NFS

Fréttamynd

Hætt að vera hrædd

Rannveig Bjarnfinnsdóttir greindist með brjóstakrabba fyrir einu og hálfu ári. Síðasta vetur fylgdist Kompás með Rannveigu og fór með henni í lyfjameðferð. Við hittum hana aftur nú rúmu ári síðar og sjáum hvernig henni hefur gengið í baráttunni við krabbameinið.

Stöð 2
Fréttamynd

Díler á hverju horni

Eitt símtal og þú færð dópið eftir 20 mínútur. Þetta leiðir rannsókn Kompás s í ljós á aðgengi unglinga að fíkniefnum í Reykjavík. Unglingsstúlkur, allt niður í fjórtán ára selja líkama sinn eldri karlmönnum til að fá dóp. Yfirmaður fíkniefnalögreglunnar í Reykjavík segist sjá aukningu í neyslu unglinga á fíkniefnum.

Stöð 2
Fréttamynd

Gefst aldrei upp

Framfarir á sviði læknavísinda hafa verið gríðarlega miklar á undanförnum árum. Blindir hafa öðlast sjón og heyrnardaprir heyrn. Þó er enn litið svo á að lömun sé varanlegt ástand. Litlu fjármagni hefur verið eytt í rannsóknir á mænuskaða og framfarir á því sviði verið litlar. Auður Guðjónsdóttir, skurðhjúkrunarfræðingur vill breyta þessu. Hún neitar að gefast upp í baráttu sinni fyrir því að lamaðir geti hreyft sig á ný.

Stöð 2
Fréttamynd

Inn úr kuldanum

Mikhail Sergeyevits Gorbatsjov var á Íslandi í vikunni í tilefni af því að tveir áratugir eru síðan hinn dramatíski leiðtogafundur hans og Ronalds Reagans Bandaríkjaforseta var haldinn í Reykjavík. Þessi maður hafði fingurinn á hnappanum, gat eytt lífi á jörðunni, meðan hann var forseti Sovétríkjanna. Við skulum kynnast þessum 75 ára gamla manni, sem leyfði Berlínarmúrnum að falla, samdi um stórfækkun kjarnorkuvopna og batt enda á kalda stríðið.

Stöð 2
Fréttamynd

Örkin hans Ómars

Við áttum þess kost að fylgjast með Ómari nokkra dagsparta nú á haustdögum, einmitt þegar Hálslón var að dýpka hvað hraðast. En hvað er Ómar að gera þarna? Eru einhverjir að hjálpa honum? Hefur hann efni á þessu? En við skulum byrja á því að bregða okkur tíu daga aftur í tímann.

Stöð 2
Fréttamynd

Drukknandi dalur

Við ætlum nú að sigla með Ómari um Hálslón, Heyra skoðanir hans á þeim sem ábyrgðina bera. Upplifa það þegar hann sér og lýsir náttúrugersemum sem eru endanlega að tapast. Og svo eru kannski einhverjir sem spyrja hvort það sé Ómar sem er búinn að tapa sér.

Stöð 2
Fréttamynd

Bardagar framundan

En hvað tekur nú við hjá Ómari? Vetur fer að leggjast yfir Kárahnjúka og hann á að mæta til vinnu hjá Ríkissjónvarpinu þann 15. október, eftir langt frí, og fer þá í þáttagerð. Verður reynt að þagga niður í honum? Í hvaða átakamál ætlar hann að blanda sér í?

Stöð 2
Fréttamynd

Aukin friðargæsla

Balkanskaginn kemur til greina fyrir ný verkefni íslensku friðargæslunnar, en utanríkisráðherra hefur lýst því yfir að stórauka eigi þátt Íslands í verkefnum á sviði friðargæslu og þróunarsamvinnu. Verkefni í fjölmörgum löndum eru til skoðunar og íslenskir starfsmenn friðargæslunnar eru eftirsóttir til starfa víða um heim.

