Heilsa

Fréttamynd

Lestu þetta ef þú djammaðir um helgina

Áfengi truflar meltingu prótíns og kolvetna í lifur og hún getur ekki myndað nýjan glúkósa. Það truflar einnig framleiðslu ensíma í brisi sem sjá um niðurbrot fitu í líkamanum.

Lífið
Fréttamynd

Hætti að borða pítsur á næturnar

Leikarinn Jason Segel hefur sjaldan litið betur út en hann breytti um lífsstíl til að koma sér í betra form fyrir næstu mynd sína Sex Tape þar sem hann leikur á móti glæsikvendinu Cameron Diaz.

Lífið
Fréttamynd

Tekur á því í ræktinni

Raunveruleikastjarnan Nicole “Snooki” Polizzi hefur lést um rúmlega tuttugu kíló síðan hún eignaðist soninn Lorenzo í fyrra. Nú er hún byrjuð að setja myndbönd á YouTube þar sem hún leyfir aðdáendum að fylgjast með sér í ræktinni.

Lífið
Fréttamynd

Hiti skiptir sköpum

"Heitt jóga er einfaldara en marga grunar og allir geta stundað það á sínum styrk og með sama árangri,“ segir Jóhanna Karlsdóttir sem kynnti heitt jóga fyrir Íslendingum árið 2009. Hún kennir í heitasta sal landsins í Sporthúsinu og miðlar nú fræðunum um víða veröld.

Kynningar
Fréttamynd

Kallar fram fegurð

"Allar vörur bareMinerals eru þróaðar til þess að kalla fram fegurð þína,“ segir Hilde Lise förðunarmeistari.

Kynningar
Fréttamynd

Grennandi aðhaldsfatnaður

"Fyrirtækið setur mikið fjármagn í rannsóknir og þróun. Framtíðarplön Lytess eru að framleiða fatnað sem tekur á ýmsum líkamskvillum, svo sem þurri húð, exemi, húðslitum, æðahnútum, bakverkjum og liðverkjum svo dæmi séu nefnd. Möguleikarnir eru óþrjótandi,“ segir Margét Helgadóttir, markaðsstjóri hjá heildsölunni Cu2.

Kynningar
Fréttamynd

Falleg, lýtalaus húð

Íslenskar vetrarhörkur fara ómjúkum höndum um hörund karla og kvenna. Skin Doctors kynnir sérhæfðar lausnir við algengum húðvandamálum sem virka og nú nýtt krem sem vinnur á rósroða og háræðasliti.

Kynningar
Fréttamynd

Kalli Berndsen flytur Beauty barinn í Kringluna

"Ég get nú hæglega sameinað alla mína þjónustu og boðið viðskiptavinum ráðgjöf við fataval í verslunum Kringlunnar, auk þess að farða þá og klippa. Beauty Barinn er líka opinn á laugardögum sem hentar mörgum óneitanlega mjög vel.“

Kynningar
Fréttamynd

Lyfting án skurðaðgerðar

"Mér finnst að ungar konur ættu að huga að því fyrr hvernig þær ætla að meðhöndla húð sína. Betra er að fyrirbyggja hrukkur en að reyna að losna við þær þegar þær hafa myndast,“ segir Bryndís Torfadóttir, framkvæmdastjóri flugfélagsins SAS, og undirstrikar að mikilvægt sé að láta fagfólk um húðumhirðuna.

Kynningar
Fréttamynd

Fitbook kemur þér af stað

"Hugmyndin kviknaði þegar ég lagði stund á næringarfræði í ÍAK-einkaþjálfaranámi mínu og komst að raun um að Íslendinga skorti haldgóða lausn til að halda utan um mataræði sitt,“ segir fjármálafræðingurinn Dagur Eyjólfsson sem ásamt Eddu Dögg Ingibergsdóttur opnaði matardagbókina Fitbook.com í ársbyrjun 2011.

