Tónlist

Lay Low sendir frá sér sína fyrstu plötu

Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir er efnileg tónlistarkona og er að gefa út sína fyrstu sólóplötu
Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir er efnileg tónlistarkona og er að gefa út sína fyrstu sólóplötu

Fyrsta plata tónlistarkonunnar Lay Low er komin til landsins og er að detta í verzlanir þessa dagana, en formlegur útgáfudagur er 19. október eða sama dag og Lay Low spilar á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves. Lay Low mun spila á NASA fimmtudaginn 19. okt

kl. 20:00.

Platan sem ber nafnið Please Don't Hate Me er einhverskonar blanda af blús, rokki og kántrí-tónlist og inniheldur 11 lög. Titillag plötunnar, Please Don't Hate Me hefur verið spilað mikið á útvarpsstöðvum landsins og verður m.a. í bíómyndinni Mýrin eftir Arnald Indriðason, en tónlistarmaðurinn Mugison hafði mikinn áhuga á að nota lagið í Mýrinni, en Mugison sér einmitt um tónlistina í kvikmyndinni.

Lagið Boy Oh Boy heyrist nú ótt og títt í auglýsingum frá Samskip, en fyrirtækið hafði mikinn áhuga á að nota tónlist Lay Low í nýjar ímyndarauglýsingar fyrirtækisins sem þessa dagana kynnir nýtt merki og útlit. Lagið fer síðan í almenna spilun útvarpsstöðvanna núna næstu daga. Lay Low skaust fram á sjónarsviðið í byrjun þessa árs, en útgáfufyrirtækið COD Music gerði sér lítið fyrir og gerði við hana plötusamning eftir að hafa einungis heyrt tvær demóupptökur á internetinu. Síðan þá hefur hún spilað á fjölmörgum tónleikum víðsvegar um landið og fengið frábærar viðtökur frá fólki á öllum aldri.

Um Lay Low

Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir fæddist í London árið 1982 en þar býr faðir hennar sem er ættaður frá Sri Lanka. Ung að aldri fluttist hún til Íslands með móður sinni, sem er íslensk. Snemma byrjar Lovísa að læra á píanó en á unglingsárum færði hún sig yfir í önnur hljóðfæri eins og gítar og bassa. Lovísa hefur stundað nám í ýmsum tónlistarskólum og tók m.a. 1 ár í FÍH á rafbassa. En í haust hóf hún nám við Tónsmíðadeild Listaháskóla Íslands.

Lovísa hefur spilað með ýmsum hljómsveitum gegnum tíðina eins og Stratus, Blúsbandi Thollyar og Stardust Motel, og í dag leikur hún með hljómsveitinni Benny Crespo's Gang. Það var ekki fyrr en snemma á þessu ári sem hún byrjar að semja sína eigin tónlist og koma fram undir nafninu Lay Low en nokkrum mánuðum áður hafði hún verið að byrja með kántrí band með vinkonum sínum, en helmingurinn af því bandi fór erlendis um tíma. Síðan þá hafa hlutirnir verið að gerast hratt og útgáfufyrirtækið Cod Music bauð henni plötusamning fyrir sólóverkefnið Lay Low.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×