Stöð 2
Fréttamynd

Pétur í Laufási

Í eiginlegri merkingu var fótunum kippt harkalega undan Pétri Þórarinssyni presti í Laufási í Eyjafirði fyrir nokkrum árum. Hann hefur þjáðst af sykursýki á háu stigi og er bundinn við hjólastól eftir að hafa misst báða fætur með skömmu millibili. Í samantekt Björns Þorlákssonar heyrum við nú prestinn lýsa þróun sjúkdómsins, deginum dökka þegar hann ákvað að svipta sig lífi og styrknum sem hann fékk til að vinna sig út úr mótlætinu.

Stöð 2
Fréttamynd

Fótbolti í forarsvaði

Evrópumeistaramótið í mýrabolta var haldið á Ísafirði í þriðja sinn í sumar. Mótið hefur fest sig í sessi sem einn drullugasti viðburður landsins þótt víða væri leitað og keppendum fjölgar ár frá ári. Í upprunalandinu Finnlandi er mýrarboltinn orðinn að einum stærsta sumarviðburði landsins sem sýnir svo ekki verður um villst að undarlegustu mannamót geta orðið að stórmótum, sé rétt að málum staðið.

Stöð 2
Fréttamynd

Vandamál á Suðurlandi

Ísak Máni og Nökkvi Már eru bræður. Þeir eru báðir með hjartagalla, ýmsar þroskahamlanir og þjást af fleiri sjúkdómum. Þeir eiga heima á Selfossi. Foreldrar þeirra hafa um margra mánaða skeið barist fyrir aukinni þjónustu sveitarfélagsins fyrir syni sína sem þarfnast báðir ýmis konar þjálfunar og aðstöðu. Foreldrarnir segja sveitarfélagið ekki standa sig og spyrja, er landsbyggðin ekki fyrir fötluð börn?

Stöð 2
Fréttamynd

Enginn fangaskattur

Stundar ríkið sjálft svarta atvinnustarfsemi? Það segir þingflokksformaður Samfylkingarinnar. Staðgreiðsla er ekki dregin af vinnulaunum fanga eins og lög kveða á um og það hefur í för með sér að þeir tapa lífeyrisréttindum og í sumum tilfellum réttindum til atvinnuleysisbóta. Fangelsismálastjóri segist þurfa um 20 milljóna króna aukafjárveitingu á ári til að geta staðið rétt að launagreiðslunum og virt lögin í landinu.

Stöð 2
Fréttamynd

Björgunaræfing á Gufuskálum

Sjö ár eru liðin frá því að alþjóðabjörgunarsveit slysavarnafélagsins Landsbjargar var sett á fót og hefur hún síðan þá þrívegis farið á hamfarasvæði erlendis og lagt þar hönd á plóginn. Nú stendur fyrir dyrum að stækka sveitina og víkka verksvið hennar út. Liður í því var vel heppnuð rústabjörgunaræfing sem fór fram á sérhönnuðu æfingasvæði Landsbjargar á Gufuskálum á Snæfellsnesi á dögunum.

Stöð 2
Fréttamynd

Með lífið að veði II

Bryndís Eva er ársgömul stúlka sem hefur barist fyrir lífi sínu á Barnaspítala Hringsins síðustu mánuði. Foreldrar hennar hafa verið við hlið litlu stúlkunnar sinnar allann tímann; á daginn og á nóttunni. Þau eru orðin þreytt; þurfa að vaka yfir fárveiku barninu af því hágæslu hefur enn ekki verið komið upp - þrátt fyrir rausnarlegan styrk til barnaspítalans fyrr á þessu ári. Þau eru reið stjórnendum spítalans og þingmönnum þessa lands.

Stöð 2
Fréttamynd

Dauðadópið V

Fyrir rúmum tveimur vikum fóru Jói og Gugga í meðferð í Byrginu. Þau eru morfínfíklar sem sprauta sig í æð með lyfjum sem meðal annars íslenskir læknar skrifa út. Fyrstu dagarnir í meðferðinni gengu vel. Þau sváfu mestallan tímann og sögðust sátt við lífið og tilveruna. Sex vaktmenn fylgdust með þeim fyrstu sólarhringana og sáu um lyfjagjöf. Meðferð Jóa og Guggu í Byrginu fékk þó snöggan endi.

