Kauphöllin Hætta á að kosning á grundvelli aðeins hæfismats skili „of einsleitri“ stjórn Tilnefningarnefnd Arion varar við því að farin sé sú leið, sem meðal annars framkvæmdastjóri LSR hefur kallað opinberlega eftir, að einvörðungu sé framkvæmt hæfismat á frambjóðendum til stjórnarkjörs enda sé hætta á því að kosning myndi þá ekki skila nauðsynlegri fjölhæfni og þekkingu innan stjórnar. Hún segist hins vegar hafa skilning á því ef stórir hluthafar, sem „ekki hafa fylgst með“ tilnefningarferlinu, finnist skorta á gagnsæi þegar ítrekað sé sjálfkjörið í stjórnir félaga. Innherji 5.3.2024 14:04 Búast við að Alvotech nái „verulegri“ markaðshlutdeild eftir samþykki FDA Erlendir og innlendir greinendur hafa hækkað talsvert verðmat sitt á Alvotech eftir að félagið hlaut markaðsleyfi í Bandaríkjunum og vegna tímabundins einkaréttar er líftæknilyfjafyrirtækið, ásamt samstarfsaðila sínum Teva, sagt vera í stöðu til að ná „verulegri“ markaðshlutdeild þar í landi í nálægri framtíð með sölu á hliðstæðu við Humira, að mati fjárfestingabankans Barclays. Með blessun FDA á framleiðsluaðstöðu Alvotech er talið að félagið muni í framhaldinu eiga auðveldara um vik að fá samþykki fyrir fleiri lyf á mikilvægasta markaði heims. Innherji 4.3.2024 15:55 Skilvirkara CAPE-hlutfall eftir fjölgun félaga í Úrvalsvísitölunni Með aðstoð Kóða og Nasdaq hafa janúar- og febrúargildi CAPE og VH-hlutfallsins verið birt fyrir Úrvalsvísitöluna OMXI15. Við lokun viðskipta á síðasta viðskiptadegi febrúar endaði virði Úrvalsvísitölunnar á móti hagsveifluleiðréttum hagnaði, svonefnt CAPE-hlutfall, í tæplega 28 og hefur því lækkað lítillega frá áramótum. Umræðan 4.3.2024 08:08 Arion hyggst stórauka eignir í stýringu og skoðar að stofna fasteignafélag Arion banki, sem er með leiðandi stöðu á eignastýringarmarkaði, stefnir á að auka eignir í stýringu samstæðunnar um meira en fjörutíu prósent á næstu fimm árum. Þá hefur bankinn hefur til skoðunar að stofna fasteignafélag á íbúðamarkaði sem mögulega yrði skráð í Kauphöll. Innherji 1.3.2024 16:40 Undantekning að samspil trygginga- og fjármálastarfsemi „gangi ekki vel“ Forstjóri Skaga, móðurfélag tryggingafélagsins VÍS, Fossa fjárfestingarbanka og SIV eignastýringar, segist sjá mikil tækifæri í samþættingu í tryggingafélagsins við fjármálstarfsemi. Reynslan hérlendis og alþjóðlega sýni að slíkt samspil sé farsælt. „Það heyrir heldur til undantekninga að slíkt samspil gangi ekki vel.“ Innherji 1.3.2024 13:35 Hástökk Alvotech fyrir bí Fjórða daginn í röð lækkar verð á bréfum í Alvotech eftir hástökkið á mánudaginn þegar verðið hækkaði um ellefu prósent. Það er nú lægra en það var áður en matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna veitti fyrirtækinu langþráð leyfi síðastliðna helgi. Viðskipti innlent 1.3.2024 10:23 Hafa tryggt sér fjóra milljarða Play hefur tryggt sér áskriftarloforð að andvirði fjögurra milljarða króna í heildina vegna hlutafjáraukningar sem unnið hefur verið að. Fjórir milljarðar var lágmark hlutafjáraukningarinnar og er hún nú háð leyfis hluthafa. Fáist það stendur til að auka hlutaféð á aðalfundi félagsins þann 21. mars. Viðskipti innlent 29.2.2024 23:11 Skagi inn í Kauphöllina