Kynningar
Fréttamynd

Undraverður árangur á stuttri þjálfun

Ég, rétt eins og margir aðrir Íslendingar, fylgdist full af áhuga með þættinum "Líkamsrækt í jakkafötum" sem sýndur var mánudaginn 7. janúar í Ríkissjónvarpinu og endursýndur 14. janúar. Þótt ég hafi stundað líkamsrækt í meira en tvo áratugi og fái mikla ánægju út úr því þá veit ég um marga sem þykir líkamsrækt mikil tímasóun og drepleiðinleg í þokkabót. Það vakti áhuga hjá mér og eflaust hjá fleirum að heyra hversu miklum árangri er hægt að ná með undravert stuttri þjálfun.

Lífið
Fréttamynd

Hollustan rauði þráðurinn í lífinu

Elísabet Margeirsdóttir er þekktust sem veðurfréttamaður á Stöð 2 en hún rekur líka næringarráðgjöf og er ástríðufullur hlaupari sem stefnir á 168 kílómetra fjallahlaup í haust. Hvernig stóð á því að hún gerði hreyfingu og mataræði að uppistöðu í lífi sínu og hvaða ráð á hún fyrir þá sem dreymir um að taka upp hollari lífsstíl á nýju ári?

Lífið
Fréttamynd

Stóllinn drepur þig

Hvað getur þú gert í þínu lífi til að halda efnaskiptunum og brennslunni þinni hærri en hún er fyrir, án þess að taka æfingarnar inn í spilið ef þær eru það fyrir?

Lífið
Fréttamynd

Líkamsræktarstöð með sérstöðu

"Við erum langt frá því að vera hætt og erum glöð að geta sagt frá því að um næstu mánaðamót munum við endurnýja tækin í tækjasalnum. Þá verða tekin í notkun glæsileg ný CYBEX-tæki, líklega þau bestu sem eru á boðstólum hér á landi,“ segir Bjargey Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri íþróttasviðs Nordica Spa.

Kynningar
Fréttamynd

Faglegar aðferðir og góð samvinna

"Við höfum verið að fá fleiri yfirgripsmikil verkefni undanfarið og má þar nefna að samvinna við sjúkraþjálfara, lækna og einkaþjálfara hefur aukist, sem hefur gefið mörgum kúnnum tækifæri til betri heilsu og bata. Samþætting faggreina er mun meiri og útkoman jákvæðari,“ segir Ingólfur.

Kynningar
Fréttamynd

Valgeir Gauti gefur ráð

Verslunin Sportlíf í Glæsibæ og Holtagörðum býður úrval af hágæða fæðubótarefnum. Á morgun og á laugardag mun Valgeir Gauti Árnason Íslandsmeistari í vaxtarrækt gefa fólki góð ráð við val á fæðubótarefnum í Sportlíf í Glæsibæ.

Kynningar
Fréttamynd

Þung lóð virka vel

Fyrir tveimur árum var ég komin með nóg af þessu dúlleríi, ég var í engu formi þrátt fyrir að fara í ræktina á hverjum degi. Hljómar mótsagnakennt en ég er fullviss um að mörg ykkar hafa upplifað þetta.

