokkaranum Tony Joe White.

Tónlist
Fréttamynd

Völuspá í útvarpi

Í dag skulu menn leggja við hlustir - skeggöld, skálmöld, skildir eru klofnir. Vindöld, vargöld, áður veröld steypist. Hér mun enginn maður öðrum þyrma.

Tónlist
Fréttamynd

Vasahljómkviða frá Japan

Smekkmennirnir og tilvonandi Íslandsvinirnir í frönsku hljómsveitinni Air senda frá sér nýja plötu eftir helgina. Pocket Symphony er þeirra fimmta plata. Trausti Júlíusson forvitnaðist um gerð hennar.

Tónlist
Fréttamynd

VAX á austurlandi

Hljómsveitin VAX leggur land undir fót næstu helgi og ætlar að spila á Egilsstöðum föstudaginn 2. mars á Svarthvítu hetjunni og 3. mars á Kaffihorninu á Höfn í Hornafirði á Norðurljósablúshátíðinni.

Tónlist
Fréttamynd

Dómaraskotin verða fastari

Sjötta úrslitakvöldið í X-Factor fer fram í beinni útsendingu frá Vetrargarðinum í Smáralind á morgun föstudag. Sjö atriði eru eftir og margir eru á því að línur séu farnar að skýrast.

Tónlist
Fréttamynd

Hljómsveitin Roof Tops snýr aftur

Það hefur verið rífandi stemning á æfingum hjá hljómsveitinni Roof Tops að undanförnu, en þeir félagar hafa æft af kappi fyrir dansleiki á Kringlukránni nú um helgina, á föstudags- og laugardagskvöld, 2. og 3. mars.

Tónlist
Fréttamynd

Þungarokk á Hróarskeldu

Hátíðin tilkynnir með stolti nokkrar þungarokkhljómsveitir til leiks. Hljómsveitirnar eru: Mastodon (US), Pelican (US), Cult of Luna (S) og mikla þungavigtarvini Roskilde hátíðarinnar: SLAYER (US).

Tónlist
Fréttamynd

GusGus á Nasa

Hljómsveitin GusGus fagnar útgáfu breiðskífunnar FOREVER með útgáfutónleikum á NASA, laugardagskvöldið 24. mars. Þá verður ár liðið frá því sveitin spilaði síðast í Reykjavík á eftirminnilegum tónleikum sem fóru einmitt fram á NASA. Tónleikarnir eru jafnframt útgáfutónleikar hljómsveitar Petter Winnberg úr Hjálmum, Petter & The Pix, sem í lok síðasta árs gáfu út skífuna Easily Tricked.

Tónlist
Fréttamynd

Dagur tónlistarskólanna

Nú um helgina, dagana 3.-4. mars stendur mikið til hjá Tónlistarskólanum á Akureyri og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Tónlistarskólinn heldur hátíðlegan dag tónlistarskólanna með tónleikum í Ketilhúsinu laugardaginn 3. mars þar sem verða tónleikar í gangi allan daginn, nemendur á öllum stigum koma fram og mikil fjölbreytni í tónlist og hljóðfærum sem leikið er á.

Tónlist
Fréttamynd

Raggi Bjarna og Eivör á stórtónleikum

Stórsöngvarinn Ragnar Bjarnason, sem er öllum kunnur sem Raggi Bjarna, syngur á tónleikunum Heyr mitt ljúfasta lag í Háskólabíói 3. mars næstkomandi.Með honum verður Eivör Pálsdóttir, og hundrað manna föruneyti.

Tónlist
Fréttamynd

Klaxons á Hróarskeldu

Bresku hljómsveitirnar Klaxons, sem spilaði á síðustu Airwaves-hátíð, og Basement Jaxx hafa bæst hóp þeirra sem koma fram á Hróarskelduhátíðinni í byrjun júlí.

Tónlist
Fréttamynd

The Abbatoir Blues Tour - fjórar stjörnur

Þessi tvöfaldi DVD-mynddiskur hefur að geyma lög sem Nick Cave tók upp með hljómsveit sinni The Bad Seeds á tvennum tónleikum í London 2003 og 2004. Þeir fyrri voru haldnir til að fylgja eftir tvöföldu plötunni Abbatoir Blues/The Lyre of Orpheus en hinir síðari til að fylgja eftir Nocturama.

Tónlist
Fréttamynd

Ungir spreyta sig

Ekki verður sýningum fyrr lokið á Flagara í framsókn í Íslensku óiperunni í Ingólfsstræti en það koma nýjar sviðsetningar upp. Það er tveir ástsælir einþáttungar eftir meistarann Giacomo Pucchini sem Óperustúdíó Íslensku óperunnar stendur fyrir: Systur Angelicu og Gianni Schicchi. Er frumsýning fyrirhuguð 21. mars. Æfingar eru komnar vel á veg og taka yfir þrjátíu söngnemendur og fjörtíu nemendur í hljóðfæraleik þátt í verkefninu.

Tónlist
Fréttamynd

Tónaflóð

Franski orgelsnillingurinn Vincent Warnier heldur tónleika á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju í dag og þenur hið stórfenglega Klais-orgel Hallgrímskirkju á franska vísu.

Tónlist
Fréttamynd

Í góðum hópi

Guðlaugur Kristinn Óttarson tónskáld og gítarleikari með meiru heldur tónleika í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar í kvöld kl. 20.

Tónlist
Fréttamynd

Ferðast um Evrópu

Rokksveitin Metallica ætlar að taka sér pásu frá upptökum á næstu plötu sinni og fara í tónleikaferð um Evrópu í sumar.

Tónlist
Fréttamynd

Steintryggur og Flís spila

Hljómsveitirnar Steintryggur og Flís spila á tónleikum í Kartöflugeymslunni við Ártúnsbrekku í kvöld í tilefni af Vetrarhátíð Reykjavíkur. Þeir sem koma fram fyrir hönd Steintryggs eru Sigtryggur Baldursson, Steingrímur Guðmundsson og Átralinn Ben Frost sem sér um tölvutóna. Leika þeir tónlist af væntanlegri plötu Steintryggs. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.00 og er aðgangur ókeypis.

Tónlist
Fréttamynd

Godcrist tónleikar í Hafnarborg

Sunnudaginn 25. febrúar, kl. 20.00 verða haldnir tónleikar Guðlaugs Kristins Óttarssonar í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar. Með Guðlaugi verða á tónleikunum níu þekktir hljóðfæraleikarar og leikin verða verk eftir Vivaldi, Bach og Charles Mingus, auk tónverka Guðlaugs sjálfs, sem eru aðalefni tónleikanna. Hér er því um að ræða mikinn viðburð og fjölbreytta dagskrá.

Tónlist
Fréttamynd

Orgeltónleikar í Hallgrímskirkju

Á morgun, sunnudag, mun franski orgelsnillingurinn Vincent Warnier halda tónleika í Hallgrímskirkju. Eru tónleikarnir á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju og haldnir í tengslum við franska menningardaga.

Tónlist