Stöð 2
Fréttamynd

Herra píanó

Hann hefur næmt eyra og sérstaka þekkingu á píanóum, fer fimum fingrum um strengi þessara stórbrotnu hljóðfæra, á milli þess sem hann stillir flygla hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands og í Salnum í Kópavogi. Hann er þekktur fyrir sérstaka natni í starfi sínu og að ná fram einstökum hljómum hljóðfæranna. Og það merkilega er að þessi maður er blindur.

Stöð 2
Fréttamynd

Þjófar á ferð

Innbrot geta verið skipulögð í hörgul, þjófarnir jafnvel orðið sér úti um lykla og fylgjast með heimilum þangað til færi gefst, fara þá inn rænandi og ruplandi - og eru eldfljótir að koma höndum undir verðmæti. Dæmi eru um að íbúðareigendur fái slíkt ógeð á heimili sínu eftir heimsókn innbrotsþjófa að þeir geta ekki hugsað sér að búa þarna lengur.

Stöð 2
Fréttamynd

Dauðadópið IV

Á Hverfisgötu 58 í Reykjavík er dópgreni. Sprautur, matarleifar og óhrein ílát um öll gólf. Þangað liggur stöðugur straumur fíkla, ógæfufólks sem óttast fátt meira en fráhvörf; umfjöllun Kompáss skapaði kreppuástand og Jói og Gugga fóru ekki varhluta af því.

Stöð 2
Fréttamynd

Nátthrafnar

Það er fólk að annast okkur á nóttunni frá vöggu til grafar.Við fylgjumst með næturvinnufólki sem sinnir starfi sínu meðan flestir aðrir sofa. Þetta eru ljósmóðir, götusópari og hjúkrunarfræðingur á elliheimili.

Stöð 2
Fréttamynd

Dauðadópið III

Fíkniefnaneytendur sprauta sig ekki aðeins með læknadópinu contalgíni - morfínplástur kemur að sömu notum. Morfínplásturinn hefur að geyma deyfiefni meðal annars til að lina kvalir krabbameinssjúkra, en fíkniefnaneytendur leysa plásturinn með sítrónusafa og sprauta efninu í æð. Það er lífshættulegt. Sex íslendingar deyja á hverju ári vegna ofneyslu morfínlyfja. Þrjátíu manns hafa látist á síðustu fimm árum.

Stöð 2
Fréttamynd

Hestahvíslari

Þeir hafa verið sveipaðir dýrðarljóma og dulúð;þeir sem þekkjast sem hestahvíslarar. Þeir hinir sömu geta breytt villtustu ótemjum þannig að þær verði þægar sem lömb. Einn slíkur, hinn heimsfrægi hestahvíslari Monty Roberts, var staddur hér á landi á skírdag og hélt sýningu á aðferðunum sem hann notar - og á næstu mínútum munuð þið sjá að hér er hreint ekki um neina töfra að ræða, heldur aðferðir sem hver sem er getur lært.

Stöð 2
Fréttamynd

Heimilisofbeldi - Hjálpar kerfið?

Íslenskar konur hafa flúið land vegna ofsókna og ofbeldis fyrrverandi eigingmanna. Veitir íslenska kerfið þessum konum fullnægjandi vernd eða er þeim nauðugur sá kostur að flytja af landinu og leynast erlendis? Upp undir fjórðungur íslenskra kvenna verður fyrir heimilisofbeldi einhvern tíma á lífsleiðinni. Tæplega þrjú hundruð konur leituðu til Kvennaathvarfsins í fyrra; umtalsvert fleiri en árið áður. Vandamálið er stórt.

Stöð 2
Fréttamynd

Veisla fyrir vestan

Þrjú þúsund manns sóttu Rokkhátíð alþýðunnar - Aldrei fór ég suður á Ísafirði um síðustu Páska. Tónlistarhátíðin er orðin ein af aðalhátíðum landsins og þar dynur tónlistin í hálfan sólarhring. Ísfirðingar hafa í allan vetur unnið að skipulagningu hátíðarinnar enda til mikils að vinna. En hvað þýðir hátíð sem þessi fyrir byggðarlag vestur á fjörðum? Og hvað verður hún stór þetta árið?