í stað VÍS Skagi er nýtt móðurfélags VÍS, Fossa fjárfestingarbanka og SIV eignastýringar. Framtíðarskipulag samstæðunnar hefur verið kynnt og samþykkt af hluthöfum með tilfærslu tryggingareksturs í dótturfélag. Skagi verður skráða félagið í félagið í Kauphöll Íslands, sem áður var undir merkjum VÍS. Viðskipti innlent 29.2.2024 08:28 Hafa fundið mikið magn nikkels og kopars á Suður-Grænlandi Amaroq Minerals Ltd. hefur fundið umfangsmikið magn nikkels og kopars við leit í Stendalen á Suður-Grænlandi. Er um að ræða 140 metra þykkt lag af því sem kallað er „disseminated“ kviku súlfíð sem inniheldur kopar, nikkel og kóbalt. Efnin fundust í stóru innskoti í tilraunaborholu í Stendalen. Viðskipti innlent 29.2.2024 07:38 Mælir með kaupum í Play og telur útboðsgengið „vel undir“ sanngjörnu virði Virðismatsgengi Play, sem vinnur núna að því að klára að lágmarki fjögurra milljarða króna hlutafjáraukningu, er rúmlega tvöfalt hærra en útboðsgengið, samkvæmt nýrri hlutabréfagreiningu. Talið er að Play muni skila lítillegum rekstrarhagnaði á þessu ári og það náist jafnvægi milli einingatekna- og kostnaðar í rekstri flugfélagsins. Innherji 28.2.2024 17:20 Fjárfestar virðast enn hafa „litla trú“ á viðsnúningi í rekstri Kviku Á síðustu fjórðungum hefur „fátt ef eitthvað“ fallið með rekstrinum hjá Kviku og miðað við markaðsvirði bankans, sem er með TM í söluferli, eru væntingar fjárfesta til framhaldsins „mjög hófstilltar,“ að sögn forstjóra Stoða sem telur að undirliggjandi hagnaður eigi að geta tvöfaldast. Fjárfestingafélagið, sem er ráðandi hluthafi í First Water, segir eldið hafa gengið „vonum framar“ í fyrsta fasa og útlit sé fyrir að heildarframleiðsla landeldisfyrirtækisins verði töluvert meiri en áður var talið. Innherji 28.2.2024 14:04 Ótímabær birting innherjaupplýsinga Pólitísk samstaða náðist nýlega á vettvangi Evrópusambandsins um aðgerðir sem ætlað er að skjóta styrkari stoðum undir evrópska verðbréfamarkaði sem hafa átt erfitt uppdráttar í samkeppni sinni við bandaríska markaði undanfarin ár. Umræðan 28.2.2024 09:03 Sýnileikadagur FKA: „Mikið er hún góð þessi!“ „Ein sem ég þekki ákvað til dæmis eitt sinn að taka svolítið karlana á þetta, bjóða þeim í einn og einn golfhring. Og hvað gerðist? Jú, strax eftir fyrsta höggið var viðmótið öðruvísi og hún sá hvernig svipurinn á andlitinu á þeim breyttist í: Mikið er hún góð þessi!“segir Bergrún Lilja Sigurjónsdóttir og hlær. Atvinnulíf 28.2.2024 07:01 Lækkaði um átta prósent eftir mikla hækkun í gær Virði hlutabréfa í Alvotech lækkuðu um 7,76 prósent í dag. Velta dagsins var um 1,3 milljarðar króna. Verð hlutar í félaginu stendur nú í 2.260 krónum og á síðastliðnu ári hefur verðið hækkað um 42,6 prósent. Viðskipti innlent 27.2.2024 20:01 Hagnaður Nova tók stökk Nova Klúbburinn hf. hagnaðist um 729 milljónir á síðasta ári og var það aukning um 35 prósent milli ára. Tekjur fyrirtækisins á síðasta ári voru tæpir þrettán milljarðar og jukust um þær um 2,8 prósent frá 2023. Viðskipti innlent 27.2.2024 18:57 Tíðinda af hugsanlegri sölu miðla að vænta á vormánuðum Rekstrarhagnaður samstæðu Sýnar nam 3.544 milljónum króna árið 2023. Að teknu tilliti þriggja milljarða króna sölu