Sveitarstjórnarmál

Fréttamynd

Tekjur hækka um 1,5 milljarð

Tekjur sveitarfélaga hækka um einn og hálfan milljarð króna á ári samkvæmt samkomulagi tekjustofnanefndar. Tímabundin áhrif á árunum 2006 til 2008 eru um níu og hálfur milljarður segir félagsmálaráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Leikskólagjöld lækka um fjórðung

Leikskólagjöld á Akureyri munu lækka um allt að fjórðung, ef bæjarráð fer að tillögum skólanefndar bæjarins um einföldun og samræmingu gjaldskrárinnar. Verði þetta samþykkt munu leikskólagjöld vegna 650 barna af þeim þúsund sem eru á leikskólum bæjarins lækka um fjórðung, eða um 5700 krónur á mánuði á hvert barn.

Innlent
Fréttamynd

Skátar í hávegum í Hafnarfirði

Hafnarfjarðarbær verður fyrst bæjarfélaga til að semja um rekstur á skátastarfsemi. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, mun undirrita samstarfssamning við skátafélagið Hraunbúa í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Sameiningin í uppnámi

Áformaðar kosningar um stórfellda sameiningu sveitarfélaga í apríl eru í uppnámi vegna ósamkomulags ríkis og sveitarfélaga um breytta tekjuskiptingu. Sveitarfélögin krefjast allt að fimm milljarða króna tekjuaukningar.

Innlent
Fréttamynd

Kostar 30.000 að leysa út kött

Kosta mun um 30.000 krónur að leysa út kött sem eftirlitsmenn á Suðurnesjum hafa veitt og hefur verið geymdur í viku, að sögn Magnúsar Guðjónssonar framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Suðurlands.

Innlent
Fréttamynd

Vindmyllan verður eitthvað áfram

Enn er ekki komið á hreint hver á og ber ábyrgð á vindmyllunni í Grímsey, að sögn Óttars Jóhannssonar oddvita í sveitarfélaginu. Málið hefði verið til umræðu í sveitarstjórn en ekkert meira.

Innlent
Fréttamynd

Laun bæjarfulltrúa lækkuð

Tillaga um að lækka laun bæjarfulltrúa og bæjarráðsmanna í Reykjanesbæjar var borin upp á bæjarstjórnarfundi í gær og var tillögunni vísað til bæjarráðs. Það var Guðbrandur Einarsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, sem bar tillöguna fram en nauðsynlegt er að draga úr kostnaði hjá yfirstjórn bæjarins um fjórar milljónir króna.

Innlent
Fréttamynd

Fjárhagsáætlunin í uppnámi

Fjárhagsáætlun Seltjarnarnesbæjar er í uppnámi eftir að Skipulagsstofnun vísaði aðalskipulagstillögu meirihluta Sjálfstæðismanna heim í hérað á ný. Í fjárhagsáætlun 2005, sem samþykkt var 24. nóvember síðastliðinn með atkvæðum meirihluta sjálfstæðismanna, er ráðgert að selja land Hrólfskálamels og Suðurstrandar og er áætlað söluverð 350 milljónir króna.

Innlent
Fréttamynd

Lækkun fasteignagjalda á Nesinu

Meirihluti Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn Seltjarnarness hefur ákveðið að leggja fram tillögu um lækkun fasteignagjalda árið 2005 á Seltjarnarnesi á fundi bæjarstjórnar síðar í mánuðinum. Flokkurinn segir það í samræmi við stefnu hans um ábyrga fjármálastjórn bæjarins og lágar álögur.

Innlent
Fréttamynd

Borgin sameinist ekki Kjósarhreppi

Reykjavíkurborg mælir ekki með því að kosið verði um sameiningu borgarinnar við Kjósarhrepp í allsherjarkosningu um sameiningu sveitarfélaga sem verður eftir fjóra mánuði. Mörg önnur sveitarfélög víða um land hafna einnig sameiningartillögu.

Innlent
Fréttamynd

Reykjanesbrautin ekki breikkuð?

Bæjarstjórn Garðabæjar hefur hafnað því að veita Vegagerðinni framkvæmdaleyfi til að breikka Reykjanesbraut samkvæmt fyrirliggjandi tillögum. Bæjarstjórinn segir meðal annars hljóðmanir of háar en fundur verði með hagmunaðilum í næstu viku. Bæjarstjórinn efast ekki um að brautin verði breikkuð.

Innlent
Fréttamynd

Bæjarstjórinn komi úr Framsókn

Líklegt er að framsóknarmenn í bæjarstjórn Kópavogs fari fram á að embætti bæjarstjóra haldist í þeirra röðum þangað til í júní þegar Gunnar Birgisson, bæjarfulltrúi og þingmaður Sjálfstæðisflokks, tekur við starfinu.

Innlent
Fréttamynd

Sveitarfélögin færri en hundrað

Sameining fjögurra sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu var samþykkt í gær og sömuleiðis sameining fjögurra sveitarfélaga sunnan Skarðsheiðar. Sveitarfélög í landinu eru þar með orðin færri en hundrað.

Innlent
Fréttamynd

Meirihlutinn á Dalvík sprakk

Meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í bæjarstjórn Dalvíkur sprakk í dag. Ekki reyndist unnt að leysa ágreining um grunnskólann á Húsabakka í Svarfaðardal. Sjálfstæðismenn vildu leggja hann niður en framsóknarmenn ekki. Líklegt þykir að Sjálfstæðisflokkurinn myndi nýjan meirihluta með I-lista.

