NBA

Fréttamynd

San Antonio 2 - Seattle 0

Seattle Supersonics náðu forystunni í byrjun leiks í nótt og héldu henni í 62 sekúndur. Ray Allen lék með Sonics, þrátt fyrir meiðsli, en það hafði lítið að segja og San Antonio hefur náð 2-0 forskoti í einvíginu eftir þægilegan 108-91sigur í öðrum leik liðanna.

Sport
Fréttamynd

Miami - Washington á Sýn í kvöld

Annar leikur Miami Heat og Washington Wizards í undanúrslitum austurdeildarinnar í NBA verður í beinni útsendingu á Sýn í kvöld og hefst útsending klukkan 23:15. Þar ber að líta nokkra af skemmtilegri leikmönnum deildarinnar í dag og maðurinn sem allra augu berast að í dag, Dwayne Wade, verður í eldlínunni.

Sport
Fréttamynd

Detroit 1 - Indiana 0

Í fyrsta skiptið á þessu ári, gátu Detroit Pistons og Indiana Pacers einbeitt sér að því að leika körfuknattleik þegar þau mættust í The Palace í Detroit. Heimamenn lögðu grunninn að góðum 96-81 sigri með góðri rispu í öðrum leikhluta og hafa náð forystu í einvíginu.

Sport
Fréttamynd

Phoenix 1 - Dallas 0

Átta daga hvíld eftir sigurinn á Memphis í fyrstu umferðinni, reyndist liði Phoenix Suns greinilega vel og ekki var að sjá ryð í leik þeirra þegar þeir völtuðu yfir Dallas Mavericks, 127-102 í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum vesturdeildar í nótt.

Sport
Fréttamynd

Miami 1 - Washington 0

Washington Wizards fengu í gær að vita hverju þeir eiga von á gegn Miami Heat í undanúrslitum austurdeildarinnar. Shaquille O´Neal var í villuvandræðum allan tímann og Dwayne Wade náði sér ekki á strik í leiknum, en Miami vann engu að síður auðveldan 105-86 sigur og hefur tekið forystu, 1-0.

Sport
Fréttamynd

San Antonio 1 - Seattle 0

San Antonio var ekki á þeim buxunum að tapa opnunarleik í einvígi á heimavelli sínum aftur og þegar þeir ná sér á strik eins og gegn Seattle, sem missti tvo af aðalskorurum sínum í meiðsli snemma leiks, þarf ekki að spyrja að leikslokum eins og 103-81 sigur þeirra í nótt ber með sér.

Sport
Fréttamynd

Boston 3 - Indiana 4

Félagar Reggie Miller voru ekki á því að láta gamla manninn spila sinn síðasta leik í gærkvöldi, þegar þeir mættu ákveðnir til leiks til Boston í leik 7 og höfðu stórsigur 97-70. Tapið fer í sögubækurnar sem eitt versta tap Boston á heimavelli í úrslitakeppni.

Sport
Fréttamynd

Dallas 4 - Houston 3

Eftir að hafa lent undir 2-0 á heimavelli sínum í einvíginu við Houston Rockets, náðu liðsmenn Dallas Mavericks að snúa seríunni sér í hag. Markmið þeirra í sjöunda leiknum í nótt var að reyna að laga varnarleikinn og vona það besta. Niðurstaðan varð stærsti sigur í sjöunda leik í sögu úrslitakeppninnar, 116-76 og Dallas mætir því Phoenix í næstu umferð.

Sport
Fréttamynd

Chicago 2 - Washington 4

Það var engu líkara en lið Washington hefði verið að vinna sjálfan meistaratitilinn í nótt, þegar liðið lagði Chicago Bulls 94-91 á heimavelli sínum, svo mikil voru fagnaðarlætin. Flestir hefðu líka fagnað því að komast í aðra umferð í úrslitakeppni í fyrsta sinn í meira en 20 ár.

