Tónlist

Tónlist

Fréttir af innlendum og erlendum tónlistarmönnum, uppákomum og myndböndum.

Fréttamynd

Þrúgurnar ópera

Því er oft haldið fram að nútíminn eignist aldrei óperur sem lifa og fyrir bragðið sé alltaf gripið sama gamla dótið frá ýmsum skeiðum iðnbyltingarinnar. Nú hafa Ameríkanar eignast nýja óperu eftir Þrúgum reiðinnar eftir John Steinbeck. Sviðsgerð var leikin hér af verkinu 1991-2 við miklar vinsældir og var um sumt sniðin eftir Steppenwulf-útgáfunni frá Chicago. Kvikmynd Johns Ford er meistaraverk og svo er sagan ekki beinlínis kunn fyrir að sölna í tímans rás.

Tónlist
Fréttamynd

Mikill áhugi á Glastonbury

Glastonbury tónlistarhátíðin í Bretlandi er ein vinsælasta tónlistarhátíð í heimi. Nú hafa um 175 þúsund manns skráð sig til að fá miða á hátíðina sem verður haldin 22. til 24. júní næstkomandi. Hátíðin ber 177.500 manns en aðeins verða um 140 þúsund miðar í boði fyrir almenning.

Tónlist
Fréttamynd

Baggalútur á Bessastöðum

Drengirnir í Baggalúti troða upp á Bessastöðum í dag. Guðmundur Pálsson segir þetta mikinn heiður, enda séu þeir allir aðdáendur forsetans og konu hans.

Tónlist
Fréttamynd

Íslensk tónlist á Amie Street

Fjölmargar íslenskar hljómsveitir og listamenn hafa undanfarið nýtt sér Amie Street, sem er tónlistarbúð á netinu þar sem hver sem er getur opnað sitt búðarhorn og selt sína tónlist.

Tónlist
Fréttamynd

Sign í tónleikaferð

Rokkhljómsveitin Sign er farin í tónleikaferð um landið til að hita upp fyrir ferð sína til Bandaríkjanna í byrjun mars. Sveitin spilar nú í fyrsta skipti með nýjum bassaleikara, Heimi Hjartarsyni, sem var áður í hljómsveitinni Nevolution frá Akureyri sem hefur tekið sér frí frá störfum.

Tónlist
Fréttamynd

Lay Low í Þórlákshöfn

Tónlistarkonan Lay Low, sem kom, sá og sigraði á Íslensku tónlistarverðlaununum, verður með tónleika í Þorlákshöfn, á morgun miðvikudaginn 21. febrúar. Verða tónleikarnir haldnir í Versölum og hefjast klukkan 20:00. Eru tónleikarnir liður í tónleikaröðinni Tónar við hafið.

Tónlist
Fréttamynd

Svíar krefjast nærveru Eiríks

„Svíarnir sem framleiða þáttinn heyrðu af sigri Eiríks og vildu ólmir halda honum í þættinum. Töldu það bara vera þættinum til framdráttar að vera með sigurvegara innanborðs,“ segir Páll Magnússon, útvarpsstjóri í Efstaleitinu.

Tónlist
Fréttamynd

Lady Sovereign - þrjár stjörnur

Lady Sovereign heitir réttu nafni Louise Harman og ólst upp í alræmdu fátækrahverfi í Norður-London. Hún vakti fyrst athygli þegar hún setti efni með sér inn á aðdáendasíðu bresku rappsveitarinnar So Solid Crew. Hún var þá 14 ára. Hún átti lag á Grime-safnplötunni Run The Road sem kom út árið 2005, en Grime-tónlistin er sambland af garage-danstónlist og rappi og hefur verið áberandi í London síðustu ár.

Tónlist
Fréttamynd

Plata um Kaliforníu

Vangaveltur eru uppi um að næsta plata bandaríska tónlistarmannsins Sufjan Stevens muni fjalla um Kaliforníu. Sufjan hefur lýst því yfir að hann ætli að semja plötu um öll fimmtíu ríki Bandaríkjanna. Þegar hefur hann gefið út plöturnar Michigan, sem kom út 2003, og Illinois sem kom út tveimur árum síðar.