á stofnneti félagsins og tiltekinna einskiptisliða og afskrifta tengdum rekstrarhagræðingu nam rekstrarhagnaður 1.945 milljónum króna. Viðskipti innlent 27.2.2024 17:09 Forstjóri Alvotech væntir þess að stórir sölusamningar klárist „á næstu vikum“ Alvotech og samstarfsaðili þess í Bandaríkjunum, lyfjarisinn Teva, eru núna í „virkum viðræðum“ vegna stórra samninga um sölu á líftæknilyfjahliðstæðu íslenska fyrirtækisins við eitt mesta selda lyf í heimi, að sögn forstjóra félagsins, og ættu þær að klárast á næstu vikum. Eftir að samþykki fékkst um markaðsleyfi vestanhafs áformar Alvotech að auka umsvif sín í Vatnsmýrinni með því að efla framleiðslugetuna og fjölga enn frekar starfsfólki. Innherji 27.2.2024 14:29 Guðjón og Gylfi ætla að berjast um sæti í stjórn Festi Guðjón Auðunsson, fráfarandi forstjóri Reita fasteignafélags, og Gylfi Ólafsson, fyrrum forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, hafa boðið sig fram til stjórnar hjá Festi. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Viðskipti innlent 26.2.2024 17:07 Verðmetur Play svipað og í yfirstandandi útboði Jakobsson Capital metur virði hlutafjár Play svipað og gert er í yfirstandandi hlutafjárútboði flugfélagsins. „Helsti munur á Play og Icelandair liggur í rekstrarstöðugleika og fjármögnunaráhættu,“ segir í nýju verðmati, en greinandi telur áætlanir félaganna um að vera með samanlagt yfir 60 flugvélar í rekstri innan fimm ára vera óraunhæfar. Innherji 26.2.2024 13:24 Evrópskir fjárfestar og lífeyrissjóðir koma að kaupum á 23 milljarða hlut í Alvotech Tveimur dögum eftir að Alvotech fékk formlegt samþykki um markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir sín stærstu lyf hefur íslenska líftæknilyfjafyrirtækið gengið frá sölu á bréfum í félaginu fyrir tæplega 23 milljarða, meðal annars til evrópskra fjárfesta. Fjármunirnir verða nýttir að hluta til að styrkja framleiðslugetuna en hlutabréfaverð Alvotech hefur rokið upp í viðskiptum í Kauphöllinni í morgun. Innherji 26.2.2024 11:07 Tóku 23 milljarða tilboði í morgunsárið Alvotech gekk í morgun að tilboði frá hópi fagfjárfesta og viðurkenndra gagnaðila um sölu á 10.127.132 almennum hlutabréfum í félaginu að verðmæti um 22,8 milljarðar króna. Tilboðið er jafnvirði 166 milljóna dala miðað við miðgengi Seðlabanka Íslands síðastliðinn fösudag á genginu 2.250 krónur á hlut, 16,41 dalir á hlut. Verð á bréfum í félaginu hækkaði um þrettán prósent eftir fyrstu viðskipti dagsins. Viðskipti innlent 26.2.2024 09:31 Alvotech fær langþráð grænt ljós í Bandaríkjunum Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) hefur veitt Alvotech leyfi til sölu og markaðssetningar í Bandaríkjunum á Simlandi (adalimumab-ryvk) sem líftæknilyfjahliðstæðu við Humira. Þetta kemur fram í tilkynningu Alvotech til Kauphallarinnar. Viðskipti innlent 24.2.2024 03:00 Stórir hluthafar mótfallnir eða hugsi yfir framboði Þórðar Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, stærsti hluthafinn í Festi sem er móðurfélag Krónunnar, N1 og Elko, leggst gegn því að Þórður Már Jóhannesson verði kjörinn í stjórn félagsins á ný. Fleiri lífeyrissjóðir eru sama sinnis. Viðskipti innlent 23.2.2024 12:16 Fjárfestarnir