Sport
Fréttamynd

Nash valinn MVP

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum frá ESPN í Bandaríkjunum, verður Steve Nash kosinn verðmætasti leikmaður ársins 2005 í NBA deildinni, eða Most Valuable Player, nú á sunnudaginn.

Sport
Fréttamynd

Boston 3 - Indiana 3

Einvígi Boston og Indiana hefur verið sannkölluð rússíbanareið og á því varð engin breyting í nótt, þegar Boston knúði fram oddaleik á heimavelli sínum, með 92-89 sigri í framlengingu í Indiana.

Sport
Fréttamynd

NBA á Sýn um helgina

Tveir leikir úr úrslitakeppni NBA verða í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn um helgina, þar sem allt verður í járnum í lokaleikjum fyrstu umferðarinnar og áhorfendur gætu orðið vitni að síðasta leik Reggie Miller hjá Indiana.

Sport
Fréttamynd

Dallas 3 - Houston 3

Tracy McGrady fékk litla hjálp þegar hann lék með Orlando á sínum tíma, enda hefur hann aldrei komist í aðra umferð í úrslitakeppninni. Í Houston er hann með öllu betri leikmenn í kring um sig og þeir gerðu gæfumuninn í 101-83 sigri liðsins á Dallas í nótt.

Sport
Fréttamynd

San Antonio 4 - Denver 1

San Antonio Spurs virkuðu dálítið þreyttir, en þeir kláruðu engu að síður verkefnið og hafa slegið lið Denver Nuggets út úr keppni 4-1. eftir 99-89 sigur á heimavelli sínum í nótt.

Sport
Fréttamynd

Chicago 2 - Washington 3

Eftir dramatískar lokamínútur og rosalegan endasprett, þurftu heimamenn í Chicago Bulls að sætta sig við 112-110 tap fyrir Washington Wizards, þar sem Gilbert Arenas skoraði sigurkörfuna þegar leiktíminn rann út og nú getur Washington liðið klárað dæmið á heimavelli í næsta leik.

Sport
Fréttamynd

Boston 2 - Indiana 3

Indiana Pacers fengu óvænta hjálp í nótt þegar þeir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Boston Celtics á þeirra heimavelli, 90-85 og geta nú komist áfram í átta liða úrslitin með sigri í Indiana í næsta leik.

Sport
Fréttamynd

Kwame Brown settur í bann

Framherjinn Kwame Brown hjá Washington Wizards, hefur verið settur í bann út úrslitakeppnina af forráðamönnum liðsins, eftir að sló í brýnu milli hans og þjálfara liðsins.

Sport
Fréttamynd

Detroit 4 - Philadelphia 1

Þegar mest liggur við, eru NBA meistararnir bestir. Sú varð að minnsta kosti raunin í nótt, þegar Detroit sló Philadelphia út úr úrslitakeppninni. Eftir að hafa leikið illa í þriðja leikfjórðungi í gær, stigu þeir á bensínið í lokaleikhlutanum og kláruðu dæmið. Pistons mæta annað hvort Indiana eða Boston í næstu umferð.

Sport
Fréttamynd

Okafor nýliði ársins

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum úr NBA deildinni, hefur framherjinn Emeka Okafor verið valinn nýliði ársins í deildinni, eftir harða keppni við besta vin sinn Ben Gordon hjá Chicago Bulls.

Sport
Fréttamynd

Seattle 4 - Sacramento 1

Ray Allen hjá Seattle vildi ekki þurfa að fara aftur til Sacramento og leika fyrir framan óða áhorfendur þeirra. Það sást á leik hans og félaga hans í gær, þegar þeir slógu Sacramento úr keppni með 122-118 sigri, þrátt fyrir hetjulega baráttu gestanna frá Kaliforníu.

