Spænski boltinn

Fréttamynd

Barca og Juventus halda forystunni

Bæði Barcelona og Real Madríd unnu leiki sína í spænsku 1. deildinni í fóbolta í gær og Barcelona hefur því enn sex stiga forystu þegar sex umferðir eru eftir. Juventus náði þriggja stiga forystu í ítölsku 1. deildinni þegar liðið lagði Lecce að velli 5-2.

Sport
Fréttamynd

Deportivo vann Osasuna

Þrír leikir fóru fram í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld. Real Sociedad bar sigurorð af Deportivo 1-0, Osasuna vann Sevilla á útivelli 1-0 og Atletico Madrid og Epanyol gerðu markalaust jafntefli. Toppliðin tvö á Spáni verða í sviðsljósinu í dag.

Sport
Fréttamynd

Forlan langar aftur til Englands

Fyrrum framherji Manchester United, Diego Forlan frá Uruguay, segist vilja fá annan séns í ensku úrvaldsdeildinni. Forlan tókst ekki vil til hjá United en hefur brillerað á Spáni með Villarreal og skorað 18 mörk í vetur.

Sport
Fréttamynd

Owen neitar orðrómum

"Það var ekki ég sem kom þessum orðrómum af stað. Fólk er alltaf að tala um framtíð mína hjá Real af því ég er ekki í byrjunarliðinu, en ég get fullvissað alla um að þessar vangaveltur um endurkomu mína í ensku knattspyrnuna eru ekki frá mér komnar," sagði enski landsliðsmaðurinn Michael Owen, sem greinilega er orðinn mjög þreyttur á slúðrinu.

Sport
Fréttamynd

Canizares er miður sín

Santiago Canizares markvörður Evrópumeistara Valencia biður stuðningsmenn liðsins afsökunar í blaðaviðtali á Spáni í dag en hann gerði afdríkadrík mistök á 93. mínútu í leik gegn Malaga í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu um helgina, sem kostuðu Valencia sigur í leiknum.

Sport
Fréttamynd

Ronaldo kemur Real í 2-0

Ronaldo er búinn að koma Real Madrid í 2-0 gegn erkifjendum sínum í Barcelona í hörkuleik sem stendur yfir í Madrid.

Sport
Fréttamynd

Mörkunum rignir í Madrid

Staðan í leik Real Madrid og Barcelona er orðin 4-2 fyrir heimamenn. Michael Owen kom Real í 4-1 eftir um klukkutíma leik eftir glæsilega sendingu frá landa sínum David Beckham og úrslitin virtust ráðin í leiknum.

Sport
Fréttamynd

Real yfir gegn Barcelona

Zinedane Zidane hefur komið Real Madrid 1-0 yfir gegn Barcelona í toppslag spænsku 1. deildarinnar í fótbolta en leikurinn hófst kl. 17.00. Markið kom strax á 7. mínútu eftir frábæran undirbúning brasilíska sóknarmannsins Ronaldo. Leikurinn er sýndur beint á Sýn.

Sport
Fréttamynd

Real leiðir 3-1 í hálfleik

Real Madrid hefur 3-1 forskot gegn erkifjendum sínum í Barcelona í stórleik helgarinnar í spænska boltanum, sem stendur yfir í Madrid núna. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn og hefur verið sannkölluð flugeldasýning það sem af er.

Sport
Fréttamynd

Barcelona minnkar muninn

Samuel Eto´o er búinn að minnka muninn fyrir Barcelona gegn Real Madrid í stórkostlegum knattspyrnuleik sem stendur yfir í Madrid og er í beinni útsendingu á Sýn.

Sport
Fréttamynd

Numancia mætir Atletico Madrid

Numancia og Atletico Madrid mætast í spænsku úrvalsdeildinni í dag. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn og hefst klukkan 17.

Sport
Fréttamynd

Áhyggjulaus yfir markaleysinu

Stórliðin Real Madrid og Barcelona mætast í dag á Santiago Bernebau-leikvanginum í Madríd. Gríðarleg spenna ríkir fyrir þessum leik en Barcelona er með níu stiga forystu á Real Madrid á toppi deildarinnar.

Sport
Fréttamynd

Owen saknar Liverpool

Framherjinn knái hjá Real Madrid, Michael Owen, segist sakna heimaslóðanna í Liverpool og viðurkenndi í nýlegu viðtali að hann hefði ekkert á móti því að snúa heim ef sú staða kæmi upp.

Sport
Fréttamynd

Real saxaði á forskot Barcelona

Real Madrid saxaði á forskot Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld eftir sigur á Albaceti á útivelli, 2-1. Ivan Helguera og Michael Owen skoruðu mörk Madrídinga sem eru níu stigum á eftir Barcelona. Stórliðin mætast um næstu helgi.