sem veðjuðu á Alvotech – og eygja von um að hagnast ævintýralega Þegar ljóst varð fyrir mánuði að samþykki fyrir markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir stærstu lyf Alvotech væri nánast í höfn áttu íslenskir lífeyrissjóðir samanlagt vel undir þriggja prósenta hlut í þessu langsamlega verðmætasta fyrirtæki í Kauphöllinni – og höfðu þá engir nýir sjóðir bæst í hluthafahópinn frá því að FDA setti félaginu stólinn fyrir dyrnar tíu mánuðum áður. Risastór veðmál sumra sjóðastýringarfélaga á Alvotech, með því að halda stöðu sinni við krefjandi markaðsaðstæður og jafnvel bæta við hana, hefur skilað sjóðum þeirra nærri hundrað prósenta ávöxtun síðustu mánuði á meðan önnur mátu áhættuna of mikla og losuðu um hlut sinn, eins og greining Innherja á umfangi innlendra fagfjárfesta sem eiga bréf í Alvotech skráð hér heima leiðir í ljós. Innherji 21.2.2024 17:34 Forstjóri Play segir gott að fá sterka traustsyfirlýsingu Forstjóri Play segir stærstu hluthafa flugfélagsins hafa sent traustsyfirlýsingu með vilyrðum um 2,6 milljarða króna nýtt hlutafé. Hann segir að þótt umræðan um fjárhagsstöðuna hafi verið óþægileg hafi hún hvorki skaðað félagið né komið niður á bókunum. Viðskipti innlent 20.2.2024 21:21 Fara tilnefningarnefndir með atkvæðisréttinn? Núverandi fyrirkomulag á starfi tilnefningarnefnda er til þess fallið að draga úr gagnsæi. Hluthafar fá ekki að vita hverjir bjóða sig fram og þess vegna er möguleiki hluthafa á að nýta atkvæðisréttinn og velja milli margra hæfra umsækjenda ekki lengur til staðar. Ég tel einsýnt að þetta fyrirkomulag þurfi að endurskoða. Umræðan 20.2.2024 13:00 „Sterk stuðningsyfirlýsing“ stærstu hluthafa sem leggja Play til 2,6 milljarða Stærstu fjárfestarnir í hluthafahópi Play hafa skráð sig fyrir samanlagt um 2,6 milljörðum í útboði félagsins gegn því skilyrði að það takist að sækja nýtt hlutafé fyrir að lágmarki fjóra milljarða. Útboðsgengið er um 33 prósentum lægra en hlutabréfaverð Play var þegar félagið birti uppgjör sitt og áform um hlutafjáraukningu fyrr í þessum mánuði. Innherji 20.2.2024 11:04 Play komið með vilyrði fyrir 2,6 milljörðum króna Flugfélagið Play hefur safnað vilyrðum fyrir 2,6 milljörðum króna í áformi nýs hlutafjár með því skilyrði að félaginu takist að safna í heildina að lágmarki fjórum milljörðum króna. Þetta kemur fram í tilkynningu Play til Kauphallar. Viðskipti innlent 20.2.2024 09:33 Gengi Hampiðjunnar rýkur upp vegna uppfærslu í vísitölum FTSE Tvö íslensk félög í Kauphöllinni munu bætast við vísitölur FTSE Russell fyrir nýmarkaðsríki upp úr miðjum næsta mánuði. Hlutabréfaverð Hampiðjunnar, annað af félögunum sem verður tekið inn í vísitölurnar, hefur rokið upp á markaði í dag en búast má við talsverðu innflæði fjármagns frá erlendum vísitölusjóðum við uppfærsluna. Innherji 19.2.2024 15:28 Reginn býðst til að að liðka fyrir yfirtöku með sölu eigna Fasteignafélagið Reginn óskaði á föstudag eftir sáttaviðræðum við Samkeppniseftirlitið í tengslum við fyrirhugaðrar yfirtöku á öllu hlutafé Eikar fasteignafélags. Reginn býðst til að selja eignir til að vinna gegn skaðlegum áhrifum á samkeppni vegna samrunans. Viðskipti innlent 19.2.2024 14:30 « ‹ 1 2 3 4 5 6 7 8 … 74 ›
