Veður

Veður


Fréttamynd

Vonskuveður á gamlársdag

"Það lítur út fyrir að síðdegis á gamlársdag verði vonskuveður. Það gæti þó alveg rofað til um eða uppúr miðnætti, þó kannski síst sunnan til," segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur. Með kvöldinu snöggkólnar og um miðnætti býst Sigurður við frosti á bilinu eitt til fimm stig.

Innlent
Fréttamynd

Sjö Íslendingar á hættusvæðum

Utanríkisráðuneytið hefur ekki upplýsingar um 26 Íslendinga stadda í Asíu. Aðeins sjö þeirra eru taldir hafa verið á hættusvæði vegna jarðskjálftans við Súmötru. Fólk af taílenskum ættum hefur óskað aðstoðar Rauða krossins við að hafa uppi á ættingjum. </font /></b />

Erlent
Fréttamynd

Valda ekki flóðbylgjum hér

Jarðhræringar valda ekki flóðbylgjum hér við land nema við mjög sérstakar aðstæður að sögn jarðeðlisfræðings. Mestu öldur myndast í mjög djúpum lægðum en hæst hefur hafalda mælst 25,2 metrar við Íslandsstrendur.

Erlent
Fréttamynd

Þróunarríki örvænta

Evrópusambandið, fátæk þróunarríki og eyríki vilja að viðræður hefjist um frekari minnkun útblásturs gróðurhúsalofttegunda. Bandaríkjastjórn dregur hins vegar lappirnar. Nokkur þúsund íbúum eyjunnar Túvalú hefur verið boðið landvistarleyfi á Nýja-Sjálandi vegna hækkunar sjávarborðs.

Innlent
Fréttamynd

Meira en tíu þúsund látnir

Talið er að á annan tug þúsunda manna hafi farist í flóðbylgjum sem gengu yfir strendur landa við Indlandshaf í gær í kjölfar eins af stærstu jarðskjálftum sögunnar. Ekki er talið að Íslendingar á þessum slóðum hafi meiðst, en mörgum er brugðið.

Erlent
Fréttamynd

Mannskaði vegna flóðbylgja

Flóðbylgjur, sem oft orsakast af neðansjávarjarðskjálftum, hafa í gegnum tíðina valdið stórfelldum spjöllum í strandbyggðum. Sagnir af slíkum hamförum eru til bæði frá Róm og Grikklandi til forna, þar með talið frásögn af flóðbylgju sem gekk yfir Miðjarðarhafið austanvert 21 júlí árið 365 og drap þúsundir íbúa Alexandríu í Egyptalandi. 

Erlent
Fréttamynd

Spáð stormi fyrir austan

Veðurstofa Íslands spáir stormi á Austur- og Norðausturlandi upp úr hádegi í dag. Á Norðausturlandi má gera ráð fyrir vaxandi norðvestanátt og snjókomu eða éljum víða og vindhraða upp á fimmtán til tuttugu metra við ströndina og því ekkert ferðaveður. Frost verður tíu til tuttugu stig í dag, kaldast í innsveitum, en talsvert mildara á morgun. Frost verður tíu til tuttugu stig en verður talsvert mildara á jóladag.

Jólin
Fréttamynd

Hvít jól um allt land

Siggi stormur segir að samkvæmt spám megi búast við hvítum jólum um allt land og fallegum snjó á aðfangadagskvöld. Séra Vigfúsi Þór Árnasyni finnst alltaf hátíðlegt þegar jörð er hvít um jól en minnir á að það er alltaf gott veður þegar klukkan slær sex á aðfangadag. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Nýjar sannanir um vatn

Spirit, könnunarfar NASA á Mars, hefur fundið steinefni sem teljast til öruggasta sönnunin hingað til fyrir því að vatn hafi einhvern tíman fundist á plánetunni. Þetta kom fram hjá vísindamönnum NASA á mánudag.

Erlent
Fréttamynd

Hvasst á Hveravöllum

Vindur af suð-suðvestan fór upp í tæpa 30 metra á sekúndu á Hveravöllum í gær. Nokkuð fennti og var frostið mest sex gráður.

Innlent
Fréttamynd

Varað við ferðum fyrir vestan

Ekkert ferðaveður er í Ísafjarðardjúpi, á Steingrímsfjarðarheiði og á Ströndum að sögn Vegagerðarinnar. Vegfarendur eru varaðir við að vera á ferðinni á þessum slóðum og er ráðlagt að fylgjast með veðurfréttum.

Innlent
Fréttamynd

Ljósagangur af eldingum síðustu daga

Síðustu daga hefur gengið mikið þrumuveður suður og suðaustur af landinu. Þórður Arason, jarðeðlisfræðingur á sérþjónustudeild veðursviðs Veðurstofunnar, segir mesta veðrið hafa verið á fimmtudag.

Innlent
Fréttamynd

Elding slær út Grindavík

Eldingu sem sló niður í tengivirki við stjórnstöð Hitaveitu Suðurnesja í Grindavík varð þess valdandi að rafmagnslaust varð í bænum um hálft tíu leytið í gær. Einn íbúi Grindavíkur sagði að miklar sprengingar hafi orðið þegar eldingunni laust niður.  

Innlent
Fréttamynd

Spá öflugum fellibyljum árið 2005

Búist er við því að fjöldi fellibylja í Atlantshafi á næsta ári verði yfir meðallagi. Þetta kemur fram í spá veðurfræðinga við Ríkisháskólann í Colorado í Bandaríkjunum. Aldrei hefur fjárhagslegt tjón vegna fellibylja verið jafnmikið og á þessu ári. 