Tónlist
Fréttamynd

Tónlist af amerískum ættum

Ingveldur Ýr Jónsdóttir mezzósópransöngkona og píanóleikarinn Kurt Kopecky flytja aríur og sönglög af amerískum uppruna á hádegistónleikum Íslensku óperunnar í dag. Á efnisskrá dagsins, sem ber yfirskriftina „Andagift frá Ameríku“, eru óperuaríur, söngleikjalög og djasstónlist eftir Stephen Sondheim, Kurt Weill, Menotti og fleiri.

Tónlist
Fréttamynd

Helgi trúbador snýr aftur

Helgi, persónulegi trúbadorinn, er í aðalhlutverki í nýjum auglýsingum fyrir Lengjuna sem verða frumsýndar í sjónvarpinu í kvöld. Í auglýsingunum, sem eru um fimmtán talsins, syngur Helgi á sinn angurværa og hreinskilna hátt um þekkt nöfn úr knattspyrnuheiminum á borð við Rio Ferdinand og Eggert Magnússon.

Tónlist
Fréttamynd

Deep purple og Uriah Heep á Íslandi

DEEP PURPLE hefur selt fleiri tónleikamiða hérlendis en nokkur önnur hljómsveit og þegar önnur goðsagnakennd rokksveit á borð við URIAH HEEP bætist við dagskrána er öruggt að slegist verður um hvern miða. Það að tvær jafn stórar sveitir spili saman á tónleikum á sér varla hliðstæðu hérlendis og nokkuð ljóst að rokkunnendur eiga ógleymanlegt kvöld í vændum.

Tónlist
Fréttamynd

Fór beint í tólfta sætið

Nýjasta plata bresku hljómsveitarinnar Bloc Party, A Weekend in the City, fór beint í tólfta sætið á bandaríska breiðskífulistanum. Fyrsta plata sveitarinnar, Silent Alarm, fór beint í 114. sætið á listanum árið 2005 og því ljóst að vinsældir sveitarinnar hafa aukist gríðarlega vestanhafs. Efst á vinsældarlistanum var nýjasta plata Fall Out Boy, Infinity On High.

Tónlist
Fréttamynd

Tónleikar í Hinu húsinu

Hljómsveitirnar Coral, Andrúm og Envy of Nona munu halda tónleika í Hinu húsinu fimmtudaginn 22. febrúar næstkomandi. Hljómsveitin Envy of Nova er nýbúin að gefa út sína fyrstu breiðskífu, Two Years Birth, Coral hefur síðustu tvö ár unnið að sinni fyrstu breiðskífu sem væntanleg sumarið 2007 og Andrrúm hefur nýverið gefið út plötu.

Tónlist
Fréttamynd

Feitur hljómur Kaiser Chiefs

Leeds-sveitin Kaiser Chiefs hefur átt mikilli velgengni að fagna frá því að fyrsta platan hennar Employment kom út fyrir tveimur árum. 26. febrúar kemur önnur platan hennar, Yours Truly, Angry Mob, í verslanir. Trausti Júlíusson hlustaði á gripinn.

Tónlist
Fréttamynd

Sigur Rós til verndar Varmá

Baráttu- og styrktartónleikar undir yfirskriftinni Lifi Álafoss! verða haldnir í BaseCamp-verinu í Héðinshúsinu á sunnudagskvöld. Fram koma Sigur Rós, Bogomil Font & Flís, Pétur Ben, Amiina og Benni Hemm Hemm. Húsið verður opnað klukkan 20.00 og er takmarkaður miðafjöldi.

Tónlist
Fréttamynd

Sungið í Smáralind

Miðasala er hafin á brekkusöng sem fer fram í Vetrargarðinum í Smáralind á laugardagskvöld. Brekkusöngurinn stendur yfir frá klukkan 20.30 til 23.30 og kemur þar eingöngu fram listafólk frá Vestmannaeyjum.

Tónlist
Fréttamynd

Tekur upp á ensku

Hljómsveitin Mammút er byrjuð að taka upp nýja plötu sem verður alfarið sungin á ensku. Er hún væntanleg á markað síðar á þessu ári.