Sport
Fréttamynd

Villareal í þriðja sætið

Villareal náði í gær þriðja sætinu í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar liðið sigraði Athletic Bilbao 3-1. Jose Mari skoraði tvö marka Villareal og Diego Forlan eitt en hann hefur nú skorað 18 mörk, jafnmörg og Samuel Eto´o hjá Barcelona. Zaragoza og Valencia gerðu 2-2 jafntefli og Real Sociedad sigraði Osasuna 2-0.

Sport
Fréttamynd

Ranieri kærði Valencia

Claudio Ranieri hefur kært sitt gamla félag, Valencia, en kappinn var rekinn úr þjálfarastöðu liðsins eftir aðeins 8 mánaða dvöl.

Sport
Fréttamynd

Óstöðugt, segir Luxemburgo

Wanderley Luxemburgo, þjálfari Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, varaði stjórn liðsins við veikleikum Madrídarliðsins er hann tók við af Mariano Garcia Remon.

Sport
Fréttamynd

Henry til Barcelona?

Forráðamenn Barcelona hafa uppi áform um að næla í franska framherjann Thierry Henry sem leikur með Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Sport
Fréttamynd

Er búinn að sanna mig, segir Owen

Það er mikið rætt og ritað um framtíð enska framherjans Michael Owen hjá Real Madrid á Spáni, eftir ummæli samherja hans, Raúl, í síðustu viku en hann gaf það í skyn að best væri að Owen færi frá Real.

Sport
Fréttamynd

Casillas hefur ekki áhuga á United

Gines Carvajal, umboðsmaður Iker Casillas, markvarðar Real Madrid, fullyrti nýlega að skjólstæðingur sinn hefði ekki áhuga á að ganga til liðs við Manchester United og bætti því við að Casillas hefði fullan hug á að dvelja áfram á Spáni.

Sport
Fréttamynd

Owen er einn af þeim bestu

Ivan Helguera hjá Real Madrid segir að Michael Owen félagi sinn hjá Real Madrid sé einn af allra bestu framherjum í spænsku deildinni.

Sport
Fréttamynd

Real minnkaði forskotið

Real Madrid minnkaði forskot Barcelona niður í ellefu stig í spænsku úrvalsdeildinni eftir sigur á Malaga, 1-0. Roberto Carlos skoraði sigurmarkið. Þá endurheimti AC Milan efsta sætið á Ítalíu eftir 2-0 útisigur á Roma.

Sport
Fréttamynd

Kastaði vatnsbrúsa upp í stúku

Ronaldo, leikmaður Real Madrid, þykir miður að hafa kastað vatnsbrúsa upp í áhorfendastúku í leik gegn Malaga í gær en honum var skipt út af þegar fimm mínútur voru til leiksloka.

Sport
Fréttamynd

Barcelona með 14 stiga forystu

Barcelona náði í gærkvöldi 14 stiga forystu í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu. Barcelona vann Deportivo La Coruna 1-0 á útivelli með marki Frakkans Ludovic Giuly. Real Madrid getur minnkað muninn í 11 stig en Madrídarmenn mæta Malaga klukkan 18 í dag en leikurinn verður sýndur beint á Sýn.

Sport
Fréttamynd

Beckham til sölu í sumar?

David Beckham, leikmaður Real Madrid, viðurkenndi á dögunum að slakur árangur liðsins í vetur gæti orðið til þess að kappinn yrði seldur í sumar.

Sport
Fréttamynd

Perez ver leikmenn Real

Florentino Perez, stjórnarformaður Real Madrid hefur stigið fram fyrir skjöldu ti lað verja leikmenn sína eftir dræmt gengi undanfarið.

Sport
Fréttamynd

Forlan virðir United

Framherjinn Diego Forlan segist ekki bera kala til Alex Ferguson eða Manchester United, þó hann hafi lítið fengið að spreyta sig með liðinu þegar hann lék með því á sínum tíma.  Forlan hefur farið á kostum með Villareal í spænska boltanum í ár og er næst markahæstur í deildinni.

Sport
Fréttamynd

Sigurganga Barcelona heldur áfram

Barcelona heldur áfram sigurgöngu sinni í spænsku úrvalsdeildinni. Barcelona sigraði Athletic Bilbao með tveimur mörkum gegn engu. Deco og Ludovic Giuly skoruðu mörk Barcelona sem hefur nú 11 stiga forskot.

Sport
Fréttamynd

Reyes enn áhugasamur um Real

Spánverjinn Jose Antonio Reyes, framherji Arsenal-liðsins, hefur enn á ný viðurkennt áhuga sinn á að segja skilið við liðið og semja við Real Madrid - svo framarlega sem forráðamenn Arsenal gefi grænt ljós á það.

Sport