Hætta á að kosning á grundvelli aðeins hæfismats skili „of einsleitri“ stjórn Tilnefningarnefnd Arion varar við því að farin sé sú leið, sem meðal annars framkvæmdastjóri LSR hefur kallað opinberlega eftir, að einvörðungu sé framkvæmt hæfismat á frambjóðendum til stjórnarkjörs enda sé hætta á því að kosning myndi þá ekki skila nauðsynlegri fjölhæfni og þekkingu innan stjórnar. Hún segist hins vegar hafa skilning á því ef stórir hluthafar, sem „ekki hafa fylgst með“ tilnefningarferlinu, finnist skorta á gagnsæi þegar ítrekað sé sjálfkjörið í stjórnir félaga. Innherji 5.3.2024 14:04
Búast við að Alvotech nái „verulegri“ markaðshlutdeild eftir samþykki FDA Erlendir og innlendir greinendur hafa hækkað talsvert verðmat sitt á Alvotech eftir að félagið hlaut markaðsleyfi í Bandaríkjunum og vegna tímabundins einkaréttar er líftæknilyfjafyrirtækið, ásamt samstarfsaðila sínum Teva, sagt vera í stöðu til að ná „verulegri“ markaðshlutdeild þar í landi í nálægri framtíð með sölu á hliðstæðu við Humira, að mati fjárfestingabankans Barclays. Með blessun FDA á framleiðsluaðstöðu Alvotech er talið að félagið muni í framhaldinu eiga auðveldara um vik að fá samþykki fyrir fleiri lyf á mikilvægasta markaði heims. Innherji 4.3.2024 15:55
Skilvirkara CAPE-hlutfall eftir fjölgun félaga í Úrvalsvísitölunni Með aðstoð Kóða og Nasdaq hafa janúar- og febrúargildi CAPE og VH-hlutfallsins verið birt fyrir Úrvalsvísitöluna OMXI15. Við lokun viðskipta á síðasta viðskiptadegi febrúar endaði virði Úrvalsvísitölunnar á móti hagsveifluleiðréttum hagnaði, svonefnt CAPE-hlutfall, í tæplega 28 og hefur því lækkað lítillega frá áramótum. Umræðan 4.3.2024 08:08
Arion hyggst stórauka eignir í stýringu og skoðar að stofna fasteignafélag Arion banki, sem er með leiðandi stöðu á eignastýringarmarkaði, stefnir á að auka eignir í stýringu samstæðunnar um meira en fjörutíu prósent á næstu fimm árum. Þá hefur bankinn hefur til skoðunar að stofna fasteignafélag á íbúðamarkaði sem mögulega yrði skráð í Kauphöll. Innherji 1.3.2024 16:40
Undantekning að samspil trygginga- og fjármálastarfsemi „gangi ekki vel“ Forstjóri Skaga, móðurfélag tryggingafélagsins VÍS, Fossa fjárfestingarbanka og SIV eignastýringar, segist sjá mikil tækifæri í samþættingu í tryggingafélagsins við fjármálstarfsemi. Reynslan hérlendis og alþjóðlega sýni að slíkt samspil sé farsælt. „Það heyrir heldur til undantekninga að slíkt samspil gangi ekki vel.“ Innherji 1.3.2024 13:35
Hástökk Alvotech fyrir bí Fjórða daginn í röð lækkar verð á bréfum í Alvotech eftir hástökkið á mánudaginn þegar verðið hækkaði um ellefu prósent. Það er nú lægra en það var áður en matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna veitti fyrirtækinu langþráð leyfi síðastliðna helgi. Viðskipti innlent 1.3.2024 10:23
Hafa tryggt sér fjóra milljarða Play hefur tryggt sér áskriftarloforð að andvirði fjögurra milljarða króna í heildina vegna hlutafjáraukningar sem unnið hefur verið að. Fjórir milljarðar var lágmark hlutafjáraukningarinnar og er hún nú háð leyfis hluthafa. Fáist það stendur til að auka hlutaféð á aðalfundi félagsins þann 21. mars. Viðskipti innlent 29.2.2024 23:11