Lífið
Fréttamynd

Borðaði bara brauð með osti í öll mál

Hildur Halldórsdóttir opnaði síðuna Heilsudrykkir Hildar á Facebook fyrir tæpu ári. Hún gefur okkur einfalda uppskrift af heilsusafa sem er kjörinn í byrjun dags. "Ég var heima í fæðingarorlofi og var komin með leið á mjög svo tilbreytingarlausu og einhæfu fæði. Borðaði bara að mestu brauð með osti í öll mál," svarar Hildur spurð af hverju hún byrjaði með heilsudrykkjasíðuna sem er vinsæl á Facebook. "Ég fór svo að leita að upplýsingum um holla og góða smoothie á íslensku en fann lítið af uppskriftum og líka fannst vanta næringarinnihald í þær sem ég fann en einn smoothie getur verið mjög hitaeiningaríkur. Upphaflega setti ég því síðuna upp fyrir mig til þess að halda utan um uppskriftirnar mínar. Mig óraði aldrei fyrir því að þetta yrði svona vinsæl síða," segir Hildur. Grænn og vænn (304 Kcal) 11,88 gr prótein, 5,8 gr kolvetni, 4,9 gr fita Mjög bragðgóður og mjög grænn drykkur sem hentar vel sem fyrsti drykkur dagsins, um að gera að setja sem mest af spínati, það breytir hitaeiningafjöldanum lítið þar sem að spínat er svo hitaeiningasnautt. 1 frosinn, þroskaður banani 2 dl (40 gr) frosinn ananas 2 dl (40 gr) frosinn mangó 1/2 pakki af Frutein próteini, Revitalizing Green Foods Fullt af spínati, 2-3 góðar lúkur, má vera minna má vera meira. 1 msk (10 gr) hörfræ Smá ferskt, rifið engifer. Vatn eftir þörfum, ca. 3-4 dl. Allt sett í blandarann og blandað þar til silkimjúkt og fallegt. Sjá síðuna hennar Hildar hér.

Lífið
Fréttamynd

Fimm heilsuráð þjálfarans

Dagmar Hrund Sigurleifsdóttir, eða Dammý eins og hún er kölluð, er master rehab þjálfari og krossfitþjálfari hjá Krossfit Iceland í World Class. Hún veit hvaða fimm atriði skipta máli þegar heilsan er annars vegar.

Lífið
Fréttamynd

Allt fyrir karlmenn á einum stað

Óhætt er að segja að árið 2012 hafi verið eitt besta rekstrarár í sögu Fríhafnarinnar. Í upphafi ársins var opnuð fyrsta Victoria"s Secret verslunin á Íslandi, og reyndar á öllum Norðurlöndunum, sem býður fyrst og fremst vörur fyrir konur.

Kynningar
Fréttamynd

Sjáðu hvað árið 2013 færir þér

Á síðu Lífsins er tarotbunki sem er kjörinn til að kanna hvað gerist árið 2013 þegar kemur að aðstæðum, ástinni, viðskiptum eða því sem tengist notandanum persónulega. Spádómsspilin eru byggð á ævafornri speki til að kanna hvað framtíðin ber í skauti sér.

Lífið
Fréttamynd

Hrífandi í annríki dagsins

Íslenskar konur hrósa nú happi yfir nýjasta fengnum á sviði förðunar því nú fást loks vörur heimsþekkta snyrtivörumerkisins Smashbox á Íslandi. Þær eru fullkomnar fyrir konur sem eiga annríkt og þurfa alltaf að vera upp á sitt besta, og eru á góðu verði.

Kynningar
Fréttamynd

Endurnærandi námskeið

Úrval Útsýn býður spennandi vikunámskeið í samstarfi við leikkonuna Eddu Björgvinsdóttur og íþróttafræðinginn Bjargeyju Aðalsteinsdóttur 23. febrúar næstkomandi. Sams konar námskeið hafa verið á boðstólum undanfarin ár og síðast komust færri að en vildu. Um er að ræða endurnærandi lífsstílsnámskeið.

Kynningar
Fréttamynd

Kastanía fagnar hausti

Í KASTANÍU að Höfðatorgi fást fylgihlutir sem tekið er eftir. Þær Bryndís Björg Einarsdóttir og Ólína Jóhanna Gísladóttir velja þá inn af kostgæfni.

Kynningar
Fréttamynd

Húsfyllir á haustkynningu

Mikil stemning og eftirvænting ríkti er ELLA, Oroblu, Grand Marnier og L'Oréal fögnuðu haustinu saman og frumsýndu haustlínur sínar í Ölgerðinni síðastliðinn fimmtudag. Gestir troðfylltu húsið.

Tíska og hönnun