Erlent
Fréttamynd

Flughált í Hvalfirði og víðar

Flughált er í uppsveitum Árnessýslu, í Hvalfirði og uppsveitum Borgafjarðar. Hálka eða hálkublettir eru á norðanverðu landinu og víða éljagangur eða snjókoma. Dynjandisheiði og Lágheiði eru ófærar. Snjóþekja er víða á Austur- og Suðausturlandi og þæfingur er á Öxi.

Innlent
Fréttamynd

Umhleypingasamur nóvember

Nóvember var nokkuð umhleypingasamur á landinu og hitasveiflur miklar, að því er fram kemur í stuttu tíðarfarsyfirliti Veðurstofunnar. Hiti var yfir meðallagi, þrátt fyrir að mikið kuldakast hafi gert 15. til 20. dags mánaðarins. Meðalhiti í Reykjavík mældist 2,2 stig, en það er sagt 1,1 stigi ofan meðallags.

Innlent
Fréttamynd

Mývatnssveitin falleg í frosti

Frostið mældist 30 gráður í Mývatnssveit klukkan sex í gærmorgun. Upp úr hádegi hafði hlýnað og frostið var 22 gráður og klukkan fimm síðdegis var það 17 gráður. Fáir voru á ferli í sveitinni í gær en menn skruppu vitanlega í messu og gufubað eins og gengur. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Hlýnun aldrei hraðari

Vísindamenn eru sammála um hlýnun Norðurheimskautsins og spá umfangsmiklum breytingum sem áhrif hafa á veðurfar um heim allan. Norðurheimskautsís bráðnar, Grænlandsjökull minnkar og sjávarborð hækkar. Hér gætu fiskveiðar aukist.

Innlent
Fréttamynd

Kallað á rannsóknir ACIA

Norðurheimskautsráðið og Alþjóðleg vísindanefnd um Norðurheimskautið (International Arctic Science Committee, eða IASC) kölluðu eftir úttektinni á áhrifum og umfangi loftslagsbreytinga á norðurslóðum fyrir fjórum árum síðan.

Innlent
Fréttamynd

Vistkerfið breytist mikið

Áhrif hlýnunarinnar á norðurslóðum eru í skýrslu ACIA sögð verða mjög mikil. Til dæmis á sjávarborð eftir að hækka og eftir því sem íshellan yfir Norðurskautinu minnkar eykst hættan á að dýr á borð við ísbirni og sumar selategundir hreinlega deyi út.

Innlent
Fréttamynd

Ráðherrar ákveða næstu skref

"Ákvörðun um næstu skref verður tekin á ráðherrafundinum 24. nóvember næstkomandi," segir Helgi Jensson, forstöðumaður á framkvæmda- og eftirlitssviði Umhverfisstofnunar, um hver áhrif niðurstaðna alþjóðlega rannsóknarhópsins um hlýnun á norðurslóðum verða.

Innlent
Fréttamynd

Væg hlýnun eflir fiskistofna

Niðurstöður alþjóðlegs rannsóknarteymis á vegum Norðurskautsráðsins gera ráð fyrir að loftslag á Íslandi og Grænlandi hlýni næstu hundrað árin um 2 til 3 gráður á Celsius, en slík breyting gæti eflt þá fiskistofna sem mikilvægastir eru fyrir hagkerfi þjóðanna, svo sem þorsk og síld.

Innlent
Fréttamynd

Hærri sjór og dýr í hættu

Norðurskautið hlýnar sem aldrei fyrr, nær tvisvar sinnum hraðar en aðrir hlutar jarðarinnar. Aukinn útblástur gróðurhúsalofttegunda á svo eftir að valda enn meiri hlýnun, að því er fram kemur í nýrri alþjóðlegri rannsókn um 300 vísindamanna sem staðið hefur síðustu fjögur ár.

Innlent
Fréttamynd

Ísöld innan 100 ára

Sænskur jarðeðlisfræðingur segir að lítils háttar ísöld kunni að skella á hér á landi á þessari öld samkvæmt reglubundnum veðurfarsbreytingum sem rekja megi til sólarinnar. Hann vísar á bug kenningum um mikla hækkun sjávar vegna bráðnunar jökla og segir menn hafa óþarfaáhyggjur.

Erlent
Fréttamynd

Skepnur eru hafðar lengur úti

Vegna hlýnandi loftslags er fé látið ganga lengur úti en áður tíðkaðist og ekki algengt að búið sé að loka fé inni í byrjun nóvember.

Innlent
Fréttamynd

19 stiga hiti fyrir austan

Einstaklega hlýtt veður hefur verið um allt land um helgina. Á laugardaginn náði hitinn hæst 19 stigum á Seyðisfirði, en á höfuðborgarsvæðinu var hiti um 10 stig. 

Innlent
Fréttamynd

Sólríkur október

Sólskinsstundir í Reykjavík í nýliðnum októbermánuði mældust 110 sem er 27 stundum umfram meðallag, að því er fram kemur í samantekt Veðurstofunnar.

Innlent
Fréttamynd

Hlýnun jarðar eykst mikið

Loftslagsbreytingar eru að mestu af völdum manna samkvæmt nýrri rannsókn sem 300 vísindamenn frá átta ríkjum tóku þátt í. Frá þessu greindi bandaríska dagblaðið The New York Times sem komst yfir skýrsluna sem átti ekki að birta fyrr en í næstu viku, að sögn vegna þess að bandarísk stjórnvöld vildu ekki að hún birtist fyrr en eftir kosningar.

Erlent
Fréttamynd

Versta áfall Japana í nær áratug

Mannskæðasta óveður sem gengið hefur yfir Japan í nær tvo áratugi kostaði í það minnsta 55 manns lífið þegar fellibylurinn Tokage gekk yfir landið í fyrradag og fyrrinótt. Rúmlega tuttugu manns til viðbótar er saknað og því getur tala látinna enn hækkað.

Erlent