Skagi inn í Kauphöllina í stað VÍS Skagi er nýtt móðurfélags VÍS, Fossa fjárfestingarbanka og SIV eignastýringar. Framtíðarskipulag samstæðunnar hefur verið kynnt og samþykkt af hluthöfum með tilfærslu tryggingareksturs í dótturfélag. Skagi verður skráða félagið í félagið í Kauphöll Íslands, sem áður var undir merkjum VÍS. Viðskipti innlent 29.2.2024 08:28
Hafa fundið mikið magn nikkels og kopars á Suður-Grænlandi Amaroq Minerals Ltd. hefur fundið umfangsmikið magn nikkels og kopars við leit í Stendalen á Suður-Grænlandi. Er um að ræða 140 metra þykkt lag af því sem kallað er „disseminated“ kviku súlfíð sem inniheldur kopar, nikkel og kóbalt. Efnin fundust í stóru innskoti í tilraunaborholu í Stendalen. Viðskipti innlent 29.2.2024 07:38
Mælir með kaupum í Play og telur útboðsgengið „vel undir“ sanngjörnu virði Virðismatsgengi Play, sem vinnur núna að því að klára að lágmarki fjögurra milljarða króna hlutafjáraukningu, er rúmlega tvöfalt hærra en útboðsgengið, samkvæmt nýrri hlutabréfagreiningu. Talið er að Play muni skila lítillegum rekstrarhagnaði á þessu ári og það náist jafnvægi milli einingatekna- og kostnaðar í rekstri flugfélagsins. Innherji 28.2.2024 17:20
Fjárfestar virðast enn hafa „litla trú“ á viðsnúningi í rekstri Kviku Á síðustu fjórðungum hefur „fátt ef eitthvað“ fallið með rekstrinum hjá Kviku og miðað við markaðsvirði bankans, sem er með TM í söluferli, eru væntingar fjárfesta til framhaldsins „mjög hófstilltar,“ að sögn forstjóra Stoða sem telur að undirliggjandi hagnaður eigi að geta tvöfaldast. Fjárfestingafélagið, sem er ráðandi hluthafi í First Water, segir eldið hafa gengið „vonum framar“ í fyrsta fasa og útlit sé fyrir að heildarframleiðsla landeldisfyrirtækisins verði töluvert meiri en áður var talið. Innherji 28.2.2024 14:04
Ótímabær birting innherjaupplýsinga Pólitísk samstaða náðist nýlega á vettvangi Evrópusambandsins um aðgerðir sem ætlað er að skjóta styrkari stoðum undir evrópska verðbréfamarkaði sem hafa átt erfitt uppdráttar í samkeppni sinni við bandaríska markaði undanfarin ár. Umræðan 28.2.2024 09:03
Sýnileikadagur FKA: „Mikið er hún góð þessi!“ „Ein sem ég þekki ákvað til dæmis eitt sinn að taka svolítið karlana á þetta, bjóða þeim í einn og einn golfhring. Og hvað gerðist? Jú, strax eftir fyrsta höggið var viðmótið öðruvísi og hún sá hvernig svipurinn á andlitinu á þeim breyttist í: Mikið er hún góð þessi!“segir Bergrún Lilja Sigurjónsdóttir og hlær. Atvinnulíf 28.2.2024 07:01
Lækkaði um átta prósent eftir mikla hækkun í gær Virði hlutabréfa í Alvotech lækkuðu um 7,76 prósent í dag. Velta dagsins var um 1,3 milljarðar króna. Verð hlutar í félaginu stendur nú í 2.260 krónum og á síðastliðnu ári hefur verðið hækkað um 42,6 prósent. Viðskipti innlent 27.2.2024 20:01
Hagnaður Nova tók stökk Nova Klúbburinn hf. hagnaðist um 729 milljónir á síðasta ári og var það aukning um 35 prósent milli ára. Tekjur fyrirtækisins á síðasta ári voru tæpir þrettán milljarðar og jukust um þær um 2,8 prósent frá 2023. Viðskipti innlent 27.2.2024 18:57