Sport
Fréttamynd

Chicago 2 - Washington 2

Lið Washington Wizards er þekkt fyrir flest annað en öflugan varnarleik, en í nótt sýndu þeir hvers þeir eru megnugir þeim megin vallarins og Juan Dixon í banastuði, jöfnuðu þeir metin í seríunni við Chicago með 117-99 sigri í nótt.

Sport
Fréttamynd

Molar dagsins í NBA

Heimildir herma að nýliði Chicago Bulls, Ben Gordon, verði valinn besti varamaður deildarinnar á næstu dögum. Gordon hefur verið frábær með liði Chicago í vetur og reyndist liði sínu mikilvægur undir lokin í fjölmörgum leikjum.

Sport
Fréttamynd

Dallas 3 - Houston 2

Heilladísirnar virðast vera að snúast á band Dallas Mavericks, en liðið lagði Houston Rockets í fyrsta skipti á heimavelli í nótt 103-100 og hefur nú náð forystu í einvígi liðanna.

Sport
Fréttamynd

San Antonio 3 - Denver 1

Liði Denver hefur ekki tekist að færa sér í nyt meiðslum hrjáða og slaka frammistöðu lykilmanna San Antonio í einvígi liðanna. Það var kom því ekki á óvart að Spurs færu með sigur af hólmi, 126-115 í framlengingu í nótt, því þeir fengu góða hjálp frá Tim Duncan og Tony Parker, sem hafa látið afar lítið fyrir sér fara fram að þessu.

Sport
Fréttamynd

Seattle 3 - Sacramento 1

Ray Allen skaut lið Seattle Supersonics í vænlega stöðu í einvíginu við Sacramento Kings í nótt. Eftir að Sacramento hafði leitt frá upphafsmínútum leiksins, sigu Sonics framúr á lokakaflanum með Allen sjóðandi heitan og unnu sigur 115-102.

Sport
Fréttamynd

Miami 4 - New Jersey 0

Dwayne Wade sá til þess að Miami Heat sópaði liði New Jersey Nets úr keppni 4-0 í gær, þrátt fyrir að Shaquille O´Neal væri á annari löppinni. Wade skoraði 34 stig í 110-97 sigri Miami í gær og nú fær stóri maðurinn að minnsta kosti viku til að jafna sig af meiðslum sínum.

Sport
Fréttamynd

Phoenix 4 - Memphis 0

Memphis Grizzlies fundu engin svör við stormsveit Phoenix Suns í fyrstu umferð úrslitakeppninnar og eru komnir í sumarfrí, eftir að Suns unnu fjórða leik liðanna í nótt 123-115. Memphis börðust hetjulega í síðasta leiknum, en voru skotnir í kaf.

Sport
Fréttamynd

Detroit 3 - Philadelphia 1

Þegar í harðbakkann slær hjá meisturum Detroit Pistons, geta þeir reitt sig á besta mann úrslitanna í fyrra, Chauncey Billups. Þegar Pistons stóðu frammi fyrir því að Philadelphia væri í þann mund að jafna metin í einvígi liðanna, kom Billups til skjalanna og var maðurinn á bak við 97-92 sigur í fjórða leiknum.

Sport
Fréttamynd

Dallas 2 - Houston 2

Í furðulegasta einvígi fyrstu umferðar úrslitakeppninnar, eru Dallas Mavericks búnir að jafna metin í 2-2 gegn Houston Rockets, þar sem allir leikirnir hafa unnist á útivelli. Jason Terry var hetja Dallas í nótt, þegar hann bætti upp fyrir enn einn slakan leikinn frá Dirk Nowitzki, skoraði 32 stig og tryggði Dallas sigur, 97-93.

Sport
Fréttamynd

New Jersey-Miami á Sýn í kvöld

Fjórði leikur New Jersey Nets og Miami Heat verður í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld, klukkan 19:30. Miami getur með sigri orðið fyrsta liðið til að tryggja sig í aðra umferð úrslitakeppninnar, en staðan í einvíginu er 3-0 fyrir Heat.

Sport