Stöð 2
Fréttamynd

Leikfélag Akureyrar - Allt á fleygiferð

Hvert aðsóknarmetið á fætur öðru hefur verið slegið að undanförnu hjá Leikfélagi Akureyrar. Tólf þúsund manns hafa séð leikritið Fullkomið brúðkaup á Akureyri. Tíu þúsund miðar hafa verið seldir á leikritið sem sýnt verður í Borgarleikhúsinu í lok apríl. Og miðar á Litlu hryllingsbúðina rjúka út. Leikhússtjórinn, Magnús Geir Þórðarson er ánægður og hann þakkar starfsfólkinu árangurinn.

Stöð 2
Fréttamynd

Mannrán í Garðinum

"Það eina sem þeir sögðu var; ert þú Kiddi? og þá var ég sleginn í andlitið." Svona lýsir hálfsjötugur verkamaður í Garðinum því þegar fjórir menn komu heim til hans á laugardagskvöld, lömdu hann til óbóta og hentu honum í skottið á bílnum hjá sér. Þar var hann látinn dúsa í sjö klukkustundir, marinn og blóðugur. Kiddi slapp frá mannræningjunum og hann hefur ekki sagt sitt síðasta orð.

Stöð 2
Fréttamynd

Boltaböl?

Það eru til menn á Íslandi sem skipuleggja líf sitt í kringum Heimsmeistarakeppnina í fótbolta. Þeir taka sumarfríið á þeim tíma sem keppnin stendur yfir og horfa á fótboltaleiki allan daginn. Þess á milli spá þeir í spilin og ef liðið þeirra tapar leggjast þeir í þunglyndi. Sumir vilja meina að þessir menn séu fíklar, en eru þeir það?

Stöð 2
Fréttamynd

Listahjón að vestan

Á Ísafirði er haldin alþjóðleg einleikjahátíð einu sinni á ári. Hún nefnist Act alone og sá sem stjórnar henni heitir Elfar Logi Hannesson leikari, en hann hefur sýnt einleikinn um Gísla Súrsson sjötíu sinnum víða um land. Og konan hans Elfars Loga er á kafi í listum. Hún teiknar myndir. Þau eru í útrás frá Ísafirði og hafa sýnt list sína í Reykjavík að undanförnu.

Stöð 2
Fréttamynd

Fangar eigin líkama

Þrjú hundruð manns bíða eftir atferlismeðferð á Reykjalundi vegna offitu. Biðlistinn lengist stöðugt og meira en tvö ár geta liðið þangað til fólk kemst að. Rúmlega helmingur Íslendinga yfir tvítugu er yfir kjörþyngd og þar af þjáist næstum sjötti hver landsmaður beinlínis af offitu. Kostnaður samfélagsins hleypur á milljörðum króna árlega, en samt er offita ekki eitt af forgangsverkefnum heilbrigðisáætlunar til ársins tvö þúsund og tíu.

Stöð 2
Fréttamynd

Efni á flakki

Kaupirðu þig inn á kvikmyndina um mannránið í Munchen sem nú er sýnd í kvikmyndahúsum, ef þú getur fengið hana ókeypis á hörðum tölvudiski? Kaupirðu áskrift að Stöð 2 ef þú getur fengið nýjustu sjónvarpsþættina á tölvudiski. Flakkarar tröllríða íslensku samfélagi, ganga milli fólks sem setur inn á þá bíómyndir og sjónvarpsþætti, án þess að framleiðendur og dreifendur fái nokkuð fyrir snúð sinn.

Stöð 2
Fréttamynd

Endurhæfing Steingíms J.

Það mátti litlu muna að Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður og formaður Vinstri grænna hefði kvatt þennan heim kvöld eitt í janúar þegar hann lenti í alvarlegu bílslysi á leiðinni að norðan suður til Reykjavíkur. Hann slasaðist alvarlega - en nú, tæpum þremur mánuðum síðar er hann í endurhæfingu á Reykjalundi. Hann segist ekki hugsa mikið til Alþingis - einbeiti sér að því að ná bata. En - verður hann tilbúinn í kosningaslaginn í vor?

Stöð 2