Tíðinda af hugsanlegri sölu miðla að vænta á vormánuðum Rekstrarhagnaður samstæðu Sýnar nam 3.544 milljónum króna árið 2023. Að teknu tilliti þriggja milljarða króna sölu á stofnneti félagsins og tiltekinna einskiptisliða og afskrifta tengdum rekstrarhagræðingu nam rekstrarhagnaður 1.945 milljónum króna. Viðskipti innlent 27.2.2024 17:09
Forstjóri Alvotech væntir þess að stórir sölusamningar klárist „á næstu vikum“ Alvotech og samstarfsaðili þess í Bandaríkjunum, lyfjarisinn Teva, eru núna í „virkum viðræðum“ vegna stórra samninga um sölu á líftæknilyfjahliðstæðu íslenska fyrirtækisins við eitt mesta selda lyf í heimi, að sögn forstjóra félagsins, og ættu þær að klárast á næstu vikum. Eftir að samþykki fékkst um markaðsleyfi vestanhafs áformar Alvotech að auka umsvif sín í Vatnsmýrinni með því að efla framleiðslugetuna og fjölga enn frekar starfsfólki. Innherji 27.2.2024 14:29
Guðjón og Gylfi ætla að berjast um sæti í stjórn Festi Guðjón Auðunsson, fráfarandi forstjóri Reita fasteignafélags, og Gylfi Ólafsson, fyrrum forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, hafa boðið sig fram til stjórnar hjá Festi. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Viðskipti innlent 26.2.2024 17:07
Verðmetur Play svipað og í yfirstandandi útboði Jakobsson Capital metur virði hlutafjár Play svipað og gert er í yfirstandandi hlutafjárútboði flugfélagsins. „Helsti munur á Play og Icelandair liggur í rekstrarstöðugleika og fjármögnunaráhættu,“ segir í nýju verðmati, en greinandi telur áætlanir félaganna um að vera með samanlagt yfir 60 flugvélar í rekstri innan fimm ára vera óraunhæfar. Innherji 26.2.2024 13:24
Evrópskir fjárfestar og lífeyrissjóðir koma að kaupum á 23 milljarða hlut í Alvotech Tveimur dögum eftir að Alvotech fékk formlegt samþykki um markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir sín stærstu lyf hefur íslenska líftæknilyfjafyrirtækið gengið frá sölu á bréfum í félaginu fyrir tæplega 23 milljarða, meðal annars til evrópskra fjárfesta. Fjármunirnir verða nýttir að hluta til að styrkja framleiðslugetuna en hlutabréfaverð Alvotech hefur rokið upp í viðskiptum í Kauphöllinni í morgun. Innherji 26.2.2024 11:07
Tóku 23 milljarða tilboði í morgunsárið Alvotech gekk í morgun að tilboði frá hópi fagfjárfesta og viðurkenndra gagnaðila um sölu á 10.127.132 almennum hlutabréfum í félaginu að verðmæti um 22,8 milljarðar króna. Tilboðið er jafnvirði 166 milljóna dala miðað við miðgengi Seðlabanka Íslands síðastliðinn fösudag á genginu 2.250 krónur á hlut, 16,41 dalir á hlut. Verð á bréfum í félaginu hækkaði um þrettán prósent eftir fyrstu viðskipti dagsins. Viðskipti innlent 26.2.2024 09:31
Alvotech fær langþráð grænt ljós í Bandaríkjunum Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) hefur veitt Alvotech leyfi til sölu og markaðssetningar í Bandaríkjunum á Simlandi (adalimumab-ryvk) sem líftæknilyfjahliðstæðu við Humira. Þetta kemur fram í tilkynningu Alvotech til Kauphallarinnar. Viðskipti innlent 24.2.2024 03:00
Stórir hluthafar mótfallnir eða hugsi yfir framboði Þórðar Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, stærsti hluthafinn í Festi sem er móðurfélag Krónunnar, N1 og Elko, leggst gegn því að Þórður Már Jóhannesson verði kjörinn í stjórn félagsins á ný. Fleiri lífeyrissjóðir eru sama sinnis. Viðskipti innlent 23.2.2024 12:16