Tónlist
Fréttamynd

Dalton í Pakkhúsinu á Selfossi

Hljómsveitin Dalton mun spila í Pakkhúsinu, Selfossi, föstudags- og laugardagskvöld. Hljómsveitin spilar fjölbreytta og skemmtilega tónlist sem er blanda af funk, soul, rokki og róli í bland við íslenska tónlist.

Tónlist
Fréttamynd

Air spilar á Íslandi

Franski poppdúettinn Air er á meðal þeirra sem munu spila á frönsku menningarhátíðinni Pourquoi Pas? sem verður haldin hérlendis frá 22. febrúar til 12. maí.

Tónlist
Fréttamynd

Kristján Þorvalds og Tommi ríða á vaðið

„Það kom mér stórkostlega á óvart hversu margir vildu vera með. Þeir virðast miklu fleiri trúbadorarnir sem vilja koma út úr skápnum en við þorðum að vona,“ segir Friðrik Indriðason, blaðamaður og einn helsti skipuleggjandi Stóru trúbadorkeppninnar, sem hefst á Sportbarnum við Hverfisgötu í kvöld.

Tónlist
Fréttamynd

Melaband á meginlandi

Sinfóníuhljómsveit Íslands er á ferðalagi um meginland Evrópu og hefur vakið stormandi lukku í tónleikahúsum í Þýskalandi á síðustu dögum. Hljómsveitin mun leika á átta tónleikum á tveimur vikum og hefur þegar haldið tvenna tónleika í Þýskalandi.

Tónlist
Fréttamynd

Múlinn steðjar af stað

Vetrardagskrá djassklúbbsins Múlans hefst á ný á Domo Bar í kvöld en sextán tónleikar eru fyrirhugaðir þar á næstunni. Múlinn er samstarfsverkefni Félags íslenskra hljómlistarmanna og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á helsta djassgeggjara þjóðarinnar, Jóni Múla Árnasyni, sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans.

Tónlist
Fréttamynd

Terem-kvartettinn snýr aftur

Hinn eftirsótti Terem-kvartett heldur tónleika í Salnum í kvöld en þeir rússnesku snillingar hafa hlotið nafnbótina þjóðargersemi Rússlands hjá gagnrýnendum auk þess að fá blessun frá páfa og móður Theresu. Uppselt er á tónleikana í kvöld en vegna frábærrar aðsóknar hefur aukatónleikum verið bætt við á sama tíma annað kvöld.

Tónlist
Fréttamynd

Notalegt reggíkvöld

Reggíkvöld verður haldið á Café Kulture við Hverfisgötu í kvöld í tilefni þess að hinn 6. febrúar síðastliðinn voru 62 ár liðin síðan goðsögnin Bob Marley fæddist.

Tónlist
Fréttamynd

Fyrsta platan á vegum Múgíbúgí

Plata með tónlist Mugison við kvikmyndina geysivinsælu Mýrina kemur í búðir á morgun. Þetta er fyrsta plata Mugison sem er gefin út hjá nýju útgáfufyrirtæki hans og föður hans, sem kallast Múgíbúgí. Platan átti upphaflega að koma út fyrir síðustu jól en einhverjar tafir urðu á útgáfunni.

Tónlist
Fréttamynd

Police í tónleikaferðalag

Meðlimir hljómsveitarinnar The Police komu saman og opnuðu Grammy tónlistarverðlaunahátíðina síðasta sunnudag. Þeir höfðu ekki spilað saman síðan árið 1984. Hljómsveitina skipa Sting, Andy Summers og Stewart Copeland en þeir fóru allir að einbeita sér að sólóferli sínum eftir daga Police.

Tónlist
Fréttamynd

Sigur Rós spila á styrktartónleikum

Lifi Álafoss! er yfirskrift tónleika sem haldnir verða til styrktar Varmársamtökunum, íbúasamtökum í Mosfellsbæ sem vilja standa vörð um framtíð Varmársvæðisins. Tónleikarnir verða haldnir sunnudaginn 18. febrúar í BaseCamp verinu. Fram koma meðal annara Sigur Rós, Bogomil Font og Pétur Ben.

Tónlist