Innlent
Fréttamynd

Uppbygging byggðar í Urriðaholti.

Garðabær kallar íbúa sveitarfélagsins, og aðra þá sem kunna að hafa áhuga á uppbyggingu nýrrar byggðar í Urriðaholti í Garðabæ, til fundar við sig í golfskála Oddfellow-reglunnar í Urriðavatnsdölum við Garðabæ í dag. Þar á að ræða uppbyggingu nýrrar byggðar í Urriðaholti.

Innlent
Fréttamynd

Sagði af sér formennsku

Andrés Sigmundsson sagði af sér formennsku í bæjarráði Vestmannaeyja og verkefnastjórn Menningarhúss í Vestmannaeyjum eftir að upp komst um viljayfirlýsingu sem hann undirritaði um að kaupa hús í bænum fyrir 154 milljónir fyrir tæpum mánuði síðan.

Innlent
Fréttamynd

Afsögn formanns bæjarráðs

Andrés Sigmundsson, formaður bæjarráðs Vestmannaeyja, hefur sagt af sér í framhaldi af umræðu sem átti sér stað á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja í gær um undirritun hans á viljayfirlýsingu um skoðun kaupa á fasteignum. Frá þessu greinir á Eyjar.net. Andrés sagði af sér bæði sem formaður bæjarráðs og formaður í verkefnisstjórn um byggingu menningarhúss. 

Innlent
Fréttamynd

Samkomulag um sorpið

Nýtt deiliskipulag verður unnið á urðunarsvæði Sorpstöðvar Suðurlands á Kirkjuferjuhjáleigu, sem gildir þar til stöðin hættir urðun þar 1. desember 2008. Þá verður urðunarrein sem verið er að ganga frá lækkuð til samræmis við nýtt skipulag.

Innlent
Fréttamynd

Sorpflutningur spennandi kostur

Alfreð Þorsteinsson stjórnarformaður Sorpu segir það spennandi kost að allt sorp af höfuðborgarsvæðinu verði flutt austur fyrir fjall og því fargað á svæði vestan við Þorlákshöfn.

Innlent
Fréttamynd

Samkomulag náðist ekki

Ekki náðist samkomulag meðal fulltrúa aðildarsveitarfélaga Sorpstöðvar Suðurlands um lausn á ágreiningi varðandi starfsemi stöðvarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Vilja allt sorp til Þorlákshafnar

Viðræður eru um að allt sorp af höfuðborgarsvæðinu verði urðað skammt vestan við Þorlákshöfn. Heimamenn segjast hafa áhuga á að gera nútímasorpstöð. Samkomulag um Sorpstöð Suðurlands kynnt í dag. </font /> Hafin er athugun á því að flytja allt sorp af höfuðborgarsvæðinu á stórt svæði vestan við Þorlákshöfn, þar sem því yrði eytt. </b />

Innlent
Fréttamynd

Samkomulag undirritað fyrir austan

Oddvitar L-lista félagshyggjufólks og D lista sjálfstæðisflokks undirrituðu í gærkvöldi samkomulag um meirihlutasamstarf í hinu nýja sveitarfélagi Austur-Héraðs, Fellahrepps og Norður-Héraðs. Soffía Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar, segir að nýtt stjórnskipulag verði tekið í notkun sem kallar á töluverðar breytingar, bæði hjá kjörnum fulltrúum og starfsmönnnum bæjarfélagsins.

Innlent
Fréttamynd

Fjárfestar í kísilduftið

Gengið hefur verið frá samkomulagi við fjárfesta vegna fyrirhugaðrar kísilduftverksmiðju í Mývatnssveit, að sögn Sigbjörns Gunnarssonar sveitarstjóra.

Innlent
Fréttamynd

Nálgast samkomulag um sorp

Heldur hefur þokast í átt til samkomulags milli sveitarstjórnar Ölfuss og stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands, að sögn Hjörleifs Brynjólfssonar oddvita sveitarstjórnar Ölfuss.

Innlent
Fréttamynd

Standa við lokun sorpstöðvar

Lausn á ágreiningi um Sorpstöð Suðurlands er ekki í sjónmáli. Aðeins vika er í að stöðinni verði lokað. Engar formlegar viðræður hafa átt sér stað til að leysa ágreininginn.

Innlent
Fréttamynd

Mynda nýjan meirihluta

Héraðslisti félagshyggjufólks og listi Sjálfstæðisflokksins munu reyna að mynda nýjan meirihluta í nýsameinuðu sveitarfélagi Fellahrepps, Austur- og Norðurhéraðs en flokkarnir störfuðu saman í stjórn Austurhéraðs, fjölmennasta svæðisins, fyrir sameininguna.

Innlent
Fréttamynd

Íbúaþing í Hafnarfirði í dag

Íbúaþing er haldið í Hafnarfirði í dag undir yfirskriftinni „Undir Gafli“. Markmið þingsins er að fá fram hugmyndir íbúa Hafnarfjarðar um málefni sveitarfélagsins, afla upplýsinga um hvað brennur helst á íbúum og nýta þær til að móta framtíðarsýn fyrir Hafnarfjörð, að því er fram kemur í frétt frá bæjarfélaginu.

Innlent