Fjárfestarnir sem veðjuðu á Alvotech – og eygja von um að hagnast ævintýralega Þegar ljóst varð fyrir mánuði að samþykki fyrir markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir stærstu lyf Alvotech væri nánast í höfn áttu íslenskir lífeyrissjóðir samanlagt vel undir þriggja prósenta hlut í þessu langsamlega verðmætasta fyrirtæki í Kauphöllinni – og höfðu þá engir nýir sjóðir bæst í hluthafahópinn frá því að FDA setti félaginu stólinn fyrir dyrnar tíu mánuðum áður. Risastór veðmál sumra sjóðastýringarfélaga á Alvotech, með því að halda stöðu sinni við krefjandi markaðsaðstæður og jafnvel bæta við hana, hefur skilað sjóðum þeirra nærri hundrað prósenta ávöxtun síðustu mánuði á meðan önnur mátu áhættuna of mikla og losuðu um hlut sinn, eins og greining Innherja á umfangi innlendra fagfjárfesta sem eiga bréf í Alvotech skráð hér heima leiðir í ljós. Innherji 21.2.2024 17:34
Forstjóri Play segir gott að fá sterka traustsyfirlýsingu Forstjóri Play segir stærstu hluthafa flugfélagsins hafa sent traustsyfirlýsingu með vilyrðum um 2,6 milljarða króna nýtt hlutafé. Hann segir að þótt umræðan um fjárhagsstöðuna hafi verið óþægileg hafi hún hvorki skaðað félagið né komið niður á bókunum. Viðskipti innlent 20.2.2024 21:21
Fara tilnefningarnefndir með atkvæðisréttinn? Núverandi fyrirkomulag á starfi tilnefningarnefnda er til þess fallið að draga úr gagnsæi. Hluthafar fá ekki að vita hverjir bjóða sig fram og þess vegna er möguleiki hluthafa á að nýta atkvæðisréttinn og velja milli margra hæfra umsækjenda ekki lengur til staðar. Ég tel einsýnt að þetta fyrirkomulag þurfi að endurskoða. Umræðan 20.2.2024 13:00
„Sterk stuðningsyfirlýsing“ stærstu hluthafa sem leggja Play til 2,6 milljarða Stærstu fjárfestarnir í hluthafahópi Play hafa skráð sig fyrir samanlagt um 2,6 milljörðum í útboði félagsins gegn því skilyrði að það takist að sækja nýtt hlutafé fyrir að lágmarki fjóra milljarða. Útboðsgengið er um 33 prósentum lægra en hlutabréfaverð Play var þegar félagið birti uppgjör sitt og áform um hlutafjáraukningu fyrr í þessum mánuði. Innherji 20.2.2024 11:04
Play komið með vilyrði fyrir 2,6 milljörðum króna Flugfélagið Play hefur safnað vilyrðum fyrir 2,6 milljörðum króna í áformi nýs hlutafjár með því skilyrði að félaginu takist að safna í heildina að lágmarki fjórum milljörðum króna. Þetta kemur fram í tilkynningu Play til Kauphallar. Viðskipti innlent 20.2.2024 09:33
Gengi Hampiðjunnar rýkur upp vegna uppfærslu í vísitölum FTSE Tvö íslensk félög í Kauphöllinni munu bætast við vísitölur FTSE Russell fyrir nýmarkaðsríki upp úr miðjum næsta mánuði. Hlutabréfaverð Hampiðjunnar, annað af félögunum sem verður tekið inn í vísitölurnar, hefur rokið upp á markaði í dag en búast má við talsverðu innflæði fjármagns frá erlendum vísitölusjóðum við uppfærsluna. Innherji 19.2.2024 15:28
Reginn býðst til að að liðka fyrir yfirtöku með sölu eigna Fasteignafélagið Reginn óskaði á föstudag eftir sáttaviðræðum við Samkeppniseftirlitið í tengslum við fyrirhugaðrar yfirtöku á öllu hlutafé Eikar fasteignafélags. Reginn býðst til að selja eignir til að vinna gegn skaðlegum áhrifum á samkeppni vegna samrunans. Viðskipti innlent 19.2.2024 14:30